Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 17
Eldisstöð Hafrannsóknastofnunar
í Grindavík vinnur að tilrauna-
verkefni fyrir Matís, þar sem lax
er alinn á fóðri sem upprunnið er
úr timbri. Verkefnið er hluti af
Evrópuverkefninu Sylfeed sem er
alþjóðlegt fjögurra ára verkefni
sem snýst um að búa til prótein
úr aukaafurðum frá skógariðnaði.
Auk Matís taka alls 10 stofnanir
og fyrirtæki þátt í samstarfinu, þar
á meðal fyrirtækin Arbiom, Norske
Skog Golbey (í Frakklandi) og
Fóðurverksmiðjan Laxá.
Aukaafurðum breytt í prótein
Ragnar Jóhannsson, sviðsstjóri
fisk eldis og fiskiræktunar hjá Haf
rannsókna stofnun, segir í frétt á
heima síðu stofnunarinnar: „Að sjálf
sögðu er ekki mikið prótein í timbri
sem fiskar gætu melt en verið er að
þróa aðferð þar sem aukaafurðum,
svo sem sagi úr vinnslu lauftrjáa, er
umbreytt í fásykrur sem ákveðin gerð
gersveppa getur nýtt sér og myndar
úr þeim svokallað einfrumuprótein.
Þetta einfrumuprótein hefur hagstæða
amínósýrusamsetningu sem jafnast á
við fiskimjöl.“
Hafrannsóknastofnun vinnur nú
að fóðurtilraunum á stórum skala
þar sem eldislax er alinn á þessu
fóðri og mælingar gerðar á vexti og
fóðurnýtingu.
Dýraprótein takmörkuð auðlind
Ragnar segir einnig að til að ala
fisk, og reyndar fleiri dýr svo sem
kjúkling og svín, þarf próteinríkt
fóður. „Stór hluti fóðurs í dag er
úr jurtapróteini, gjarnan sojamjöli.
Lax getur þó ekki verið jurtaæta
eingöngu og verður að fá hluta
próteins úr dýraríkinu og þá er notað
fiskimjöl. Fiskimjöl er unnið með
bræðslu uppsjávarfiska sem er tak
mörkuð auðlind og uppsjávarfiskar
fara í auknum mæli beint til mann
eldis. Mjölið sem framleitt er í þessu
verkefni getur uppfyllt vaxandi þörf
fyrir dýraprótein til fiskeldis og
annarrar matvælaframleiðslu.“
Í Evrópu eru möguleikar á að
framleiða mjög mikið magn af ein
frumupróteini með þessum aðferð
um og stuðla þannig að auknu mat
vælaöryggi álfunnar. /VH
Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri
CLAAS heyvinnutækin eru þekkt fyrir
framúrskarandi hönnun, gæði og áreiðanleika.
CLAAS Rollant Uniwrap rúllusamstæður
Þar sem afköst, magn og gæði fóðurs í rúllum skipta máli.
CLAAS Volto heytætlur
Vinnslubreidd 4,5-13 metrar, drag- og lyftutengdar.
CLAAS Disco sláttuvélar
Vinnslubreidd 2 - 10,7 metrar með og án knosara.
CLAAS Liner múgavélar
Vinnslubreidd 3,2-15 metrar.
- VERKIN TALA
CLAAS rúl luvélar og heyvinnutæki
Verið er að gera tilraun með að ala eldisfisk á aukaafurðum úr timbri.
Hafrannsóknastofnun:
Eldislax fóðraður á timbri
Grásleppuveiðar:
Endurheimta
MSC-vottun
Gefið hefur verið út skírteini sem
staðfestir að grásleppuveiðar hafa
endurheimt MSC vottun um sjálf-
bærar veiðar. Skírteinið gildir í
fimm ár, frá 17. nóvember 2020
til 16. nóvember 2025.
Samkvæmt frétt á heimasíðu
Landssambands smábátaeigenda
segir að erfiðlega hafi gengið að
selja grásleppuhrogn frá síðustu
vertíð og ætti vottunin að liðka til
í þeim efnum en þar segir einnig að
ljóst sé að COVID19 sé þar stærsti
orsakavaldurinn.
Að sögn Kristins Hjálmarssonar,
verkefnisstjóra hjá ISF, Icelandic
Sustainable Fisheries, vó aðkoma
sjómanna um stjórn veiðanna þungt
í þessum efnum. „Þeir lögðu til við
stjórnvöld lokun svæða þar sem
líkindi voru á að selur veiddist
sem meðafli og nákvæm, áreiðan
leg skráning alls afla sé mikilvæg
fyrir eftirlit og vísindi. Niðurstaðan
sem nú er fengin hefði ekki náðst
nema með sterkri aðkomu og sam
vinnu allra aðila, stjórnvalda, LS,
Hafrannsóknastofnunar og fram
leiðenda.“
Á heimasíðunni segir að rétt sé
að taka fram að þó þessi áfangi hafi
náðst sé nauðsynlegt að halda áfram
umbótum þar sem mikilvægt sé að
allir vinni saman að því að minnka
meðafla við grásleppuveiðar.
Skírteini um sjálfbærni veiðanna
er gefið út með skilyrðum fyrir
umbótum sem leiði til þess að áhrif
þeirra hindri ekki uppbyggingu á
stofnum viðkvæmra tegunda. /VH