Bændablaðið - 03.12.2020, Síða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 20202
FRÉTTIR
Friðheimar í Reykholti taka í notkun nýtt 5.600 fermetra gróðurhús:
Mun tvöfalda framleiðsluna og rúmlega það
Verið er að taka í notkun þessa
dagana nýju 5.600 fermetra
gróðurhúsbyggingarnar hjá
Friðheimum í Reykholti. Byrjað
var að færa plöntur inn í uppeld-
ishúsið í fyrri viku, en það er einn
hluti af fjórþættri byggingu sem
auk uppeldishúss samanstendur
af vörumóttöku, pökkun og gróð-
urhúsi.
Knútur Rafn Ármann hefur rekur
Friðheima ásamt eiginkonunni,
Helenu Hermundardóttur, og
fjölskyldu frá 1995. Þau fagna því
25 ára afmæli á þessu ári.
Knútur segir að byrjað verði að
færa plöntur inn í gróðurhúsið sjálft
í þessari viku, en það er tvískipt.
Munu tvöfalda framleiðsluna
og rúmlega það
„Með þessari byggingu munum
við tvöfalda okkar framleiðslu og
rúmlega það. Magnið ræðst af því
hvernig við röðum í það plöntum
fyrir smátómata og stóra tómata.
Ef við miðum við framleiðslu
á hefðbundnum tómötum, þá væri
hægt að framleiða þarna um 100
kg á fermetra á ári. Ræktunarrýmin
í þessari byggingu eru um 4.600
fermetrar, þannig að framleiðsla á
slíkum tómötum gæti verið nærri
500 tonn á ári.“
Knútur segir að ræktun Piccolo
tómata, eins og þau séu mikið að
framleiða, skili kannski um þriðj
ungi í vigt á við hefðbundna tómata.
„Við munum bæta við ræktunina
hjá okkur á Piccolotómötunum og
einnig í hefðbundnu tómötunum,“
segir Knútur.
Leggja áherslu á bragðgæði
Friðheimar voru útnefndir
framúrskarandi fyrirtæki 2020
af Creditinfo og hafa verið út
nefndir fyrirmyndarfyrirtæki í
rekstri árin 2017, 2018, 2019 og
2020. Friðheimabændur leggja
áherslu á að rækta tómata með
mestu bragðgæðum sem völ er
á og í góðri sátt við náttúruna.
Tómatarnir eru ræktaðir allt árið
um kring með fullkominni tækni
á vistvænan hátt þar sem græn
orka, tært vökvunarvatn og líf
rænar varnir gera tómatana ferska
og heilsusamlega. /HKr.
Eitt helsta stolt Friðheima er ræktun
á Piccolotómötum sem þykja afar
bragðgóðir. Þess má geta að
umbúðirnar eru ekki úr plasti heldur
náttúruvænu efni sem brotnar
auðveldlega niður í náttúrunni.
Nýja gróðurhús Friðheima er hér fremst á myndinni. Það er 5.600 fermetrar að flatarmáli og auk gróðurhúss er þar
uppeldishús, pökkun og vörumóttaka. Myndir / Friðheimar
Starfsfólk Friðheima hefur verið í óða önn við að gera nýja gróðurhúsið
klárt. Hér er rafvirkinn, Helgi Guðmundsson í Hrosshaga, að tengja dælukerfi
hússins sem er mjög öflugt.
Ostamálið farið að vinda upp á sig:
Úttekt á framkvæmd tollamála í burðarliðnum
– Talið er að málið sé viðamikið og taki margra mánaða rannsóknarvinnu þar sem fleira er undir en innflutningur á ostum
Alþingi samþykkt undir lok nóv-
ember beiðni níu þingmanna
Miðflokksins um að úttekt færi
fram á framkvæmd tollamála
hjá Skattinum. Skoðun þessara
mála var þegar komin í gang
hjá sérfræðingum innan tollsins
og Ríkisendurskoðun skoðar nú
framkvæmd úttektar á málinu.
Aðdragandi málsins var umræða
um meint lögbrot við tollmeðferð
vegna innflutnings á ostum og
misræmi í upplýsingum frá ESB
löndum um útflutning á ostum og um
innflutning á sömu ostum til Íslands
á öðrum tollnúmerum.
Bændasamtök Íslands (BÍ)
og Landssamband kúabænda
(LK) sendu Bjarna Benedikssyni
fjármálaráherra tölvupóst þann 28.
maí 2020, þegar rúm tvö ár voru liðin
af gildistíma samningsins. Erindið
var innflutningur á osti í töluverðu
magni sem fluttur var inn á röngu
tollnúmeri og þar með tollfrjáls sem
jurtaostur, en seldur á Íslandi sem
venjulegur ostur. Vísað var til þessa
bréfs í umræðum á Alþingi.
Starfshópur settur í málið
Þann 24. september 2020 skipaði
fjármála og efnahagsráðuneytið
starfshóp til að skoða hvort
misræmi væri að finna milli
magns í útflutningstölum úr
gagnagrunni Evrópusambandsins
og innflutningstölum Hagstofu
Íslands vegna ákveðinna tegunda
landbúnaðarvara, þ.e. nautakjöts,
svínakjöts, kjúklingakjöts og
mjólkurafurða. Niðurstöður þess
starfshóps voru birtar að morgni 22.
október. Þar er m.a. bent á að það
þurfi að auka nákvæmni í skjölun og
eftirfylgni við tollafgreiðslu.
Áframhald boðað
á vinnu starfshóps
„Við viljum fara nánar ofan í þetta
og ég hef þess vegna ákveðið
að þessari vinnu skuli haldið
áfram,“ sagði Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra í umræðum
á Alþingi þann sama dag. Í
framhaldinu fóru níu þingmenn
Miðflokksins fram á það að úttekt
færi fram á framkvæmd tollamála og
var það samþykkt. Úttekt slíkra mála
annast Ríkisendurskoðun sem er ein
af undirstofnunum Alþingis. Það er
því ljóst að úttekt mun fara fram.
Gæti snúist um hundruð
milljóna króna
Samkvæmt heimildum Bænda
blaðsins er málið mjög viðamikið
og talið er að það snúist um að rík
issjóður hafi orðið af hundruðum
milljóna króna vegna meintrar
rangrar tollmeðferðar við innflutn
ing. Snýst það ekki eingöngu um
innflutning á ostum, því ábendingar
hafa einnig borist um hugsanlegt
misferli við innflutning á kjöti
og mögulega fleiri landbúnaðar
afurðum.
Þorsteinn Sæmundsson,
þingmaður Miðflokksins, sagði í
grein sem birtist á vefritinu Vísi
30. nóvember að þarna hefðu
evrópskir ostar breytt eðli sínu á leið
yfir hafið á leið til Íslands. Þessar
eðlisbreytingar höfðu í för með sér
gerbreytta tollmeðferð. Ætla mætti
að „sparnaður innflytjenda“ vegna
þessa hafi numið um 300 milljónum
á síðustu tólf mánuðum. Þarna er
þorsteinn samt eingöngu að tala
um meint misferli við innflutning
á ostum. Í niðurlagi greinar sinnar
sagði hann:
„Undanskot gjalda og skatta hafa
verið landlægt vandamál á Íslandi
ærið lengi. Löngu er kominn tími til
að taka á þessari ósvinnu. Ekki ein
asta verður ríkissjóður af réttmætum
tekjum heldur skekkja öll undan
skot heilbrigða samkeppni. Von mín
stendur til að ráðherra fjármála og
þingmeirihluti hans sjái loks ljósið
og samþykki hærri fjárheimildir til
tolleftirlits við fjárlagaafgreiðslu nú
fyrir jólin.“
Tollurinn skoðar málið
Samkvæmt fyrirspurn blaðsins til
tollayfirvalda í sumar, var tollurinn
þá þegar byrjaður að skoða málið og
í svari sem barst í júlí kom fram að
ábendingarnar væru til skoðunar af
sérfræðingum embættisins en fjöldi
mála sem vísað verður í feril fyrir
endurákvörðun aðflutningsgjalda
samkvæmt tollalögum lægi ekki
fyrir. Vonir stæðu til að staðan
skýrist töluvert á haustmánuðum
eftir vinnu sérfræðinga.
„Reynast ábendingarnar rétt
ar gætu fyrstu málin sem byggja
á ábendingum verið kynntar inn
flytjendum á þessu ári. Við meðferð
mála er nauðsynlegt að standa rétt
að málsmeðferðarreglum skv. tolla
lögum og stjórnsýslulögum,“ sagði
m..a í svarinu.
Allavega margra mánaða vinna
að mati Ríkisendurskoðunar
Skúli Eggert Þórðarson ríkisendur
skoðandi sagði aðspurður
síðastliðinn mánudag, að þegar
forkönnun á málinu væri lokið yrði
gerð áætlun hjá Ríkisendurskoðun
um úttektina. Ekki væri hægt að
meta umfangið fyrr en þetta lægi
fyrir, en ljóst væri að slík úttekt tæki
allavega nokkra mánuði. /HKr.
Snjóblásarar
Við erum með
eitt stærsta
snjóblásara
úrval landsins.
Hjá okkur
finnur þú rétta
snjóblásarann
handa þér.
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Það verður væntanlega fleira
en innflutningur á ostum sem
tollayfirvöld og Ríkis endurskoðun
munu gera úttekt á. Mynd / Úr safni