Bændablaðið - 03.12.2020, Side 14

Bændablaðið - 03.12.2020, Side 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 202014 HLUNNINDI&VEIÐI HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS Fæðuöryggi er til staðar þegar allir menn, á öllum tímum, hafa raunverulegan og efnahagslegan aðgang að nægum, heilnæmum og næringarríkum mat sem fullnægir þörfum þeirra til að lifa virku og heilsusamlegu lífi. Þetta er skilgreining Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) frá árinu 1996 og segir allt sem segja þarf þegar spurt er: Hvað er fæðuöryggi? Á næstu vikum mun Guðrún Hulda Pálsdóttir blaðamaður fjalla um fæðuöryggi í nokkrum hlaðvarpsþáttum á Hlöðunni. „Áhugi á matjurtarækt og sjálfbærni heimilisins fékk mig ofan í þá kanínuholu sem þessir þættir mínir eru afsprengi af. Ég hef velt fyrir mér hversu hátt hlutfall af mat heimilisins ég gæti raunhæft borið í hús frá ætigarðinum mínum og gert smá tilraunir til þess. Ég hef líka velt fyrir mér matvælum sem Íslendingar flytja inn, en gætu kannski mögulega ræktað og framleitt hér á landi sjálfir. Það er ótrúlega gaman að sjá frumkvöðla þróa og framleiða nýjungar, sjá eldhuga byggja upp vistræktargarða, það er jafn rosalega áhugavert að hverfa aftur til fortíðar og sjá að það er ekki meira en ein kynslóð síðan við vorum í raun sjálfbærari en við erum í dag. En handan útópískrar hugmyndar um Ísland sem sjálfbæra matarkistu minnir hvimleiður raunveruleikinn okkur á að við erum eyland á norðurhjara veraldar. Við erum hluti af heimi og háð aðflutningi, við erum rúm 300.000 einstaklingar í heimi sem þarf að fæða 7 billjónir. Loftslagsbreytingar, pólitík, viðskipti, heimsfaraldrar, allt hefur þetta áhrif. Ég ætla að gera atlögu að því að tækla öll þessi mál á sem aðgengilegastan hátt í þáttunum,“ segir Guðrún Hulda sem fær til sín fjölda viðmælenda sem á einn eða annan hátt tengjast fæðuöryggi. Í þáttunum hyggst hún m.a. fjalla um þætti fæðukeðjunnar frá landbúnaðarframleiðslu, mat­ vælavinnslu, flutninga og verslun og neyslu. Það sem sagan kennir okkur Hún fer einnig ofan í sögu fæðuöryggis í íslenskri fjölmiðla­ umræðu en í þau fáu skipti sem fjallað var um fæðuöryggi í fjölmiðlum á síðustu öld var það oftast einn maður, dr. Björn Stefánsson, sem mundaði pennann. „Ég er sannfærður um, að yfir­ leitt þyrfti ekki nema nokkurra mínútna mál til að skýra þetta fyrir útlendingi, svo að hann skildi, að það væri óvitaskapur að nýta ekki gæði landsins til að tryggja fæðuöryggi. Það er stutt að líta til Grænlands. Þar er lítil sem engin fóðurræktun og engar mjólkurkýr og ekki garðyrkja. Þar þyrfti ekki langa stöðvun aðdrátta til að fólk yrði hungurmorða. Það er óvita­ skapur að gera sér ekki grein fyrir þessu,“ segir Björn m.a. í aðsendri grein í Tímanum árið 1991. Í forvitni sinni fletti Guðrún Hulda upp dr. Birni í símaskránni og hringdi í hann. Það varð úr að hann arkaði til hennar í Bændahöllina og þáði kaffispjall sem heyra má í fyrsta þættinum. Matvælastefna kynnt Vopnfirðingurinn Kári Gautason búfjárerfðafræðingur ræddi um fæðuöryggi frá fjölbreyttum hliðum í öðrum þætti hlaðvarpsins. Samræður spunnust meðal annars um eldsneyti og orku­ gjafa, laukrækt, tilgátur að smá­ forritum, danska verslunarhegðun og birgðastöður einstaklinga og þjóðar. Tilefni samtalsins var vinna verkefnahóps, sem Kári sat í, um mótun matvælastefnu fyrir Ísland, sem hefur verið í mótun síðustu misserin. Stefnunni er ætlað að flétta saman málefni matvæla þver­ faglega og fjallar hún um tengsl þeirra við lýðheilsu, byggðarmál og stöðu neytenda sem og sam­ spili matvælaframleiðslu og lofts­ lagsbreytinga um leið og henni er ætlað að efla ímynd Íslands sem matvælalands. Formaður verkefnahópsins, Vala Pálsdóttir, mun kynna efni stefnunnar í hlaðvarpinu samhliða útgáfu hennar. Fæðuöryggi kemur út aðra hverja viku og má hlusta á þættina á vefsíðu Bændablaðsins, bbl.is sem og á öllum helstu streymisveitum. Marghliða hugtak um mat FRÉTTIR Fyrirhugað að byggja upp gestaaðstöðu á minjastaðnum á Gáseyri í Eyjafirði: Stefnt er að því að reisa tilgátuþorp á svæðinu Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti nýverið að auglýsa tillögu að deiliskipulagi minja- staðar á Gáseyri. Ætlunin er að byggja upp aðstöðu á svæðinu svo hægt verði að taka á móti gestum á minjastaðnum. Stefnt er að því að reisa tilgátuþorp á svæðinu. Skipulagssvæðið í heild er 33,6 hektarar að stærð og er að hluta til um að ræða friðlýst minjasvæði hins forna verslunarstaðar á Gáseyri. Innan skipulagssvæðisins er fyrir­ hugað að útbúa aðstöðuhús, kirkju, koma upp salernum, auk þess sem gert verður bílastæði og lagðir göngustígar um svæðið þannig að það verði aðgengilegra fyrir gesti og gangandi. Í núgildandi aðalskipulagi Hörgár­ sveitar er gert ráð fyrir að á Gásum verði uppbygging tengd miðalda­ kaupstaðnum sem þar var í eina tíð. Skipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu Hörgársveitar til 21. des­ ember næstkomandi en er einnig aðgengileg á heimasíðu sveitar­ félagsins. /MÞÞ Miðaldadagar hafa verið haldnir á Gáseyri frá árinu 2003. Í núgildandi aðalskipulagi Hörgársveitar er gert ráð fyrir að á Gásum verði uppbygging tengd miðaldakaupstaðnum sem þar var í eina tíð. Myndir / Minjasafnið á Akureyri Um 2.000 manns hafa árlega ferðast aftur til fortíðar með því að sækja miðaldadaga heim. Engir Miðaldadagar voru þó haldnir á liðnu sumri vegna kórónuveirufaraldurs en stefnt að því að halda þá á ný dagana 16.–17. júlí næsta sumar. Hríseyjarviti 100 ára Hríseyjarviti varð 100 ára í byrjun nóvember, en fyrst var kveikt á vitanum 6. nóvember árð 1920 og hann formlega tekinn í notkun fyrir sjófarendur. Fyrirhugað var að halda upp á daginn en vegna aðstæðna í þjóðfélaginu var ákveðið að geyma það til vors. Fimm metra hár og friðaður Á vef Hríseyjar segir að Hríseyjarviti sé 5 metra hár steinsteyptur turn. Þann 1. desember árið 2003 var vitinn friðaður af menntamálaráðherra. Tilgangur Hríseyjarvitans er að vera leiðbeiningarmerki fyrir siglingar inn og út Eyjafjörðinn og merkja greiða leið sem hægt er sigla eftir án þess að lenda í ógöngum og rekast á sker og boða. Hann varar sjófarendur með lituðum hættuhornum um svæði sem ekki skal sigla á, og hvítu ljósi þar sem hreinan sjó er að finna og skipin laus við hættur. /MÞÞ Hríseyjarviti er hundrað ára en ekki ekki var hægt að halda upp á tímamótin vegna aðstæðna í samfélaginu. Hríseyingar gera sér þess í stað dagamun næsta vor. Guðrún Hulda þáttastjórnandi.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.