Bændablaðið - 03.12.2020, Side 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 21
kyndingu húsnæðis með jarðhita og
hreinni raforku.
Vissulega skyggir það á hrein-
leikamynd orkuframleiðslu á
Íslandi að héðan selja íslensk orku-
fyrirtæki aflátsbréf sem þau kalla
hreinleikavottorð um uppruna orku.
Komið hefur fram í fréttum að þessi
aflátsbréf hafa verið notuð, m.a. í
Hollandi, til að blekkja neytendur
þar sem fyrirtæki geta sagst vera að
framleiða vöru með hreinni orku
frá Íslandi sem eru hrein ósann-
indi. Enda er það útilokað þar sem
engir raforkuflutningar fara fram
frá Íslandi til annarra landa. Öðru
máli gæti gegnt ef hér væri fram-
leitt vetni með raforku frá íslensk-
um vatns- eða vindorkuverum og
það síðan selt til útlanda. Þá væri
hægt að láta slíku vetni fylgja vott-
orð um hreinan uppruna. Sala á
aflátsbréfunum eða hreinleikavott-
orðunum þýðir að Orkustofnun á
Íslandi verður að taka inn í upp-
runaskráninguna á Íslandi mengun
frá upprunalandi kaupenda bréf-
anna. Þannig stóð einungis eftir að
9% raforku á Íslandi á árinu 2019
var sögð framleidd með endurnýj-
anlegum orkugjöfum. Samt heldur
sama stofnun því fram að 99,9%
raforkunnar sé framleidd með
endurnýjanlegum hætti og viður-
kennir þannig að sala upprunavott-
orða sé blekkingaleikur.
Það sem skekkir líka þessa
mynd um mengun í heiminum er
að mestu mengunarvaldarnir, eins
og orkuframleiðsla og stóriðnaður,
eru fyrir utan sviga þegar rætt eru
um aðgerðir og refsingar í loftslags-
málum.
Losun CO2 sögð nema
8,7 tonnum á íbúa í ESB
Í skýrslu Eurostat kemur fram
að losun gróðurhúsalofttegunda
í ESB ríkjunum 27 var samtals
3.893.100.000 tonn í CO2 ígildum
(um 3,9 milljarðar tonna) á árinu
2018. Það gerir 8,7 tonn á hvern
einasta íbúa að meðaltali og hafði
lækkað um 1,9 tonn á íbúa frá árinu
2000. Það eru tölur án Bretlands, en
útganga þess þýðir að losun gróð-
urhúsalofttegunda í ESB ríkjunum
eykst að meðaltali um 0,1 tonn á
hvern einasta íbúa. Það þýðir að
Bretar voru þá að losa minna en
meðaltal ESB ríkja sýnir. Þarna
er verið að nota tölur samkvæmt
mælikerfi sem gengið var út frá við
gerð Parísarsamkomulagsins þar
sem stóru tölurnar eru utan sviga.
Þýskaland með 2.489 tonna
losun á CO2 á ferkílómetra en
10,8 tonn á mann
Ef tölur um losun á CO2 eru skoð-
aðar í öðru ljósi og settar í samhengi
við land, raunverulega losun, fjölda
verksmiðja og orkuvera og stærð
ríkja í ferkílómetrum, þá lítur dæmið
allt öðruvísi út. Samkvæmt tölum
Eurostat nam losun Þýskalands á
gróðurhúsalofttegundum 2018 sam-
tals 888,7 milljónum tonna ígilda
CO2. Ef því er deilt niður á stærð
landsins, um 357.340 ferkílómetra,
þá nemur losunin rétt tæpum 2.487
tonnum á ferkílómetra.
Ef þessu er hins vegar deilt niður
á hvern einasta af um 82 milljón-
um íbúa Þýskalands, þá voru þeir
að meðaltali að losa um 10,8 tonn
af CO2 á ári hver um sig (10,7 sam-
kvæmt Eurostat).
Ísland með 60 tonna losun af
CO2 á km2, en 17,8 tonn á mann
Samkvæmt sömu tölum í sömu
skýrslu var heildarlosun Íslands 6,2
milljónir tonna af CO2 á árinu 2018.
Ef því er deilt niður á flatarmál
landsins (102.775 km2), þá gerir
það um 60,3 tonn á ferkílómetra,
eða aðeins um 2,4% af losuninni
í Þýskalandi.
Ef þessu er hinsvegar deilt niður
á hvern íbúa Íslands 2018 (348.450)
þá nam losunin um 17,8 tonnum
á mann, eða um 73% meira en
losunin var í Þýskalandi. Talan er
reyndar 17,5 samkvæmt Eurostat
og þá væntanlega miðað við eldir
íbúatölu og hafði aukist um 1,2
tonn á íbúa frá árinu 2000.
Einungis Luxemborg er sögð
með meiri losun á mann eða 20,3
tonn af CO2 ígildum. Þetta er síðan
borðið á borð fyrir þjóðina af stjórn-
völdum og ESB sem staðreynd um
sóðaskap Íslendinga í loftslagsmál-
um og að við stöndum okkur næst
verst allra Evrópuþjóða!
Ef við tökum síðan einungis
heildar kolefnislosunina á Íslandi
eins og hún er gefin í skýrslu
Eurostat, og reiknum það í hlut-
falli af heildarlosuninni í þýska-
landi án allra annarra viðmiðana,
þá er útkoman margfalt ýktari.
Þjóðverjar voru að losa rúmlega
143 sinnum meira en Íslendingar.
Samt ætlast umhverfisráðherra til
að við borgum refsiskatt fyrir okkar
losun.
Fljótvirkasta leiðin til að
lækka CO2 losunartölur á
Íslandi er að fjölga íbúum
Það hefur vakið athygli að á meðan
Íslendingar búa við þá margsönnuðu
staðreynd að raforka hér á landi er
nær 100% framleidd með endurnýj-
anlegum hætti, þá eru Íslendingar
eigi að síður sæmdir þeim vafasama
heiðri af Evrópusambandinu að vera
næstmestu sóðarnir í losun á koltví-
sýringi út í andrúmsloftið, næst á
eftir Lúxemborg. Það er að vísu
miðað við höfðatölu og vega álverin
á Íslandi þar langþyngst í þessu ríf-
lega 360 þúsund manna þjóðfélagi.
Ef íbúar hér væru talsvert fleiri, þá
væri staðan allt önnur.
Augljósasta og fljótlegasta leiðin
fyrir Íslendinga til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda, eða öllu
heldur til að lækka losunartölur sam-
kvæmt framangreindum útreikn-
ingum, væri því að fjölga íbúum
Íslands snarlega. Við þurfum ekki
að fara nema í 610.000 íbúa til að
„menga minna“ en Þjóðverjar. Við
gætum meira að segja náð því marki
fyrr með því að fá kannski 100.000
Þjóðverja til að skrá lögheimili sitt
á Íslandi sem myndu þá dragast frá
íbúatölu Þýskalands. Þá gætum við
líka greitt þeim fyrir slíkan flutning
á ríkisfangi með smá hluta af þeim
refsisköttum sem ráðherra hyggst
láta Ísland greiða til óskilgreindra
útlendinga og áhættufjárfesta vegna
kolefniskvótakaupa fyrir að standa
sig ekki í loftslagsmálum.
Með sömu aðferðafræði og
ríki heims leyfa sér að nota í
útreikningum á kolefniskvótum
og viðmiðunum í losun gróður-
húsalofttegunda, þá gætu íbúar
á Akureyri eða Reykjavík skellt
nær allri skuldinni af loftmengun
Íslendinga vegna rekstrar álvera á
Reyðfirðinga, Hafnfirðinga og íbúa
Hvalfjarðarsveitar og verið bara í
fínum málum.
Það eitt og sér sýnir vel í hvaða
ógöngum þjóðir heims eru með
mengunartölur sem síðan eru not-
aðar til að búa til algjörlega nýja
huglæga söluvöru sem eru kolefn-
iskvótar. Slíka kvóta eru fjársterkir
aðilar farnir grimmt að fjárfesta í til
að hagnast á síðar.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs-
íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. desember 2020.
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
– Lýsing á eign og því sem henni fylgir
– Ástand eignar og staðsetning
– Stærð, öldi svefnplássa og byggingarár
– Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Fyrsti markaðurinn á viðskipt
um með kolefniskvóta er runnin
undan rifjum sérfræðinga ESB
og heitir The EU emissions trad
ing system (EU ETS). Er þetta
kerfi sagt vera „hornsteinn“
stefnu ESB í baráttunni við lofts
lagsbreytingar.
Þetta kerfi gefur mönnum
möguleika á að menga út í það
óendanlega svo lengi sem menn
eru viljugir til að kaupa losunar-
kvóta á móti losun á CO2. Einhver
þarf á endanum að borga fyrir þetta
og það gerist með því að kvóta-
kaupunum er auðvitað velt út í
verðlagið og almenningur borgar
brúsann. – sniðugt? Allavega finnst
uppfinningamönnum kolefnishag-
kerfisins það.
Kolefnishagkerfi aðeins að hluta
nýtt í baráttu gegn losun CO2
Í Skýrslu Alþjóðabankans frá því
í maí 2020, „State and Trends og
Carbon Pricing 2020“, kemur fram
að kolefniskvótaviðskiptakerfi
ESB, „European Union Emissions
Trading System (EU ETS)“, hafi
leitt til innleiðingar á 61 aðgerð, þar
af 31 vegna kvótaviðskipta og 30
vegna setninga kolefnisskatta í hinu
ýmsu ríkjum, þar á meðal Íslandi.
Þetta nái yfir 12 gígatonna losun á
CO2. Þá segir líka í skýrslu sjóðsins
að ríkisstjórnir víða um heim hafi
í gegnum þetta skattlagningakerfi
náð sér í tekjur upp á 45 milljarða
dollara á árinu 2019.
Um 40% af þessum tekjum fór
ekki í aðgerðir til að draga úr loft-
mengun, heldur beint í ríkishítina
á hverjum stað. Samt er fullyrt
að þetta kolefnisviðskiptakerfi sé
alfarið hannað til að standa undir
aðgerðum til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Þarna
liggur það fyrir svart á hvítu í
skýrslu Alþjóðabankans, að með
innleiðingu á þessu kolefnisvið-
skiptakerfi er verið að blekkja
almenning.
Spáð að tonnið af CO2
fari í 80 dollara 2020 og
í 100 dollara árið 2030
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir
að þótt kolefnisverð hafi verið að
hækka, þá sé það of lágt á sumum
svæðum til að standa undir kröfum
Parísarsamkomulagsins. Æðsti
kjarni þeirra sem fjalla um kolefn-
isverðið áætla að kolefnisverðið á
þessu ári nái að minnsta kosti 40-80
dollurum á tonn af CO2 og verði
komið í 50-100 dollara á tonnið
árið 2030.
Í ágúst 2020 birtist frétt í
Financial Times um kolefnis-
kvótakerfi Evrópusambandsins. Þar
kemur fram að lengi hafi verið tor-
velt að búa til verðmiða á kolefnis-
kvóta sem síðan var ætlað að vinna
gegn losun CO2. Allt í einu áttuðu
stærstu áhættufjárfestingasjóðir
(hedge funds) í olíubransanum
sig á að þarna gæti verið verslun-
arvara sem hægt væri að hagnast
verulega á. Í kjölfarið fór verðið að
hækka og var kolefnistonnið í haust
komið í 30 evrur (35-36 dollarar).
Var þetta talið hafa áhrif á verðlag
hjá raforkufyrirtækjum, stáliðju-
verum og fleiri greinum. Þetta er
samt talsvert undir væntingum
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem
spáði í vor að verðið færi í 40-80
dollara á tonnið.
Þróun á kolefnisverði á skjön
við markaðslögmál
Þróun verðs á kolefniskvótum
hefur á síðustu mánuðum verið
þvert á öll eðlileg markaðslögmál,
því að vegna lokunar fyrirtækja í
COVID-19, minni eftirspurn og
efnahagskreppu þá ætti kolefn-
iskvótaverð að lækka að mati
Financial Times. Það hefur hins
vegar ekki gerst á undanförnum
mánuðum, þvert á móti. Verðið
hefur verið að hækka. Að vísu kom
nokkurt bakslag í upphafi COVID-
faraldursins en síðan rauk verðið
upp aftur.
Áhættufjárfestar uppgötva
ný gróðatækifæri í
kolefnisviðskiptum
Blaðið segir að þetta skýrist af því
að ný tegund fjárfesta sé komin
inn á markaðinn sem hafi engar
áhyggjur af skammtímaáhrifum á
markaði. Þeir kaupa kolefniskvóta
á háu verði til að selja síðar á enn
betra verði. Enda vita þeir að búið
er að stilla fyrirtækjum og ríkis-
stjórnum upp við vegg af kolefn-
ishagkerfinu þannig að þeir sem
mælast með mikla mengun verða
skyldaðir til að kaupa kolefnis-
kvóta til að mæta þeirri mengun.
Afleiðingin verður svo auðvitað
hærra vöruverð og þannig græða
allir á þessu nýja kolefnishagkerfi.
Nema almenningur sem borgar
brúsann á endanum eins og venju-
lega.
Kolefniskvótar ganga kaupum og sölum
Kolefnishagkerfi notað til að ná
peningum inn í almenna eyðslu
Einungis 11,6% af orku
framleiðslu Evrópu sam bandsins
var á árinu 2018 framleiddur í
vatnsorkuverum og 11,5% í
vindorkuverum. Þá voru 18,2%
framleidd með kolum og brún
kolum. Af níu ríkjum sem fram
leiða brúnkol var Þýskaland
langstærst með 45% af fram
leiðslunni. Á áttunda áratug
síðustu aldar voru t.d. forsíður
helstu blaða í Evrópu og aðrir
fréttamiðlar uppfullir af fréttum
af súru regni vegna kolabruna
og einkum vegna bruna á hinum
óhreinu brúnkolum sem losaði
mikið af brennisteinsdíoxíði út
í andrúmsloftið.
Samkvæmt úttekt Evrópu-
sambandsins sem gefin var út af
Euostat, hagstofu þeirra í ESB,
þann 14. desember síðastliðinn,
var 76,9% af orkugjöfum sam-
bandsins óendurnýjanlegir á árinu
2018. Nýrri tölur virðast ekki fyr-
irliggjandi. Af þessu eru 9,3% kol
og 8,9% með brúnkol, sem er jafn-
framt langversti mengunarvaldur-
inn af öllum orkugjöfum sem völ
er á í heiminum.
Austur-Evrópubúar ekki
verstir í nýtingu brúnkola
Það vekur athygli að þvert á það
sem flestir halda þá eru það ekki
Austur-Evrópuríkin sem eru mestu
sóðarnir í vinnslu og brennslu
brúnkola, heldur velmegunarlandið
Þýskaland. Það er hins vegar
líka fjölmennasta ríki ESB með
82 milljónir íbúa svo hvert tonn
í losun á CO2 og ýmsum öðrum
skaðlegum lofttegundum hefur
háan útþynningarstuðul.
76,9% af raforku ESB er framleidd með
óendurnýjanlegum orkugjöfum