Bændablaðið - 03.12.2020, Qupperneq 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 202026
LÍF&STARF
Mýkt lambsullarinnar skapar ný tækifæri
Undanfarin þrjú ár hefur fyrir
tækið Varma þróað nýtt íslenskt
lambsullarband í samstarfi við
Ístex sem unnið er úr ull af ásetn
ingum. Markmiðið með verkefninu
var að þróa band sem væri mýkra
en hefðbundið einband sem notað
er í vélprjón og um leið auka virði
afurða íslenskra sauðfjárbænda.
Nú eru ýmsar vörur frá VARMA
úr bandinu komnar á markað og
hefur þeim verið vel tekið auk þess
sem ýmis þekkt íslensk vörumerki
eru farin að láta VARMA framleiða
fyrir sig vörur úr nýja lambsullar
bandinu.
„Eftir margháttaðar prófanir og
endurbætur í öllu ferlinu frá bónda
til vöru hefur tekist að ná frábærum
árangri. Þetta er mál sem margir
bændur tengjast og enn fleiri hafa
áhuga á. Það hafði alltaf verið þessi
gagnrýni með íslenska ullarbandið
að það stingi svo mikið, svo ég fór á
fjörur Ístex í von um samstarf með að
þróa mýkra band sem svo sannarlega
tókst,“ segir Páll Kr. Pálsson, fram
kvæmdastjóri og eigandi VARMA.
Minna þvermál lambsháranna
Textílverkfræðingur Ístex, Sunna
Jökulsdóttir, kom með góða þekk
ingu inn í þróunarvinnuna.
„Við höfðum áður skoðað mögu
leikana á að skilja að togið og þelið
en það eru ekki til neinar vélar sem
gera það nógu vel þegar þarf að gera
það í einhverju magni. Þá fengum
við þá hugmynd að prófa lambsull
ina, en þvermál háranna þar er mun
minna en á fullorðnu fé. Eftir því
sem þvermálið eykst því harðara
prjónavoð fær maður og því meira
stinga toghárendarnir sem standa út
úr. Það er talað um míkrónþvermál
í þessu og á meðan íslensk ærull
er um 34 míkrón þá er til dæmis
merínóull í kringum 20 míkrón. Við
náðum íslensku lambsullinni niður í
24 míkrón og erum því ansi nálægt
merínóullinni í mýkt,“ útskýrir Páll
og segir jafnframt:
„Lambsullin sem nýtist í þessu
ferli er af ásetningum, það er þau lömb
sem fá að lifa og eru rúin eftir að þau
eru sett í hús á haustin. Langstærstur
hluti af mjúkri ull í heiminum er af
lömbum og er til dæmis uppistaðan
í merínóullarframleiðslu í löndum
eins og Ástralíu og NýjaSjálandi.
Vegna veðurfars er hægt að rýja öll
lömb þar áður en þau fara í slátrun
svo þar er mun meira magn af mjúkri
ull í boði.“
Ullar- og þvottaferli
Það var að ýmsu að huga í ferlinu
frá bónda til fullunninna vara hjá
VARMA og segir Páll undanfarin ár
í þróunarvinnunni bæði hafa verið
krefjandi og skemmtileg.
„Það sem hefur skipt gríðarlega
miklu máli er að lágmarka allt í
ferlinu sem gerir ullina, bandið og
prjónavoðina harða. Þar eru til dæmis
rúningurinn, þvotturinn og þurrkunin
mjög mikilvægir þættir sem og að öll
efni og þurrkun séu þannig að ullin
verði sem mýkst og meðfærilegust í
vinnslu. Einnig þarf að passa upp á
að ullarfitan sé ekki öll þvegin úr og
lagði Ístex til heilmikla vinnu við að
finna út úr þáttum sem að því sneru.
Við gerðum líka heilmargt og skipt
um til dæmis alfarið yfir í náttúruleg
efni við þvott og mýkingu og breytt
um þurrkunarferli voðarinnar ásamt
ýfingu hjá okkur til að fá meiri fyll
ingu inn í bandið þegar búið var að
þvo voðina,“ segir Páll og bætir við:
„Síðan prófuðum við að láta
Ístex lita í nokkrum litum hluta af
fyrstu kembunni, sem var 300 kíló,
og komumst að því að litunin hefur
áhrif á mýktina svo þá hófst ferli í
kringum það að minnka þau áhrif.
Vorið eftir voru framleidd 900 kíló
af bandi sem við framleiddum alls
kyns VARMAvörur úr og prófuðum
okkur áfram. Eftir það var bandið
orðið eins mjúkt og við töldum
okkur geta náð því og þá hófst alvöru
magnframleiðsla á lambsullarbandi
fyrir okkur hjá Ístex og erum við nú
komin með band í 18 litum. Þannig
að þetta er búið að vera mikil þró
unarvinna og í raun tímamótaverk
efni sem hefur kostað okkur yfir 15
milljónir króna. Við fengum styrk úr
Framleiðnisjóði landbúnaðarins en
Rannís hefur hafnað okkur í þrígang,
sem er mjög sérstakt finnst okkur.“
Tengja saman hönnun
og markaðssókn
Fyrirtækið hefur ekki farið varhluta
af ástandinu sem tengist heimsfar
aldrinum á þessu ári en í upphafi
árs störfuðu 20 manns hjá VARMA.
Tveir þriðju hlutar veltunnar hafa
undanfarin ár komið frá sölu til er
lendra ferðamanna.
„Við erum með um 140 vöru
númer í yfir 500 útfærslum í dag
og um 65% af VARMAvörunum
okkar eru úr íslenskri ull. Eftir að
lambsullarbandið var endanlega
tilbúið fórum við og kynntum það
fyrir ýmsum fyrirtækjum og höfum
í kjölfar þess aukið framleiðslu hjá
okkur verulega fyrir sérmerki eins
og Cintamani, Ellingsen, Epal,
Farmers Market, Kormák & Skjöld,
Rammagerðina og ýmsa fleiri, sem
og ýmsa hönnuði eins og Magneu,
Helgu Lilju, Sigrúnu Unnars og
fleiri, sem hafa tekið íslenska
lambsullarbandinu afbragðs vel.
Við erum líka byrjuð að kynna
nýja lambsullarbandið fyrir ýmsum
erlendum aðilum, sem hafa verslað
við okkur í gengum tíðina. Okkar
markmið með lambsullarverkefn
inu er að vinna með ullina á nýjan
hátt með áherslu á sjálfbærni og
umhverfismeðvitaðan hátt og nú
erum við komin á þann stað að fara
að tengja hönnun og markaðssókn
saman,“ útskýrir Páll og segir jafn
framt:
„Minn draumur hefur alltaf
verið að allar VARMAvörurnar
séu úr íslenskri ull og þetta er
stórt skref í þá átt. Minn metnað
ur er að skipta þeim vörum sem
við framleiðum úr innfluttu bandi
yfir í íslenskt lambsullarband. Það
hefur verið megintilgangurinn með
þessari vegferð sem og að tengja
okkur meira við íslenskan land
búnað, sauðfjárbúskap, hönnuði
og íslenska náttúru, því það eru
mikil lmarkaðstækifæri í því, sem
við ætlum að nýta á næstu árum.“
/ehg
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri og eigandi Varma, segir að framleiðsla
fyrir íslensk þekkt vörumerki hafi aukist verulega á árinu með tilkomu
bands úr lambsull en hér sýnir hann peysur sem framleiddar eru fyrir
Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar.
Sólveig Davíðsdóttir var iðin á sníðaborðinu hjá Varma þegar blaðamaður
Bændablaðsins leit við á dögunum. Hér sníðir hún flíkur fyrir hönnunarmerkið
MAGNEA. Myndir / ehg
Unnið við að sauma vörur í framleiðslusal fyrirtækisins í Ármúla í Reykjavík.
Hér sýnir Birgir Einarsson prjónameistari vörur með Páli eiganda.
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Úr Pop-up verslun VARMA á Skólavörðustíg sem var opnuð nýverið.