Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 29
stað, fyrsta útgáfa af því korti kom út
núna í júní. Nú í fyrsta skipti höfum
við kort sem sýnir hvaða svæði á
Íslandi eru nýtt til beitar og hvaða
svæði ekki. Og nú þegar þetta kort
liggur fyrir verður hægt að fara að
safna upplýsingum um fjölda sauð-
fjár á hverju beitarsvæði.“
Samstarfið við bændur
hefur gengið mjög vel
– Hvernig hefur samstarfið við
bændur gengið?
„Það hefur gengið mjög vel, þeir
eru mjög áhugasamir um verkefnið
og hafa komið með margar góðar
athugasemdir og tillögur. Í sumar
vorum við í sambandi við tugi bænda
um að fá að setja upp vöktunarreiti á
þeirra landi og alltaf var okkur tekið
vel og fólk almennt mjög áhugasamt.
En það er kannski ekki skrítið, þetta
verkefni er okkur öllum til hagsbóta
enda viljum við öll það sama, við
viljum að landið sé í góðu ástandi
og að það sé nýtt á sjálfbæran hátt og
við viljum geta sýnt fram á breytingar
sem verða vegna aðgerða okkar,“
segir Bryndís.
– Þið eruð að vakta og meta
ástand gróður- og jarðvegsauðlinda
landsins, hvernig fer þessi vöktun
fram?
„Við erum að setja út fasta vökt-
unarreiti (50 x 50 m) úti um allt land.
Í hverjum reit eru metnir þættir sem
gefa til kynna hvert ástand gróður-
og jarðvegsauðlindarinnar er. Þessir
þættir eru t.d. jarðvegsgerð, jarð-
vegsdýpt, gróðurhæð, gróðurþekja,
tegundasamsetning, jarðvegsrof og
hrjúfleiki yfirborðs. Aðferðafræðin
byggir mikið á þeirri aðferðafræði
sem hefur verið nýtt og prófuð m.a.
í Bandaríkjunum og Ástralíu en
aðlöguð að íslenskum veruleika.
Unnið verður að uppsetningu
vöktunarreitanna næstu sumur og er
áætlað að setja um 200 vöktunarreiti
út á ári. Við stefnum að því að setja
upp a.m.k. 1.000 vöktunarreiti í allt
og áætlað er að endurmæla hvern
reit á 5 ára fresti sem hluti af vöktun
auðlindanna.“
Nota GPS-staðsetningartæki
til að fylgjast yfir 100 lambám
– Þið hafið verið að nota sauðfé með
GPS-tækjum, hvað getur þú sagt mér
um það og hvernig hafa kindurnar
tekið verkefninu og hvaða niður-
stöður eiga tækin á þeim að gefa?
„Það er rétt, síðustu þrjú árin
höfum við nýtt staðsetningartæki
til að fylgjast með notkun yfir 100
lambáa, frá mismunandi landsvæð-
um, á beitarsvæðum sínum. Tækin
gefa okkur staðsetningu kindanna á
6 tíma fresti og höfum við á þessum
þremur sumrum safnað upp gífur-
legu gagnasafni. Gögnin gefa okkur
innsýn í atferli sauðfjár í sumarhög-
um m.a. geta þau sagt til um í hvern-
ig land sauðfé sækir helst, hve stórt
svæði hver kind nýtir og hvernig
þessir þættir breytast t.d. eftir ástandi
lands, veðurfari og landsvæðum.
Við erum rétt svo byrjuð að vinna
úr gögnunum en þau munu vera mikil
uppspretta fróðleiks í framtíðinni.
Eftir því sem við best vitum hefur
aldrei verið gerð rannsókn á ferðum
sauðfjár á þeirri stærðargráðu sem
áætlað er í þessari rannsókn. Þessi
rannsókn er því einstök á alþjóða-
vísu auk þess sem hún er fyrst sinnar
tegundar á Íslandi. Niðurstöðurnar
munu nýtast jafnt innan og utan
Landgræðslunnar, í að bæta beitar-
stjórnun. En þess má geta að verk-
efnið var styrkt af Framleiðnisjóði
landbúnaðarins sem er að hætta
núna um áramótin,“ segir Bryndís
og bætir við: „Fyrir utan vísinda-
legt gildi rannsóknarinnar þá er þetta
alveg rosalega skemmtilegt verkefni.
Kindurnar og eigendur þeirra hafa
tekið verkefninu vel, m.a. eru nokkr-
ar sögur um að tækin hafi hjálpað til
við að finna eftirlegukindur sem hafa
farið í ævintýraferð.“
Eigum þó enn þá stórt
verkefni fyrir höndum
– Heilt yfir, hvernig metur þú
ástand gróðurs og jarðvegsauð-
linda Íslands á þessum tíma, erum
við á réttri leið eða er allt í skötulíki
hjá okkur?
„Þegar stórt er spurt, jú, jú, það
hefur ýmislegt batnað á síðustu
árum og áratugum en við eigum þó
enn þá stórt verkefni fyrir höndum
til að ástandið verði eins og best
verður á kosið. Samkvæmt fyrsta
stöðumati GróLindar, sem unnið
er upp úr fyrirliggjandi gögnum,
lendir aðeins 25% landsins í tveim-
ur bestu ástandsflokkunum á meðan
um 45% lands lenda í tveimur
verstu ástandsflokkunum sem ein-
kennast af svæðum þar sem virkni
vistkerfa er takmörkuð og/eða rof
mjög mikið. Þó að eitthvað af þess-
um svæðum í verstu ástandsflokk-
um séu náttúrlega með litla virkni
og/eða mikið rof, t.d. áreyrar eða
svæði mjög hátt yfir sjó, er töluvert
af svæðum þar sem ástandið gæti
verið mun betra. Við erum einmitt
að vinna að því núna að aðgreina
þessi svæði.“
Full bjartsýni
– Ertu bjartsýn eða svartsýn á stöðu
mála?
„Ég er full bjartsýni, það eru
margir hlutir að breytast í rétta átt
og GróLind er eitt atriðið í þeirri
vegferð. Ástand lands er oft verra
en það gæti verið en þetta er bara
vandamál sem þarf að leysa og það
er fullt af lausnum, við þurfum bara
að koma öll saman að borðinu og
finna þessar lausnir. Lausnir sem
bæði eru til góða fyrir þessar auð-
lindir en einnig einstaklinga sem
lifa af þessum auðlindum, búsetu í
landinu og samfélagið í heild, en til
þess að það gerist þurfum við öll að
koma með opinn hug að borðinu en
einnig þurfa stjórnvöld að tryggja
að regluverkið geri okkur kleift að
nýta þessar lausnir. Ég myndi t.d.
vilja sjá í framtíðinni að við værum
með stétt endurheimtabænda sem
fengju greitt fyrir að bæta þess-
ar auðlindir, það myndi draga úr
kostnaði þjóðarinnar vegna skuld-
bindinga okkar í loftslagsmálum,
styrkja lífsskilyrði í dreifðari
byggðum og tryggja búsetu í
landinu.“
– Í hvað á svo að nýta gögnin?
„Gögn um ástand lands og
breytingar á ástandi og um staðsetn-
ingu beitarsvæða er hægt að nýta
á margs konar hátt. Þær gagnast
bændum við að skipuleggja beitar-
nýtingu, við skipulagningu leita og
til að sjá hvaða áhrif mismunandi
landnýting hefur. Þær munu verða
nýttar í starfi Landgræðslunnar m.a.
í skipulagningu og forgangsröðun
endurheimta aðgerða. Þær gagn-
ast sveitarstjórnum og skipulags-
yfirvöldum í skipulagningu svæða
undir þeirra umsjón og þær gagn-
ast stjórnvöldum m.a. í því að meta
losun frá landi. Þær munu einnig
gera okkur kleift að sýna fram á
ávinning aðgerða okkar m.a. í
landbótum. Þar að auki erum við
að byggja upp gríðarlegt gagnasafn
sem mun nýtast vísindamönnum
framtíðarinnar að svara spurningum
m.a. um áhrif hlýnunar á auðlindirn-
ar og árangur þeirra endurheimtaað-
gerða sem við erum í í dag.
Kannski er þó mikilvægasta hlut-
verk GróLindar að gefa hlutlaust
mat á stöðu auðlindanna hverju
sinni og breytingar á stöðunni – mat
sem við getum notað til að taka upp-
lýstar ákvarðanir um að taka næstu
skref,“ segir Bryndís.
Ættum að geta gefið út
ástandsmat eftir nokkur ár
– Niðurstöður verkefnisins, hvenær
munu þær liggja fyrir og hvers
konar niðurstöður megum við bú-
ast við?
„Fyrstu niðurstöður verkefnisins
lágu fyrir í sumar, þegar við gáfum
út stöðumat af ástandi auðlindanna.
Þar nýttum við okkur fyrirliggjandi
kort til að meta ástandið á grófum
kvarða.
Að nokkrum árum liðnum, þegar
við höfum náð að safna nægilegu
magni á gögnum, ættum við að
geta gefið út ástandsmat byggt á
samþættingu gagnanna sem við
söfnum, bæði í vöktunarreitum og
með vöktun landnotenda, og gervi-
tunglamyndum. Með þeim niður-
stöðum munum við fá nákvæmara
mat á ástandi lands og einnig geta
séð hvernig ástandið er að breyt-
ast frá einum tíma til annars. Þá er
hægt að fara að tengja breytingar
m.a. tengdar landnýtingu og veður-
fari við breytingar á ástandi lands.
Við gáfum líka út fyrstu útgáfu af
kortlagningu beitarsvæða sauðfjár á
sama tíma. Við erum núna að vinna
í því að bæta þessa kortlagningu og
á áætluninni er að kortleggja einnig
beitarsvæði annarra grasbíta sem
hafa áhrif á auðlindirnar t.d. hrossa,
hreindýra og gæsa.“
GróLind er mikilvæg
fyrir landið í heild
– Er eitthvað að lokum sem þú vilt
koma á framfæri?
„Já, ég vil bara undirstrika hvað
verkefni eins og GróLind er mikil-
vægt, ekki eingöngu fyrir landnot-
endur og vísindasamfélagið heldur
fyrir Ísland sem heild. Okkur ber
skylda að fara vel með auðlindir
landsins og grunnurinn að því að það
sé hægt er þekking eins og GróLind
skapar. GróLind mun sýna okkur,
svart á hvítu, hvar við erum að gera
vel og hvar við þurfum að bæta
okkur,“ sagði Bryndís að lokum.
/MHH
Fást í bókabúðum og beint frá forlagi
Sími 892 0855, flokiforlag@internet.is
Suðureyri –
Athafnasaga
• Frá Suðureyri í Tálknafirði stunduðu
Norðmenn hvalveiðar í tvo áratugi
• Kópur BA 138 var gerður út á
selveiðar í Íshafinu
• Íslensk hvalveiðistöð var í fimm ár
á Suðureyri
• Selveiðar í íshafinu frá Austfjörðum
og víðar
Falleg kilja,196 bls.
Tvær góðar
að vestan
Nótabátur leggst
í víking
Sögur og sagnir að vestan
• Víkingaskipið á Þjóðhátíð
Vestfirðinga 1974,
• Mótun Vestfirðingsins
• Í grautarskóla hjá Þorbjörgu
• Sr. Jón Kr. Ísfeld og fleira og fleira
Innbundin í vandaðri kápu, 175 bls
Vöktunarreitir eru settir út í mismunandi vistkerfum en í melum taka mælingar oft stuttan tíma.
Mynd / Bryndís Marteinsdóttir
Í hverjum vöktunarreit er hlutfall mismunandi plöntuhópa og óvarins jarð-
vegs mæld á línu innan reitsins með því að setja niður pinna og skrá alla
þá plöntuhópa sem snerta pinnann. Alls eru gerðar 200 pinnamælingar í
hverjum reit. Mynd / Áskell Þórisson
Kind með GPS-tæki, ásamt lömbum sínum. Gögnin úr tækinu gefa innsýn
í atferli sauðfjár í sumarhögum, geta m.a. sagt til um í hvernig land sauðfé
sækir helst, hve stórt svæði hver kind nýtir og hvernig þessir þættir breytast
t.d. eftir ástandi lands, veðurfari og landsvæðum. Mynd / Sigurjón Einarsson
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR í flestar
gerðir dráttarvéla