Bændablaðið - 03.12.2020, Side 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 31
• Vélageymslur og fóðurskýli
í öllum stærðum.
• Mjög hagstætt verð. Lambhagavegi 13
113 Reykjavík
PROTEC
S. 840-6800
tomas@protec.is
EKTA
JÓLABÓK!
JENNY COLGAN
HEFUR ALDREI VERIÐ BETRI.
Síðastliðin föstudag var kynning
hjá Icelandic Startup á 9
frumkvöðlafyrirtækjum sem
undanfarnar 10 vikur hafa tekið
þátt í viðskiptahraðlinum Til
sjávar og sveita og vil ég hvetja
alla til að taka sér smá stund í
að horfa á þessar kynningar og
finna orkuna og sköpunarkraftinn
sem býr í þessu fólki og skynja um
leið þau fjölbreyttu og óendanlegu
tækifæri sem felast í eflingu og
nýsköpun í landbúnaði. Formleg
dagskrá Hraðalsins hefst á 27 mín.
Slóðina má finna hér: https://www.
facebook.com/tilsjavarogsveita/
videos/376150730325172
Það er mikið frumkvöðlaeðli
og sköpunarkraftur í genum okkar
Íslendinga enda hefðu forfeður
okkar varla þraukað hér í gegnum
aldirnar án þess. Mörg okkar erum
samt þannig gerð að við þorum ekki
að fylgja þeim hugmyndum eftir sem
við fáum og óttumst að þær séu ekki
nógu góðar og/eða við verðum að
athlægi meðal félaga og kunningja
ef hugmyndin er ekki nógu góð. Við
ykkur vil ég segja, ekki hvika frá því
að fylgja draumum ykkar eftir. Það
er eðlilegt í öllum þróunarferlum að
eitthvað mistakist. Mistökin greinir
maður og finnur leiðir til að bæta
hugmyndina og þróa áfram þangað
til að hugmyndin er tilbúin til að fara
í loftið. Mistökin geta verið þungbær
og nagað mann, það þekki ég vel af
eigin raun en það er enn verra að
bregðast sjálfum sér og fylgja ekki
sinni innri sannfæringu eftir.
Það er ekki einfalt að vera
frumkvöðull og mikið af góðum
hugmyndum sem verða aldrei að
veruleika því frumkvöðlana skorti
úthald, fjármagn og aðstoð til að
klára verkið. En áframhaldandi og
aukinn stuðningur við frumkvöðla er
gríðarlega mikilvægur til að breyta
og lyfta íslenskum landbúnaði upp
á næsta þrep.
Gríðarleg óbeisluð auðlind
Staðreyndin er að innan land
búnaðarins býr gríðarleg óbeisluð
auðlind og við getum með sam
stilltu átaki marfaldað fram
leiðsluverðmæti landbúnaðar sem
er í dag á bilinu 5060 milljarðar
króna (framleiðsluverðmæti sjáv
arútvegs er í dag um 140 millj
arðar) og þannig gert landbúnað
að stærri atvinnugrein en sjávarút
veg. Hvernig er þetta hægt kann
einhver að spyrja og svarið við því
er einfalt.
Horfum ca 4050 ár til baka á
stöðu sjávarútvegs á þeim árum.
Afurðaverð var lágt og meðferð
sjávaraflans var mjög ábótavant
sem leiddi af sér lágt verð, lélega
nýtingu hráefnis og mjög slaka
almenna afkomu fyrirtækja í sjáv
arútvegi þrátt fyrir að veiðin væri
oft og tíðum meiri en er í dag.
Hvað breyttist? Jú, aðgangur
að auðlindinni var takmarkaður og
því neyddust menn til að fara að
hugsa um hvernig þeir hámörkuðu
ávinninginn af hverju veiddu kg í
stað þess að reyna bara að veiða
fleiri kg. Þetta hefur svo leitt af
sér að íslenskur sjávarútvegur er
í dag meðal þeirra allra fremstu í
heiminum og söluverð á flestum
afurðum með því hæsta ef ekki það
hæsta sem markaðurinn borgar fyrir
slíkar vörur þar sem ímynd vörunn
ar í hugum neytenda er mjög sterk
og er táknmynd hreinleika, gæða
og sjálfbærni. Samhliða hefur vaxið
hér upp fjöldi hátæknifyrirtækja
sem sérhæfa sig í hönnun og fram
leiðslu búnaðar fyrir sjávarútveg
sem er seldur um allan heim.
Sömu tækifæri og í sjávarútvegi
Íslenskur landbúnaður hefur ná
kvæmlega sömu tækifæri og sjávar
útvegurinn hefur og margir myndu
jafnvel halda fram að tækifæri land
búnaðarins væru mun meiri þar sem
fjölbreytni afurða sem rúmast undir
regnhlíf landbúnaðarins er miklum
mun fjölbreyttara en sjávarútveg
urinn hefur úr að spila.
Menn eyða oft löngum tíma og
mörgum orðum í að karpa um að
útflutningur afurða landbúnaðar
sé draumsýn og muni aldrei skila
ásættanlegu verði, auk þess sem
framleiðsla okkar sé svo smá að við
munum aldrei afkasta neinni eftir
spurn að ráði. Ég er sammála því
að við verðum seint magnútflytj
endur af landbúnaðarafurðum en
fyrir okkur liggja mikil tækifæri á
ýmsum sértækum mörkuðum þar
sem gæði og ímynd vörunnar skipt
ir mun meira máli en verð. Með
tilkomu sölu í gegnum alþjóðleg
vöruhús eins og Amason opnast
nýjar víddir fyrir örþjóð eins og
okkar til að koma framleiðslu á
framfæri því ekki þarf lengur að
birgja upp hundruð vöruhúsa með
dýrum lagerum heldur er ýmist
hægt að senda vöruna frá framleið
anda við pöntun eða koma vörum
fyrir á lagerum í 23 vel staðsett
um vöruhúsum í Evrópu, Asíu og
Ameríku.
Ekki má heldur gleyma því að
landbúnaður snýst ekki bara í dag
um „feitt ket og smjör“ með fullri
virðingu fyrir þeirri framleiðslu,
heldur eru áskoranir í loftslagsmál
um og betri nýtingu matvæla að
opna alveg nýjar víddir fyrir vörur
og hugmyndir hvort sem það lýtur
að t.d. bindingu CO2 eða bættri nýt
ingu ýmiss konar auka og hliðar
afurða. Þarna er fjöldi tækifæra
fyrir vísindasamfélagið að koma
inn og þróa lausnir á hnattrænum
vanda sem síðan er hægt að selja
áfram um allan heim.
Framtíð landbúnaðarins er björt
ef við þorum að taka nauðsynleg
skref til móts við framtíðina – fram
tíð sem hrópar á vörur og lausnir
sem við getum verið virkir þátt
takendur í að skapa og kynna fyrir
heiminum.
Finnbogi Magnússon
Tækifærin í
landbúnaði
LESENDABÁS