Bændablaðið - 03.12.2020, Page 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 202038
Bókin Hestar eftir Hjörleif Hjartarson og Rán Flygenring:
Myndir og textar haldast í hendur
– Þjóðlegur fróðleikur og neftóbaksfræði fyrir byrjendur
Hjörleifur Hjartarson og Rán
Flygenring hafa endurnýjað kynn-
in í bókagerð nýrrar „dýrabókar“
sem heitir Hestar, en bókin Fuglar,
sem þau gerðu saman árið 2017,
fékk góðar viðtökur. Hestar ætti
að höfða til alls hestaáhugafólks
– en ekki bara hestamanna – því
bókin er full af áhugaverðum
og skemmtilegum, þjóðlegum
fróðleik hestatengdum, í máli og
myndum.
Það er Rán sem teiknar myndirnar
en Hjörleifur er höfundur textans.
Rán starfar sem teiknari og hug-
myndasmiður. Hún myndlýsir bækur
og blöð, krotar á veggi og frímerki
og snarteiknar allt frá brúðkaupum til
ráðstefna. Rán segir að hún eigi sjálf
nokkurn bakgrunn í hestamennsku.
„Ég byrjaði nú bara á reiðnámskeið-
um í Víðidal. Tíu til ellefu ára gömul
tók ég við starfi kúsks í reiðskólanum
og hestaleigunni Þyrli og vann þar
myrkranna á milli í nokkur ár. Gott
ef ég á ekki bara alla mína vinnusemi
því tímabili að þakka.
Síðan var ég í mörg ár meðfram
skóla að ríða út og þjálfa með Ástu
Láru og Kjartani sem voru með sína
ræktun á Langholtsparti, Markús var
þar auðvitað í öndvegi og ómetan-
legt að fá að kynnast honum og
hans afkvæmum. Ég var tvö sumur
í Þýskalandi hjá Styrmi Árnasyni í
tamningum og þjálfun og svo ein-
hverjum árum seinna hjá Ingimari og
Margréti á Flugumýri í Skagafirði.
Það var ævintýralega gaman og
lærdómsríkt. Á síðustu árum hefur
þetta verið voða gloppótt hjá mér,
ég hef mest verið að ríða út sem
hobbímanneskja og þá aðallega á
Nýja-Sjálandi þaðan sem minn betri
helmingur er. Ég ætla samt að taka
gamla feita Leik minn á hús eftir
jól.“
Myndir og texti haldast
þétt í hendur
Um samstarf þeirra Hjörleifs segir
hún, að það sé „gott og fumlaust“ – en
þetta er þriðja bókin sem þau vinna
saman. Árið 2018 kom út Sagan um
Skarphéðin Dungal sem setti fram
nýjar kenningar um eðli alheimsins.
„Ferlið okkar er þannig að Hjörleifur
byrjar á að rannsaka og safna saman
efni og semja texta. Þegar þessi vinna
er komin nokkuð vel á veg tek ég við
handritinu og raða því upp á opnur og
blaðsíður, móta kafla og þemu, bæti
við eða breyti því sem mér finnst eiga
að vera frásögn í mynd og teikna það
sem grípur mig og fangar helst. Þegar
mestu skissu- og hugmyndavinnunni
er lokið þarf að hreinteikna og síðan
fínpússa teikningar og texta svo allt
flæði vel saman. Þetta gerum við
Hjörleifur í samstarfi við ritstjóra.
Myndir og texti haldast þétt í hendur
í bókinni og í raun ómögulegt að að-
greina þessa hluta. Samstarfið okkar
fer þó alveg furðu orðalaust fram, við
sitjum hvort í sínum landshlutanum
og skiljum bara hvort annað án þess
að þurfa að eyða í það mörgum sím-
tölum eða fundum.“
Erfitt að teikna hross
Rán segir að efniviðurinn sé auðvitað
algjör gullkista, því af svo miklu sé
að taka. „Það er þó þekkt hvað er
erfitt að teikna hross og ég rak mig
heldur betur á þann vegg, það eru svo
margir vöðvar, bein og óvænt liðamót
að það má eyða heilli ævi bara í að
stúdera það. Halldór Pétursson er mín
helsta fyrirmynd í þessum efnum,
hann teiknar hesta með gríðarlega
sterka persónuleika og það var það
sem ég reyndi að gera í þessari bók
– að gefa hestunum karakter í stað
þess að einblína
á líffærafræðilega
nákvæmni.“
Bókin á rætur
í verkefni fyrir
Landssamband
hestamanna
Hjörleifur Hjartar-
son er kennari að
mennt en starfar
jöfnum höndum
við ritstörf, tónlist
og sviðslistir. Hann
stundar sauðfjárbú-
skap með fimmtán
ær en engan hest
sem stendur.
„Samstarf okkar
hófst þannig að
konan mín, Íris Ólöf,
sem þá var safnstjóri
á byggðasafninu
Hvoli á Dalvík, fékk
Rán með sér í vinnu
við að búa til sýningu
um sjófugla og ég var
fenginn í textamálin.
Það þróaðist síðan upp
í fuglabókina. Það lá
beint við að klára þessa
75-80 fugla sem við
getum kallað íslenska.
Hestabókin á raunar
líka rætur í öðru verk-
efni sem ég vann fyrir
Landssamband hestamanna. Það var
söng- og leikdagskrá um íslenska
hestinn sem við settum upp í Hörpu
á svokölluðum hestadögum árið 2014.
Yfirskriftin var „Hestaat í Hörpu“,
mjög metnaðarfullt og glæsilegt
dæmi þar sem Hilmir Snær fór á
kostum að leika Fjölni Þorgeirsson
á kafi í Reykjavíkurtjörn og hljóm-
sveitin Brother grass flutti alþekkt
og minna þekkt hestalög í geggjuðum
blúgrass-útsetningum. Við áttum von
á fullri Hörpu og síðan glóandi símum
frá landsmótsnefnd og svo alþjóð-
legt meik á heimsmeistaramótinu í
Herning í kjölfarið. En það gerðist
nú reyndar ekki. Það komu sárafáir
í Hörpu, aðallega boðsgestir minnir
mig og svo var bara hringt í Helga
Bjöss – aftur. En þetta efni átti ég
þegar við Rán ákváðum að gera næst
bók um hesta. Ekki spillti að Rán er
innvígð hestakona þannig að þetta var
skrifað í skýin,“ segir Hjörleifur um
forsögu bókarinnar.
Hann telur ör uggt að þau muni
vinna saman aftur að svipuðum verk-
efnum, en hvað það verður sé leyndó.
Ekki hestamaður en
lengi umgengist hesta
„Ég myndi aldrei telja mig hesta-
mann. Ég er bara sveitamaður og
hef umgengist hesta frá því ég
tuggði smjörið eins og sagt er í
Svarfaðardal. Það voru alltaf hestar
á Tjörn þar sem ég ólst upp og við
fórum mikið á hestbak en það voru
held ég bara tveir hnakkar en við
vorum sjö systkini. Það var því
mikið riðið berbakt. Reiðbuxur sá
ég aldrei heima, hvað þá hjálm. Ég
fer enn í lengri hestaferðir, helst
eina viku á hverju sumri og svo
auðvitað göngur á haustin. Þess
utan fer ég afar sjaldan á bak,“ segir
Hjörleifur þegar hann er spurður
af reynslu hans af viðfangsefninu.
Hann segir að bókin sé ekki
hugsuð fyrir neinn sérstakan
lesendahóp, hún sé fyrir alla;
unga sem aldna, hestamenn og
þá sem aldrei hafa komið á bak.
„Sjálfur er ég veikur fyrir þjóðleg-
um fróðleik og þetta er einhvers
konar svoleiðis bræðingur, nef-
tóbaksfræði fyrir
byrjendur. Sumt
af efninu er býsna
harðneskjulegt
fyrir ungar sálir
en þannig er nú
bara þessi saga.
Það vill loða við
hestabækur að
höfða fyrst og
fremst til hesta-
manna en þetta
er tilraun til að
brjótast út úr því
hestahólfi.
Mynd eftir
hest í bókinni
„Já vissulega,“
svarar hann
þegar hann er
spurður um
hvort mikil
heimilda vinna
liggi að baki.
„Það hefur
g r í ð a r l e g a
mikið verið
skrifað um
hesta á Íslandi.
Vandinn var
að takmarka
e f n i s v a l i ð
og síðan að
tálga textana. Það eru þarna
nokkur ljóð en hesturinn í ljóðum
og bókmenntum er annars að
mestu utan við efni bókarinnar.
Sömu sögu er að segja um marga
sögulega hesta, fræga gæðinga
og kynbótatröll. Okkar hestar eru
alþýðlegri – sniðugir karakterar.
Við lögðum upp með að texti og
myndir rynnu saman í eina frásögn.
Ljósmyndabækur með myndum af
íslenskum hestum í íslenskri náttúru
hafa slegið í gegn samfara alþjóð-
legum vinsældum íslenska hestsins.
Þetta er líka svoleiðis bók – heill
kafli með ægifögrum myndum eftir
Rán og engum texta.
Svo kveikja kannski myndir
texta. Þarna er til dæmis kafli um
hestana hans Stefáns í Möðrudal
bara af því að myndirnar hans áttu
erindi í bókina. Þær eru að vísu
endurskapaðar af Rán. En talandi
um myndir eftir aðra en Rán, þá
er ástæða til að vekja athygli á
að í bókinni er að finna mynd
eftir hestinn Skugga-Svein úr
Hafnarfirði. Líklega er þetta eina
hestabókin á markaðnum með
mynd eftir hest.“ /smh
BÆKUR&MENNING
Baróns-Skjóni til umfjöllunar.
Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring.