Bændablaðið - 03.12.2020, Qupperneq 40

Bændablaðið - 03.12.2020, Qupperneq 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 202040 Þingeyingar í sóknarhug Í fjáraukalagafrumvarpi 2020 kemur fram tillaga um heimild til kaupa á húsnæði í Mývatnssveit fyrir opinbera starfsemi. Um er að ræða húsnæði fyrir gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs, en jafnframt telur Skútustaðahreppur að mikil samlegðar- og nýsköpunartækifæri séu til staðar, verði af kaupum ríkisins á húsnæði Hótel Gígs í Mývatnssveit. Byggir á greiningarvinnu Ýmis nýsköpunartækifæri komu fram í greiningarvinnu íbúa í verkefninu Nýsköpun í norðri (NÍN) haustið 2019 og vorið 2020, en þá voru 30 íbúar Mývatnssveitar og Þingeyjarsveitar að störfum í rýnihópum NÍN. Að sögn Soffíu Kristínar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Mývatnsstofu og eins meðlima rýnihópa NÍN, var rýnihópastarf NÍN grundvöllurinn að mótun sex aðgerða sem miða að aukinni nýsköpun innan svæðisins, samhliða því að nýtt sveitarfélag verði í fararbroddi í baráttu við loftslagsbreytingar, tekið verði mið af tæknibreytingum og tækifærum tengdum þeim og byggðir upp og samnýttir innviðir sem treysta samkeppnishæfni svæðisins til lengri tíma. Uppbygging rannsókna- og nýsköpunarklasa forgangsaðgerð Fyrsta aðgerð NÍN fjallaði um uppbyggingu rannsókna- og nýsköpunarklasa við Mývatn, þar sem áhersla væri lögð á nýsköpun, menntun og rannsóknir. Rannveig Ólafsdóttir leiddi starf rýnihópsins sem fjallaði um aðgerðina. „Rýnihópurinn vann mjög vel saman, þrátt fyrir að COVID-19 hindraði hefðbundin fundahöld. Það má e.t.v. segja að íbúar Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps hafi tekið stökk inn í rafræna framtíð í rýnihópavinnunni, skjölum var deilt með rafrænum hætti og fundir voru haldnir á fjarfundaforritinu Zoom. Að mati rýnihópsins felur uppbygging rannsókna- og nýsköpunarklasa í sér samlegðaráhrif fyrir fámennar stofnanir, að starfa saman undir einu þaki, og jafnframt í mörgum tilvikum betri starfsaðstæður og starfsumhverfi. Í öðru lagi verður þverfaglegur ávinningur af uppbyggingunni, þ.e. aukin samvinna og upplýsingaflæði á milli stofnana, sem hefur í för með sér víðtækari þekkingu og margfeldisáhrif fyrir rannsóknir á náttúru, umhverfi og samfélagi, o.fl. Samstarf og samskipti eru lykillinn að því að umbreyta rannsóknum og þróunarvinnu í raunverulega nýsköpun, vöruþróun, viðskiptatækifæri, samfélagsumbætur og aukna velferð. Í þriðja lagi er það forsenda skilvirks nýsköpunarkerfis í þekkingarsamfélagi nútímans að fyrir hendi sé opið flæði þekkingar á milli fyrirtækja, háskóla og rannsóknastofnana,“ segir Rannveig og bætir við að mikil tækifæri felist ekki síður í frekari uppbyggingu Matarskemmunnar að Laugum, sem var jafnframt hluti af aðgerðum NÍN. Samstarf við háskóla Sumarið 2020 var lögð áhersla á samstarf við háskóla og þekkingarstofnanir í héraði. Háskólinn á Akureyri, Listaháskólinn og Þekkingarnet Þingeyinga voru þar í öndvegi en 13 frumkvöðlar og nemendur voru ráðnir í störf tengd aðgerðum NÍN og blésu þannig lífi í verkefnin. Vinnumálastofnun styrkti sumarstörf tengt NÍN, auk þess sem Nýsköpunarsjóður námsmanna studdi við verkefni tengt hönnun og hagnýtingu líftækni. Kolefnisbinding Önnur aðgerð NÍN sneri að kolefnisbindingu með skógrækt og nýtingu heyfyrninga við landgræðslu. Gróðursettar voru birkiplöntur á Hólasandi í samstarfi við Skógræktina og Landgræðsluna, auk þess sem nýttar voru gamlar heyrúllur frá bændum til landgræðslu í Bárðardal og nágrenni. Ungmenni sem störfuðu við verkefnið lærðu ýmislegt svo sem að mæla gróðurþekju, kyngreina víði, klippa hann og planta víðistiklingum. Eins voru mældir og lagfærðir göngustígar að Aldeyjarfossi og Sexhólagili. Sigurlína Tryggvadóttir leiddi þessa aðgerð og vinnur nú að skipulagningu svæða í Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi sem hentað geta til stærri skógræktarverkefna, en stefnt er að því að við uppfærslu aðalskipulags verði slíkir möguleikar ræddir sérstaklega. Stafræn leiðsögn og sameiginlegt vörumerki Auk aðgerða um kolefnisbindingu og uppbyggingu rannsókna- og nýsköpunarklasa, lögðu rýnihópar NÍN áherslu á uppbyggingu hring rásarhagkerfis og greiningu auðlinda, innviða, mannauðs og regluverks. Verður sérstaklega horft til þessa við gerð aðalskipulags sveitarfélaganna. Þá töldu meðlimir rýnihópanna að leggja ætti áherslu á stafræna leiðsögn um svæðið og uppbyggingu sameiginlegs vörumerkis gagnvart ferðamönnum, kaupendum matvæla og íbúum í nútíð og framtíð. Mývatnsstofa hefur haft veg og vanda að þeirri þróun, í samstarfi við nemendur Listaháskólans og Háskóla Íslands. Þróuð hefur verið frumgerð að veflausn sem gerir fólki kleift að kynnast sögu og menningu svæðisins, afþreyingu, gistingu, matvælum sem nálgast má beint frá býli og fleira. Að sögn Soffíu Kristínar er stefnt að því að styrkja ímynd svæðisins, m.a. með því að bjóða upp á bændamarkaði innan svæðisins og hvetja bændur og aðra frumkvöðla til að nýta Matarskemmuna á Laugum enn betur, en þar má finna viðurkennda aðstöðu til matvælaframleiðslu sem stendur frumkvöðlum til boða. /SKJ ÍSLAND ER LAND ÞITT Ein aðgerð Nýsköpunar í norðri sneri að kolefnisbindingu með skógrækt og nýtingu heyfyrninga við landgræðslu. Myndir / NÍN Landgræðsla með heyfyrningum í samstilltu átaki. Soffía Kristín Jónsdóttir. Rannveig Ólafsdóttir. Skjámynd af frumgerð stafrænnar leiðsagnar – Leiðarþing.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.