Bændablaðið - 03.12.2020, Side 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 45
Nýverið skrifuðu Breki
Karlsson formaður og Bryn
hildur Pétursdóttir frkv.stj.
Neytenda samtakanna, greinina
„Tollar, tap og traust“. Í þeirri
grein er m.a. eftirfarandi full
yrðing sett fram um tollasamn
ing sem gerður var við ESB
2015 og tók gildi 1. maí 2018.
„Samningurinn var mikilvægt
og löngu tímabært skref sem
hefur skilað neytendum lægra
verði.“ Mér þótti því tilefni
til að kanna hvort sannreyna
mætti fullyrðingu með því að
nálgast gögn frá Hagstofunni
frá þeim tíma þegar samningur
inn tók gildi og til dagsins í dag.
Meðfylgjandi mynd sýnir þróun
vísitölu neysluverðs samanbor
ið við verðþróun á kjöti sam
kvæmt sömu heimild.
Gögnin sýna skýrt að þessi
fullyrðing er einfaldlega röng.
Þ.e. kjöt hefur hækkað held-
ur meira en almennt verðlag í
landinu. Af hverju setja fulltrúar
Neytendasamtakanna svona fram
án þess að kynna sér málið? Í áður-
nefndri grein koma einnig fram
kunnuglegir frasar um það hvern-
ig tollverndin flytur verðmæti úr
vasa neytenda yfir til innlendra
framleiðenda og að samfélagið í
heild tapi. En lífið er nú meira en
excel og því hlýtur það að vera í
besta falli barnaskapur að halda að
með því að rýra stöðugt afkomu
heillar greinar (bænda í þessu til-
viki) sé hægt að skila einhverjum
ábata beint til neytenda. Afkoma
bænda hefur rýrnað verulega bæði
með tollasamningum sem gerðir
voru við ESB 2007 og 2015 og
svo nú síðast með því að breyta
fyrirkomulagi við útboð á tollkvót-
um. Það væri nú sárabót ef hægt
væri að sjá þess merki að það tjón
sem bændur hafa orðið fyrir myndi
þó ekki nema að einhverju leyti
skila sér í vasa neytenda. Myndin
sýnir hins vegar engin merki þess.
Hversu nærri á að ganga landbún-
aðinum áður en stjórnvöld þora að
taka á tollverndinni sem stöðugt
rýrnar að verðgildi?
Norsk laun og grískt verðlag
Í áðurnefndri grein er einnig
vitnað til nýlegrar skýrslu á vegum
ANR þar sem fram kemur að tollar
séu hvergi hærri en á Íslandi,
Noregi og Sviss. Hver vill vera
í samfloti með Norðmönnum og
Svisslendingum? Þar eru víst
allir að lepja dauðann úr skel, er
það ekki? Á meðan við komumst
ekki með umræðuna á það plan
að ræða um hversu háu hlutfalli
af ráðstöfunartekjum íslenska
vísitölufjölskyldan ver til kaupa
á matvælum til samanburðar
við önnur lönd verður umræðan
ekki ýkja málefnaleg. Auðvitað
viljum við öll norsk laun og grískt
verðlag, það er einfaldlega ekki
í boði. Ég velti því oft fyrir mér
þegar fjallað er um íslenskan land-
búnað og þá staðreynd að hann
nýtur tollverndar hver fréttin sé?
Við erum að stunda landbúnað við
mjög svo krefjandi aðstæður út frá
hnattrænni legu og tollverndin er
okkur því nauðsynleg. En svo ég
vitni nú aftur í excel að þá mun
hann alltaf gefa okkur þá niður-
stöðu að „hagkvæmast“ sé að láta
aðrar þjóðir sjá um að framleiða
matinn fyrir okkur. Fæðuöryggi,
kolefnisfótspor, sýklalyfjanotkun
og dýravelferð, eru þetta einhver
orð sem skipta neytendur máli?
Að sjálfsögðu, en þau eiga það
líka öll sameiginlegt að leiða til
hærra matvælaverðs.
Bændur hafa talað um að
vegna COVID og BREXIT
áhrifa séu forsendur tollasamn-
ingsins frá 2015 brostnar. Í
mínum huga voru aldrei nein-
ar forsendur fyrir samningi við
Evrópusambandið þar sem fórnað
var hagsmunum hvíta kjötsins til
að fá aukna tollkvóta fyrir mjólk-
urvörur og lambakjöt á markað
Evrópusambandsins. Vonandi
komumst við bændur sem allra
fyrst á þann stað að átta okkur
á því að heimamarkaðurinn er
okkar langmikilvægasti mark-
aður og honum eigum við fyrst
og síðast að sinna. Kannski er
það bara minnimáttarkennd hjá
mér en ég tel einfaldlega að við
eigum ekki möguleika á að keppa
á erlendum mörkuðum við bænd-
ur sem fá margfalda uppskeru pr.
flatareiningu lands, nota margfalt
magn af sýklalyfjum í sína fram-
leiðslu og annar tilkostnaður er
langtum lægri.
Hver er staðan í
svínaræktinni?
Hér er ekkert nýtt undir sólinni,
þ.e. bændur fá færri krónur í vas-
ann á meðan neytandinn þarf að
greiða fleiri. Félag svínabænda
er margbúið að benda á og vara
við þessari þróun síðustu árin en
án árangurs. Þannig vöruðum við
ítrekað við því að bæði tollasamn-
ingurinn sem gerður var 2015
en tók gildi 2018 og nýtt fyrir-
komulag við útboð á tollkvótum
(hollenska leiðin) myndi rýra af-
komu bænda án þess að neytendur
myndu njóta þess í hagstæðara
vöruverði. Þessi gögn staðfesta
það sem við höfum margoft sagt
áður. Gleymum því ekki að inn-
flytjendur á landbúnaðarvörum
hafa á þessu tímabili fengið um
3 milljarða endurgreidda frá rík-
inu (sem neytendur voru búnir
að borga) vegna oftekinna skatta
í formi tolla.
Stjórnlaus innflutningur
Þá er rétt að minna á að innflutn-
ingur á svínakjöti hefur farið úr
því að vera 6-10% í byrjun þessa
tímabils yfir í að vera orðinn um
fjórðungur af allri neyslu á svína-
kjöti. Þá er reyndar eftir að taka
tillit til þess að innfluttar pylsur og
unnar kjötvörur eru að uppistöðu
til úr svínakjöti þ.a. innflutningur
er í raun umtalsvert meiri. Hvað
þá heldur, ef satt reynist, að ekki
komi allur innflutningur fram í
opinberum tölum. Ef þessi þróun
heldur áfram styttist í að innflutt
svínakjöt fari fram úr innlendu í
neyslu. Svínabændur hafa margoft
kallað eftir því að dregin sé lína
í sandinn. Við teljum eðlilegt að
það sé stundaður innflutningur á
svínakjöti að einhverju marki en
fyrst og fremst til að anna eftir-
spurn í einstaka vöruliðum. En það
hljóta allir að sjá að þetta getur
ekki gengið svona lengur. Við fyrr-
greindar aðstæður getur svínarækt
ekki þrifist á Íslandi til framtíðar.
Þessa stöðu þarf að fara yfir í heild
sinni á sanngjarnan hátt.
Það hefur verið sorglegt að
vera vitni að áhuga- og getuleysi
stjórnvalda síðustu 15 árin í að
standa vörð um íslenskan land-
búnað. Bændur hafa líka fram að
þessu algjörlega sofið á verðinum.
Ég mun aldrei geta skilið hvernig
fulltrúar bænda hafa trekk í trekk
skrifað undir samninga um starfs-
umhverfi landbúnaðarins án þess
að þar sé einn stafur um tollvernd. Í
okkar hagsmunagæslu hefur verið
alltof mikil áhersla á að endurnýja
búvörusamninga og síðast var það
beinlínis gert á kostnað tollverndar
einsog allir vita sem vilja vita. Ég
gerði mjög vel grein fyrir þeirri
atburðarás á Búnaðarþingi árið
2016. Gleymum því ekki að við
erum að keppa við þjóðir þar sem
markaðsstærðir eru á skala sem við
eigum erfitt með að skilja.
Sem dæmi má nefna að Danish
Crown í Horsens í Danmörku slátr-
ar 100 þúsund grísum á viku. Til
samanburðar er slátrað innan við
80 þúsund grísum á ári á Íslandi.
Þannig verður íslenskur landbún-
aður seint eða aldrei samkeppnis-
fær við innflutt matvæli ef einungis
á að reikna dæmið í áðurnefndum
excel. Þetta umhverfi hefur leitt
af sér mikla óvissu í minni búgrein
og nú er svo komið að fjárfestinga-
styrkir sem hafa boðist svínarækt
allt frá árinu 2017 liggja að mestu
óhreyfðir. Úreldingarstyrkir voru
hins vegar tæmdir strax. Fóður
hefur hækkað mikið á þessu ári
og birgðir hafa safnast upp bæði
af innlendu og innfluttu kjöti og
erfitt að sjá hvernig greinin á að
komast klakklaust úr þessari stöðu.
Það hefur reyndar verið mjög
ánægjulegt að sjá hvernig núver-
andi forysta BÍ – með liðsinni
búgreinafélaga og annarra hags-
munasamtaka – hefur öll lagst
á árarnar að vekja athygli á því
hvernig fjarað hefur undan toll-
verndinni og vonandi mun sú
vinna skila einhverjum árangri.
Þrátt fyrir að staðan sé svona í
dag held ég að framtíðin sé björt
fyrir íslenskan landbúnað til
lengri tíma litið. Ég tel að bæði
pólitíkin og bændur séu að átta
sig á því að skynsamlegt sé að
tryggja tollverndina og að ein-
blína á að framleiða úrvalsvöru
fyrir innlendan markað og haga
framleiðslumagni í samræmi við
það. Neytendur gera aukna kröfu
um að fá heilnæma vöru og vilja
vita upprunann þ.a. það er margt
jákvætt í kortunum.
Ingvi Stefánsson,
formaður Félags svínabænda
„ ÞAÐ ER UNUN AÐ LESA ÞESSA BÓK.“
GAGNRÝNENDUR KILJUNNAR
Á FAGLEGUM NÓTUM
Tollasamningurinn sem tók gildi 2018
– hverju hefur hann skilað?
Ingvi Stefánsson.