Hugur og hönd - 2020, Blaðsíða 4
4 HUGUR OG HÖND 2020
Heimilisiðnaðarskólinn
Á meðal námskeiða sem boðið er uppá:
Þjóðbúningur kvenna
Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. Aldar
- sjá nánar á www.heimilisidnadur.is. Búningurinn er
klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur
mæta með saumavél og áhöld. Mikill hluti vinnunnar er
handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og
tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.
Knipl á þjóðbúning
Kennt er að knipla á upphlutsbak. Nemendur velja á
milli blúndu-, stiga-, nets- eða takkamynsturs úr gull-
eða silfurþræði á 20. aldar upphlut. Á 19. aldar upphlut
stendur valið á milli takka eða nokkurra mismunandi
leggingamynstra úr gull- eða silfurþræði og/eða silki.
Baldýring
Gullsaumur eða baldýring er gömul útsaumsaðferð sem
þekkt er víða um heim. Hér á landi hefur aðferðin einna
helst verið notuð á þjóðbúningum og í kirkjulegum
útsaumi. Kennd eru grunnatriði í baldýringu og nemendur
eru aðstoðaðir við að byrja á stærra verkefni, svo sem
upphlutsborðum.
Vefnaðarnámskeið, 5 vikur
Námskeiðið er ætlað byrjendum en hentar einnig þeim
sem vilja upprifjun í vefnaði. Allir þátttakendur fá vefstól til
umráða. Farið er í; grunnþætti uppsetningar, grunnbindingar
einskeftu og vaðmáls og samsettar bindingar. Lögð er
áhersla á hvernig nota má liti, efni og bindingar sem útkomu
á munstri. Kennari aðstoðar við val á verkefnum sem geta
verið værðarvoðir, púðar, borðrenningar, diskamottur o.fl.
Gamli krosssaumurinn
Kenndur er gamli íslenski krosssaumurinn (fléttuspor).
Nemendur gera fallega prufu með munstri úr Sjónabókinni
sem síðar má setja í púða eða í ramma.
Uppsetning á púðum
Á námskeiðinu er kennt að setja upp útsaum í púða.
Nemendur komi með nýjan eða gamlan útsaum og læra
að setja upp.
Refilsaumur
Refilsaumur er forn útsaumsaðferð en reflar skreyttu hús
og kirkjur á miðöldum. Útlínur eru saumaðar fyrst og síðan
er fyllt inn í fletina. Að lokum eru saumaðar aukaútlínur,
andlit eða önnur atriði sem þurfa áherslu. Refilsaumur er
einstaklega fallegur til að sauma út myndir og fyllta fleti.
Nemendur læra aðferðina og sauma litla mynd.
Kanntu að spinna á halasnældu? - Örnámskeið!
Kjörið námskeið fyrir þá sem vilja kynnast tóvinnu stuttlega.
Á einni kvöldstund læra nemendur að kemba ull og spinna
á halasnældu. Námskeiðið er hugsað sem kynning á
grunnhandtökum en vakin er athygli á lengra námskeiði
sem hægt er að sækja í framhaldinu.
Tóvinna
Lögð er áhersla á að leiðbeina í tóvinnu með sömu
aðferðum og notaður voru fyrrum, þ.e. taka ofan af, hæra,
kemba og spinna bæði á rokk og halasnældu. Spunnið er
þel og tog, notaðir viðeigandi kambar, útskýrð gömul heiti
og orðatiltæki um áhöld, ull og spuna. Námskeiðið hentar
jafnt byrjendum sem þeim sem áður hafa kynnst tóvinnu.
Orkering
Kennd er grunnaðferð við að hnýta blúndur með sérstakri
skyttu. Nemendur læra að lesa uppskriftir bæði skrifaðar
og eftir teikningum. Orkeraðar blúndur eru til dæmis
notaðar framan á peysufataermar, í skartgripi, dúka eða
aðra skrautmuni.
Töskugerð / leðurtöskur
Nemendur læra að sauma leðurtösku. Farið er í gegnum
það helsta sem þarf að hafa í huga við töskugerð, þ.e.
rennilásaísetningar, límingar, strappasaumur, lím styrkingar
o.fl.
Handlitun á garni
Á námskeiðinu læra nemendur bæði heita og kalda litun á
ullar-, silki-, hör- og bómullarbandi. Litað er með kemískum
litum. Nemendur koma með eigið garn – kjörið fyrir þá sem
eiga eitthvað af garni en ekki í réttum litum.
Eplakarfa / prjónakarfa
Kennd eru undirstöðuatriði í körfuvefnaði en námskeiðið
hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Nemendur
læra að gera stóra og myndarlega körfu. Körfugerðin tekur
tvö kvöld með heimavinnu. Hægt er að skreyta körfuna á
ýmsan hátt t.d. með lituðum tágum og snæri. Kennt verður
að lita körfuna í lok námskeiðs.
Sápugerð - örnámskeið!
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig sápa verður til og hvað
þarf af efnum og áhöldum til sápugerðar í föstu formi.
Algeng aðferð er kennd en fleiri nefndar. Kennslan hefst
á fyrirlestri en að honum loknum er sýnikennsla þar sem
gerð er sápa sem nemendur fá með sér heim.
Bókun á námskeið og greiðsla námskeiðsgjalda fer fram á heimasíðunni www.heimilisidnadur.is
Heimilisiðnaðarskólinn - Nethylur 2e - 110 Reykjavík
Netfang: skoli@heimilisidnadur.is - Sími: 551 5500
Opnunartími mánudaga-fimmtudaga kl. 9–18 og föstudaga kl. 9–16
Verslunin er opin mán. - fim. kl. 12–18 og fös. kl. 12–16
www.heimilisidnadur.is
www.facebook.com/heimilisidnadarfelagid