Hugur og hönd - 2020, Blaðsíða 35
HUGUR OG HÖND 2020 35
yfir eldi, þegið drykki, skoðað og handfjatlað alla þá
fallegu heimagerðu muni sem finnast í Skálanum.
Kát og glöð klæddust þau víkingaklæðum og myndir
voru teknar í gríð og erg. Dásamlegt skvaldur á
erlendri tungu og greinilegt að mikil ánægja var með
heimsókn þeirra í Skálann. Það sama gerðum við
systur, nutum þess að handfjatla fallegt handverk og
fá fræðslu um starfið frá stofnendum þessa
áhugaverða staðar. Það er mikils virði fyrir okkur
íslendinga að sú fræðsla sem gestum okkar jafnt
innlendum sem erlendum er boðið upp á sé unnin af
þeirri natni sem þau hjón leggja í starf sitt. Góðar
móttökur þeirra bera hróður okkar sem þjóðar og
skapar góðar minningar hjá gestum. Við þökkuðum
góðar viðtökur og héldum út í kvöldið á Þingeyri þar
sem plássið og Dýrafjörður sýndu fegurð sína í roða
júlíkvöldsins.
Sólveig Gyða Jónsdóttir
Súsanna Þ. Jónsdóttir
Ljósm. Súsanna Þ. Jónsdóttir
fatasaum og skreytingar og einnig skógerð. Þar
rifjaðist upp fyrir Borgnýju kunnátta hennar í
spjaldvefnaði úr KÍ sem og ýmsum útsaumssporum.
Síðan hefur hún notið leiðsagnar Neiella Glæsel í
fata- og skógerð, Eric Zehmke fornleifafræðings og
víkings í skógerð og leðurvinnslu, auk margra
annarra sem hafa orðið á vegi hennar í gegnum
tíðina. Hún hefur lesið ótal bækur um fatagerð og
annað handverk og bara allt sem tengist þessari
gömlu arfleifð, og grúskað í bókum frá Grænlandi,
Danmörku, Noregi og Ameríku, Shetlandseyjum.
Einnig lesið greinar og skoðað myndbönd um þennan
tíma og bara allt sem hún kemst í. Alltaf finnur hún
eitthvað nýtt sem bætist í kunnáttu- og
reynslubankann. „Svo lengi lærir sem lifir“ stendur
einhvers staðar og má segja að það eigi algjörlega við
um Borgnýju Gunnarsdóttur.
Takk fyrir móttökurnar
Þegar okkur bar að garði var hópur erlendra gesta að
ljúka heimsókn sinni, þar sem þau höfðu fengið
kynningu á landnámstímanum á Íslandi, bakað brauð
Víkingahetta.
Skæri í leðurhulstri. Garnkefli.