Hugur og hönd - 2020, Blaðsíða 20
20 HUGUR OG HÖND 2020
samlokukassa. Sandinum er
þjappað kringum hlutinn. Annar
kassi sem einnig er þéttfylltur af
sandi er settur ofan á. Að þessu
loknu er efri hluti kassans tekinn
af, módelið fjarlægt og kassinn
settur aftur saman, eftir stendur
holrúm eftir mótið. Þá er bráðnum
málmi hellt ofan í gat á efri
kassanum og holrúmið fyllt.
Ef við veltum fyrir okkur ferlinu
er það nokkurn veginn svona: Það
þarf að vinna hlutinn vel sem á að
taka afsteypu af, pússa hann,
rúnna af og laga sem best til, síðan
er hann lakkaður svo viðloðun
sandsins verði sem minnst. Þá er
hann formaður í sandinn (í
samlokukassanum) kassinn svo
opnaður og mótið tekið úr og svo
lokað aftur, þá er allt tilbúið til að
hella málminum í kassann. Þá er
safnað í deigluna (leirkrúsina
góðu) efni sem bræða á í verkið.
Það getur tekið talsverðan tíma
þar sem jafnvel þarf að brjóta
niður járnið sem í deigluna fer.
Það þarf oft töluverðan
undirbúning og mikla handavinnu
áður en hægt er að steypa
einstaka hluti í svona tilfellum.
Það tekur svo um 1-4 tíma eftir
málmtegundum að bræða málm
þannig að hægt sé að hella í mótin
þegar þau eru tilbúin. Síðan er
hvert verkefni að kólna í sólar-
Mót með hurðasnerlum.
Hurðasnerlar í vinnslu.
Deigla.