Hugur og hönd - 2020, Blaðsíða 12
12 HUGUR OG HÖND 2020
Forvarsla á kjól
Systurnar Halldóra og Nanna
Magnúsdætur komu færandi
hendi árið 2008 og færðu
Byggðasafninu Hvoli á Dalvík
kjól, sem hafði verið lengi í vörslu
fjölskyldunnar. Ég var
forstöðumaður safnsins þá og sá
samstundis að þarna var kominn
einstakur og fágætur gripur.
Gefendur kölluðu kjólinn altaris-
göngukjól sem vísar í að eigandi
og síðasti notandi kjólsins hafði
einungis notað flíkina spari og þá
aðallega við kirkjulegar athafnir.
Þetta var Steinunn Sigurðardóttir,
fædd í Sælu í Skíðadal árið 1844.
Árið 1916 flutti Steinunn til
Elínar Tóma sdóttur og Angantýs
Arngrímssonar frá Gullbringu í
Svarfaðardal en þau voru þá
búsett á Dalvík. Steinunn vann
við fiskverkun þar til hún lést
1922, en tók loforð af Elínu á
dánarbeði að kjóllinn yrði
varðveittur og það eru einmitt
afkomendur Elínar sem færðu
safninu kjólinn. Þá höfðu þrír
ættliðir varðveitt kjólinn. Hann
hafði borist frá Dalvík til
Þingeyrar og þar hafði hann verið
geymdur í þremur húsum. Það er
kraftaverk að kjóllinn skuli ekki
vera ónýtur því ef einhverjir
gripir þola illa langa geymslu þá
eru það textílar. Þeir eru auðveld
bráð rakaskemmda og mýs og
mölur hafa sérstakt dálæti á
textílum í dimmum skúmaskotum
húsa. Oft hafa kjólar sem þessir
endað sem tuskur eða úr þeim
hafa verið saumaðar aðrar flíkur.
Fjölskylda Elínar á hrós skilið
fyrir að hafa passað upp á kjólinn
og að lokum gefið hann safninu á
Dalvík þar sem hann á vissulega
heima. Hann er nú forvarinn og til
sýnis á þriðju hæð safnsins og
mun vonandi varðveitast í langan
tíma enn.
Hvað er svona merkilegt við
þennan kjól? spyrja eflaust
margir. Þetta er nú bara einhver
krumpuð drusla sem flestir hefðu
líklegast bara hent. Í þessari
samantekt mun ég segja frá því
þegar ég lagði land undir fót og
tók kjólinn með mér á forvörslu-
verkstæði Þjóðminjasafns Íslands
þar sem ég forvarði hann með
dyggri aðstoð Margrétar
Gísladóttur.
Kjóllinn er upphaflega úr svörtu
bómullarsatíni sem nú er upplitað.
Hann er handsaumaður með afar
fallegu spori og gerður af mikilli
kunnáttu og listfengi. Kjóllinn er
Byggðasafnið Hvoll á Dalvík
Kjóllinn var lagður til, nákvæm skoðun fór fram og hann mældur hátt og lágt. Fallegu tölurnar.