Hugur og hönd - 2020, Page 4

Hugur og hönd - 2020, Page 4
4  HUGUR OG HÖND 2020 Heimilisiðnaðarskólinn Á meðal námskeiða sem boðið er uppá: Þjóðbúningur kvenna Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. Aldar - sjá nánar á www.heimilisidnadur.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ. Knipl á þjóðbúning Kennt er að knipla á upphlutsbak. Nemendur velja á milli blúndu-, stiga-, nets- eða takkamynsturs úr gull- eða silfurþræði á 20. aldar upphlut. Á 19. aldar upphlut stendur valið á milli takka eða nokkurra mismunandi leggingamynstra úr gull- eða silfurþræði og/eða silki. Baldýring Gullsaumur eða baldýring er gömul útsaumsaðferð sem þekkt er víða um heim. Hér á landi hefur aðferðin einna helst verið notuð á þjóðbúningum og í kirkjulegum útsaumi. Kennd eru grunnatriði í baldýringu og nemendur eru aðstoðaðir við að byrja á stærra verkefni, svo sem upphlutsborðum. Vefnaðarnámskeið, 5 vikur Námskeiðið er ætlað byrjendum en hentar einnig þeim sem vilja upprifjun í vefnaði. Allir þátttakendur fá vefstól til umráða. Farið er í; grunnþætti uppsetningar, grunnbindingar einskeftu og vaðmáls og samsettar bindingar. Lögð er áhersla á hvernig nota má liti, efni og bindingar sem útkomu á munstri. Kennari aðstoðar við val á verkefnum sem geta verið værðarvoðir, púðar, borðrenningar, diskamottur o.fl. Gamli krosssaumurinn Kenndur er gamli íslenski krosssaumurinn (fléttuspor). Nemendur gera fallega prufu með munstri úr Sjónabókinni sem síðar má setja í púða eða í ramma. Uppsetning á púðum Á námskeiðinu er kennt að setja upp útsaum í púða. Nemendur komi með nýjan eða gamlan útsaum og læra að setja upp. Refilsaumur Refilsaumur er forn útsaumsaðferð en reflar skreyttu hús og kirkjur á miðöldum. Útlínur eru saumaðar fyrst og síðan er fyllt inn í fletina. Að lokum eru saumaðar aukaútlínur, andlit eða önnur atriði sem þurfa áherslu. Refilsaumur er einstaklega fallegur til að sauma út myndir og fyllta fleti. Nemendur læra aðferðina og sauma litla mynd. Kanntu að spinna á halasnældu? - Örnámskeið! Kjörið námskeið fyrir þá sem vilja kynnast tóvinnu stuttlega. Á einni kvöldstund læra nemendur að kemba ull og spinna á halasnældu. Námskeiðið er hugsað sem kynning á grunnhandtökum en vakin er athygli á lengra námskeiði sem hægt er að sækja í framhaldinu. Tóvinna Lögð er áhersla á að leiðbeina í tóvinnu með sömu aðferðum og notaður voru fyrrum, þ.e. taka ofan af, hæra, kemba og spinna bæði á rokk og halasnældu. Spunnið er þel og tog, notaðir viðeigandi kambar, útskýrð gömul heiti og orðatiltæki um áhöld, ull og spuna. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem þeim sem áður hafa kynnst tóvinnu. Orkering Kennd er grunnaðferð við að hnýta blúndur með sérstakri skyttu. Nemendur læra að lesa uppskriftir bæði skrifaðar og eftir teikningum. Orkeraðar blúndur eru til dæmis notaðar framan á peysufataermar, í skartgripi, dúka eða aðra skrautmuni. Töskugerð / leðurtöskur Nemendur læra að sauma leðurtösku. Farið er í gegnum það helsta sem þarf að hafa í huga við töskugerð, þ.e. rennilásaísetningar, límingar, strappasaumur, lím styrkingar o.fl. Handlitun á garni Á námskeiðinu læra nemendur bæði heita og kalda litun á ullar-, silki-, hör- og bómullarbandi. Litað er með kemískum litum. Nemendur koma með eigið garn – kjörið fyrir þá sem eiga eitthvað af garni en ekki í réttum litum. Eplakarfa / prjónakarfa Kennd eru undirstöðuatriði í körfuvefnaði en námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Nemendur læra að gera stóra og myndarlega körfu. Körfugerðin tekur tvö kvöld með heimavinnu. Hægt er að skreyta körfuna á ýmsan hátt t.d. með lituðum tágum og snæri. Kennt verður að lita körfuna í lok námskeiðs. Sápugerð - örnámskeið! Á námskeiðinu er farið yfir hvernig sápa verður til og hvað þarf af efnum og áhöldum til sápugerðar í föstu formi. Algeng aðferð er kennd en fleiri nefndar. Kennslan hefst á fyrirlestri en að honum loknum er sýnikennsla þar sem gerð er sápa sem nemendur fá með sér heim. Bókun á námskeið og greiðsla námskeiðsgjalda fer fram á heimasíðunni www.heimilisidnadur.is Heimilisiðnaðarskólinn - Nethylur 2e - 110 Reykjavík Netfang: skoli@heimilisidnadur.is - Sími: 551 5500 Opnunartími mánudaga-fimmtudaga kl. 9–18 og föstudaga kl. 9–16 Verslunin er opin mán. - fim. kl. 12–18 og fös. kl. 12–16 www.heimilisidnadur.is www.facebook.com/heimilisidnadarfelagid

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.