Hugur og hönd - 2020, Blaðsíða 14

Hugur og hönd - 2020, Blaðsíða 14
14  HUGUR OG HÖND 2020 vatnið varð kolbrúnt og léttir að sjá skítinn fljóta burt. Við þurrkun voru notaðar hárþurrkur og kjóllinn var troðinn út í eins upprunalegt form og hægt var. Til þess voru notuð vel þvegin og þvæld bómullarstykki sem tróð. Kjóllinn var lagður á Melanex sem er forvörsluefni sem líkist plasti. Síðasta þurrkun fór svo fram á passlegri gínu. Eftir þvott og þurrkun hófst viðgerðin. Þetta er ekki viðgerð í okkar skilningi heldur aðferð til að stoppa frekari skemmdir. Til þess eru notuð sérstök forvörsluspor og hárfínt silkinet. Hárfínar nálar eru notaðar við verkið. Notaður er silkiþráður, silkinet, stækkunargler, sýrufrír pappír sem kjóllinn er lagður á og forvörslutítuprjónar sem eru fínni en venjulegir títuprjónar. Pilsfaldur var styrktur með silkineti, rifa að framan saumuð með forvörsluspori og bót saumuð inn í silkinet. Mittisstrengur styrktur með netinu. Hreinar líningarnar, sem þó urðu ekki hvítar við þvottinn, voru saumaðar á aftur og tölurnar festar á. Lausar krækjur festar og nokkur göt styrkt með saumspori og neti. Eftir tvær vikur á Þjóðminja- safni var haldið til Dalvíkur og kjóllinn settur upp á sýningu í Byggðasafninu Hvoli. Þar er hann enn og nýtur sín á heimaslóðum. Þess ber að geta að í glugga sem er í sýningarrými er filma á gleri sem hindrar útfjólubláa geisla sólarinnar og varnar því að þeir komist að kjólnum. Slíkir geislar eyðileggja textíl og aðra muni á söfnum hratt og örugglega. Kjóll fyrir þvott, athugað hvort kjóll gæti legið heill í þvotti. Svampur notaður við þvottinn. Melanix. Milt sápuvatnið hylur kjólinn. Silkinet og þráður.

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.