Hugur og hönd - 2020, Síða 30

Hugur og hönd - 2020, Síða 30
30  HUGUR OG HÖND 2020 þangað Innréttingar Skúla fógeta kynntu landsmönnum lárétta vefstóla. Með því að vefa band í byrjun slöngunnar sparaðist mikið garn þar sem ekki þurfti að hafa langa spotta til festingar, bandið var einfaldlega fest á efstu slána. Seinna var svo farið að vefa bönd í öðrum tilgangi. Þau voru notuð bæði sem axlabönd, belti, styttubönd, sokkabönd, skó- reimar, sessubönd og til að binda um hárið en einnig sem skrautborðar bæði á kjólum, svuntum, stökkum og skikkjum. Því íburðarmeiri sem klæðnaður- inn átti að vera þeim mun fínni og breiðari bönd voru saumuð á hann. Rætur spjaldvefnaðar Spjaldvefnaður á mjög fornar rætur og telja sumir fræðimenn jafnvel að hann sé fyrsta vefnaðaraðferðin í veraldar- sögunni. Ekki er vitað hvar spjaldvefnaður er upprunnin en leifar af honum hafa fundist í nær öllum heimshornum. Aðeins í „nýju“ heimsálfunum, Norður- Ameríku og Ástralíu hafa engar leifar fundist né heldur í Suður-Afríku. Elstu evrópsku böndin sem fundist hafa í fornleifa- uppgröftum eru talin vera frá um 700 fyrir okkar tímatal. Þau eru frá Norður-Ítalíu frá svæðinu þar sem s.k. Villanova-menning hafði ríkt (nálægt Bologna). Elstu spjöldin eru aðeins yngri en á tveimur stöðum í Evrópu hafa lýst stuttlega (bls. 232-242). Í áðurnefndum greinum Sigríðar Halldórsdóttur í Hug og hönd eru einnig nákvæmar leiðbeiningar um vinnubrögðin við spjaldvefnað. Á youtube má finna ótal mörg kennslumyndbönd á mismunandi tungumálum, einkanlega á ensku en einnig á Norðurlandamálum. Þeir sem vilja fá persónulega leiðsögn geta skráð sig á námskeið í Heimilisiðnaðarskólanum þar sem boðið er upp á kennslu bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Hagnýt notkun Talið er að fyrstu böndin sem ofin voru í spjöldum hafi verið svo kölluð upphafsbönd, þ.e. byrjun vefjar var fest með bandi svo að hann raknaði ekki upp. Þessi aðferð var notuð þegar ofið var á kljásteinavefstað, þ.e. vefstað sem búinn var til úr tveimur upprétt standandi stjökum og einum sem lá efst á þeim og sem uppistaðan var fest við. Slíkir uppréttir vefstaðir voru notaðir alls staðar í Evrópu og einnig hér á landi, allt fram á 18. öld eða bandinu þýðir að sum spjöldin þurfa að standa í stað meðan öðrum er snúið. Á þennan hátt verða munstrin eins á báðum hliðum bandsins en í andstæðum litum. Ef vefa átti sterk bönd voru þau gjarnan ofin með tvöföldu skili og er þessi aðferð erlendis oft nefnd „íslenskur vefur“. Þá er spjöldunum snúið þannig að horn spjaldsins stendur efst (ekki slétt hlið eins og í hinum aðferðunum). Með því myndast skil bæði uppi og niðri á milli þráða sem eru í götum næst vefara og er ívafinu brugðið í bæði skilin. Hér er ekki farið nánar í að útskýra vefnaðartæknina en þeim sem vilja læra að vefa sjálfir er bent á bók Ragnheiðar Bjarkar Þórsdóttur Listin að vefa sem kom út í desember í fyrra (2019). Í henni er mismunandi aðferðum Bandið frá Reykjaseli á Jökuldal er líklega elsta spjaldofið band sem fundist hefur hér á landi. Sýnt hér í endurgerð (tilgátu) Þorbjargar Elfu Hauksdóttur. Ofið úr grófu garni til að sýna munstrið betur. Ljósmynd: Marjatta Ísberg. Beislistaumur og axlabönd eftir Philippe Ricart. Ljósmyndari Kristján Mack.

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.