Hugur og hönd - 2020, Side 32

Hugur og hönd - 2020, Side 32
32  HUGUR OG HÖND 2020 Lifandi arfur Þó að spjaldofin bönd séu nú mest notuð á sögulegum búningum er vel hægt að finna notkun fyrir þau einnig í nútímasamhengi. Í bók eftir Maikki Karisto sem nefnd er í heimildaskránni eru mörg dæmi um nýstárlegri notkun. Bókin er því miður eingöngu til á finnsku en skýringamyndirnar eru svo greinargóðar að hún gagnast þó að maður skilji ekki textann. Að vefa í spjöldum er „indæl iðja“ eins og Margarethe Lehmann-Filhés skrifaði fyrir meira en hundrað árum en jafn áhugavert er að kynna sér handverk og listfengi genginna kynslóða. Í undirbúningi er norrænt mót í sögulegum spjaldvefnaði, þ.e. þar sem áhugafólk frá öllum Norðurlöndum kemur saman til að ræða og kenna öðrum gömul munstur og aðferðir við vefnaðinn. Fyrsta ráðstefnan verður haldin í Fylkisminja- safninu í Gävle í Svíþjóð dagana 11.-13. september næstkomandi. Þarna gefst íslenskum áhugamönnum tækifæri til að kynna sér bönd frá öðrum löndum er því miður ekki til í bókasöfnum hér á landi þó að hún byggi á íslenskum vefnaði. En hún er ennþá talin grundvallarbók og hefur orðið kveikjan að frekari rannsóknum og eflt áhuga á spjaldvefnaði bæði austan hafs og vestan. Tímarit með greinum Margrethe um efnið eru aftur á móti til í Íslandsdeild Lands bókasafnsins. Vel má vera að skrif Margrethe hafi verið kveikjan að því Sigríður Halldórsdóttir ákvað að bjarga þessari fornu vefnaðaraðferð frá endanlegri glötun. En vitað er að hún hafði eignast bók Margrethe í skandinavískri útgáfu. Árið 1994 tók Sigríður þátt í spjaldvefnaðarmóti í Kalmar í Svíþjóð og hélt þar erindi sem svo árið eftir var birt í Skírni. Með Sigríði í Kalmar voru einnig Philippe Ricart og Ólöf Einarsdóttir, en þau bæði kenna s p j a l d v e f n a ð v i ð Heimilisiðnaðarskólann. Philippe og Ólöf eru meðal þeirra fáu sem láta sér ekki nægja að endurgera gömul munstur heldur nota spjaldvefnað til að fá útrás fyrir eigin listsköpun. Margrethe Lehmann-Filhès og íslenskur vefur Ekki má skilja við umfjöllun um íslenskan spjaldvefnað án þess að nefna þýsku fræðikonu Margarethe Lehmann-Filhés að nafni. Margarethe þessi er nú talin vera upphafsmaður endur- vakningar spjaldvefnaðar á Vesturlöndum og vitnað er í hana í öllum bókum sem fjalla um spjaldvefnað. Um Margrethe og þýðingu hennar fyrir útbreiðslu íslensks menningararfs mætti skrifa heila grein en við munum einskorða okkur við þátt hennar í endurvakningu spjaldvefnaðar. En aðeins tilviljun réð því að Margarethe kynntist þessari vefnaðartegund. Hún hafði séð ofið band hjá Dr. Valtý Guðmundssyni í Kaupmannahöfn og fór að skoða það með augum vísindamannsins, þar sem hún kannaðist ekki við vefnaðaraferðina. Í kjölfarið birti hún greinar um þennan spjaldvefnað í þýskum blöðum og gaf svo út bókina Über Brettschenweberei (Um spjaldvefnað) árið 1901. Þessi bók Teikning Margrethe Lehmann-Filhés af íslenskri konu að vefa í spjöldum. Teikningin var fyrst birt í tímaritinu Zeitschrift des Vereins für Volkskunde árið 1899 (bls. 25) en hefur síðar birst víðar, m.a. í Eimreiðinni árið 1903. Margrethe byggði teikninguna á frummynd sem Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi gerði fyrir hana.

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.