Hugur og hönd - 2020, Page 44
44 HUGUR OG HÖND 2020
Skógarnytjar eiga sér ekki eins sterka hefð hjá
almenningi hér á landi og annars staðar á
Norðurlöndum. Þessa hefð er nauðsynlegt að skapa
og styrkja. Efniviður til tálgunar er allt um kring, í
garðinum, við sumarbústaðinn og úti í skógi.
Á vorönn bauð Heimilisiðnaðarskólinn upp á
námskeið í tálgun úr ferskum viði undir yfirskriftinni
Tálgun fyrir heimilið – sjálfbærni og sköpun. Á
námskeiðinu lærðu þátttakendur að tálga með
ólíkum bitáhöldum, hnífum og öxum. Sérstök áhersla
var lögð á nytjahluti svo sem gerð sleifa, spaða og
smjörhnífa fyrir eldhúsið, skóhorn eða snaga fyrir
heimilið eða drykkjarbolla fyrir gönguferðina.
Námskeiðið var ætlað bæði fullorðnum og börnum
frá 10 ára aldri. Sérstök áhersla var lögð á að börn og
fullorðnir kæmu saman á námskeiðið þar sem eitt
þátttökugjald var fyrir parið. Námskeiðið var fjögur
kvöld sem kennd voru í húsnæði félagsins í Nethyl
auk kennsluferðar í Ólaskóg í Kjós. Kennari á
námskeiðinu var Ólafur Oddsson sem löngu er
landskunnur fyrir námskeiðið Lesið í skóginn tálgað
í tré. Samkomubann vegna Covid-19 setti að vísu
strik í reikninginn við framkvæmd námskeiðsins að
þessu sinni því fresta þurfti hluta þess. Góð þátttaka
var á námskeiðinu og vonandi er þetta einungis
upphafið að frjóu samstarfi HFÍ og Skógræktarinnar
á þessu sviði.
Tálgun úr ferskum viði
Smjörhnífur og efniviður.
Áhöld.