Morgunblaðið - 03.06.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
TILBOÐ
Sparaðu 10.000
Verð nú 55.000
www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi
Í JÚNÍ
kr.
kr.
LauraStar Lift Red
Létt og meðfærilegt Straujar – gufar – hreinsar
Sprangan svonefnda í Vestmannaeyjum hefur mikið
aðdráttarafl en þar geta gestir og gangandi prófað að
spranga, sveifla sér í kaðli. Þeir sem spranga velja sér
byrjunarsyllur í berginu eftir getu, nýliðar byrja í Al-
menningi en aðrir fara ofar í Stígvél, Gras eða Efstu tó.
Í blíðunni um síðustu helgi spreyttu margir sig á þess-
ari íþrótt en ekki byrjuðu allir sveifluna jafn hátt og sá
sem á myndinni sést.
Þjóðaríþrótt Vestmannaeyinga stunduð af kappi
Morgunblaðið/GSH
Margir sprönguðu í veðurblíðunni
Alls var tilkynnt um hópuppsagnir
hjá 23 fyrirtækjum í maímánuði.
Nemur fjöldi einstaklinga sem
misstu vinnuna í uppsögnunum
1.323. Þetta upplýsti Unnur
Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumála-
stofnunar, í samtali við mbl.is í gær.
Að hennar sögn benda nýjustu
tölur til þess að hægst hafi á upp-
sagnahrinu undanfarinna mánaða.
Fjöldinn í mánuðinum er jafnframt
umtalsvert minni en í síðasta mán-
uði. Munaði þar mest um ríflega tvö
þúsund uppsagnir hjá Icelandair.
„Þetta er miklu minna en var í apríl
sem er jákvætt. Vonandi er hægjast
á þessu,“ sagði Unnur við mbl.is.
Spurð hvort mest hefði verið um
uppsagnir í ferðaþjónustunni sagði
Unnur svo vera. Þar hefðu ákveðin
landsvæði jafnframt orðið illa úti.
„Það er langmest af þessum upp-
sögnum í ferðaþjónustu. Það kemur
verst niður á svæðum þar sem hún
er stærst á Suðurlandinu og Suð-
vesturlandi.“
Vinnumálastofnun fékk 23 tilkynningar um hópuppsagnir í maí
Morgunblaðið/Eggert
Uppsagnir Nóg er að gera hjá
Vinnumálastofnun þessa dagana.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ákveðið hefur verið að komufarþeg-
um til landsins standi til boða að
fara í sýnatöku á Keflavíkurflugvelli
frá og með 15. júní og í framhaldinu
á öðrum helstu landamærastöðvum
eða framvísa jafngildu vottorði að
utan. Að öðrum kosti þurfa þeir að
fara í tveggja vikna sóttkví.
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á
tillögur sóttvarnalæknis um rýmkun
reglna um komu ferðamanna til Ís-
lands, en fjallað var um málið og til-
lögu sóttvarnalæknis á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær.
Sóttvarnalækni er falið að bera
meginábyrgð á framkvæmd sýna-
tökunnar og á greiningu sýna í sam-
starfi við Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, sýkla- og veirufræðideild
Landspítalans og Íslenska erfða-
greiningu. Er stefnt að því að vinn-
an standi yfir í a.m.k. 6 mánuði með
möguleika á endurskoðun á tíma-
bilinu.
Leiti til ÍE strax frá upphafi
Á minnisblaðinu sem birt hefur
verið segir Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir að sýkla- og veiru-
fræðideildin geti greint takmarkað-
an fjölda sýna og mikilvægt sé að
strax frá upphafi verði leitað til Ís-
lenskrar erfðagreiningar um aðstoð
við greiningu og upplýsingatækni.
Segist Þórólfur líta svo á að ein-
staklingur sem hafi fengið staðfesta
sýkingu eða smit af völdum veir-
unnar með svonefndu PCR-prófi
fyrir meira en 14 dögum sé ónæm-
ur fyrir endursýkingu og beri ekki
með sér smit. „Engar ferðahömlur
þarf því að setja á slíka einstak-
linga,“ segir á minnisblaði Þórólfs.
„Ég tel að bjóða eigi ferðamönn-
um upp á þann möguleika að sýna
vottorð um yfirstaðin veikindi af
völdum COVID-19 sem myndi
undanskilja þá frá frekari tak-
mörkunum á landamærum Íslands.
Veikindin yrðu að hafa verið stað-
fest með PCR prófi og yrði grein-
ing að hafa verið gerð a.m.k. 14
dögum fyrir komu. Þessum vott-
orðum yrði að framvísa fyrir komu
hingað til lands og þau stimpluð og
vottuð af þar til bærum aðilum,“
segir hann.
Nýleg greiningarpróf dugi
Þá bendir hann á að nokkur lönd
a.m.k. í Evrópu hafi boðið ferða-
mönnum upp á þann möguleika að
fá PCR-greiningarpróf sem gert er í
heimalöndum þeirra innan fjögurra
daga fyrir brottför sem tryggi óheft-
an aðgang að landinu ef niðurstaða
prófsins sýnir engin merki um smit.
„Ég tel að ef einstaklingar geta
lagt fram opinbert vottorð frá sínu
heimalandi um neikvæða niðurstöðu
PCR prófs sem ekki er eldra en 4
daga gamalt þá ættu þeir að verða
undanþegnir frekari takmörkunum
við komuna hingað til lands.“
Þórólfur telur hins vegar ekki
ráðlegt á þessum tímapunkti að
treysta niðurstöðum mótefnamæl-
inga erlendis sem staðfesti að við-
komandi hafi áður veikst af völdum
veirunnar. Því verður ekki hægt að
bjóða upp á vottorð um mótefna-
mælingu til að verða undanþeginn
frá takmörkunum við komuna hing-
að til lands. „Þetta kann hins vegar
að breytast á næstu vikum og mán-
uðum,“ segir hann á minnisblaðinu.
Þórólfur segir þar erfitt að spá
fyrir um áhættuna af opnuninni en
að hún virðist ekki vera mikil þó að
ferðamönnum muni fjölga að ein-
hverju magni en það fari þó m.a. eft-
ir þróun faraldursins erlendis.
Skv. upplýsingum heilbrigðis-
ráðuneytisins í gær bendir bráða-
birgðamat til þess að kostnaður við
sýnatöku á Keflavíkurflugvelli
fyrstu tvær vikurnar frá rýmkun
reglna um komu ferðamanna til
landsins yrði um 160 milljónir króna
ef 500 manns kæmu til landsins á
dag en stefnt sé að því að tilkynna á
næstu dögum hvað sýnatakan muni
kosta farþega.
Í greinargerð ráðuneyta um efna-
hagsleg sjónarmið við losun ferða-
takmarkana kemur fram að rétt sé
að ferðamennirnir greiði sjálfir fyrir
sýnatökurnar.
Í fyrra kom nær 1,1 milljón ferða-
manna hingað til lands en nú telja
Samtök ferðaþjónustunnar mögu-
legt að um 250 þúsund ferðamenn
komi til landsins það sem eftir lifir
árs ef sóttvarnaaðgerðir verða tak-
markaðar. Hugsanlega gætu þeir
orðið 300-350 þúsund ef allt fellur
með greininni.
Áhættan af opnun ekki mikil
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um losun ferðatak-
markana við landamærin Ferðamennirnir greiði sjálfir fyrir sýnatökurnar
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Samhæfingarteymi á að aðstoða við undirbúning skimunar.
Verði tillaga Fé-
lags íslenskra
hjúkrunarfræð-
inga um ótíma-
bundið verkfall
hjá ríkinu sam-
þykkt í atkvæða-
greiðslu hefst það
klukkan átta
mánudaginn 22.
júní, hafi samn-
ingar ekki náðst
fyrir þann tíma. FÍH hóf í gær raf-
ræna atkvæðagreiðslu meðal hjúkr-
unarfræðinga um verkfallsaðgerðir.
Samningaviðræður hafa staðið yfir í
mánuð eftir að kjarasamningur sem
gerður var var felldur í atkvæða-
greiðslu í lok apríl. Sáttafundur sem
fram fór í gær skilaði ekki árangri.
Í umfjöllun um stöðu viðræðn-
anna eftir sáttafundinn í gær á vef
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
segir að viðræður gangi mjög hægt
og mikið beri í milli hvað varðar
launalið samninga. Formenn samn-
inganefnda deilendanna munu þó
funda með Ríkissáttasemjara í dag
til að ræða þá stöðu sem komin er
upp.
Fram kemur á vefsíðu FÍH að at-
kvæðagreiðslan sem nær til rúm-
lega 2.500 hjúkrunarfræðinga hjá
ríkinu muni standa yfir til klukkan
12 næstkomandi föstudag.
Kjósa um
verkfall
22. júní
Næði til um 2.500
hjúkrunarfræðinga
Um 2.500 félagar
í FÍH mega kjósa.