Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 1
Ómar Friðriksson Sigurður Bogi Sævarsson Fjárhagsáhyggjur jukust og fjar- vinna reyndist vel. Þetta kemur fram í könnun Maskínu fyrir BSRB þar sem áhrif kórónuveirunnar á líf fólks voru könnuð. Tæplega 10% aðspurðra kvenna sögðust hafa þurft að leita eftir fjárhagsaðstoð og 5,6% karla. Um helmingur að- spurðra sagði að gæðastundum með fjölskyldunni hefði fjölgað en 45,3% eldra fólks sögðu að þeim hefði fækkað nokkuð eða mikið. Liðlega helmingur opinberra starfsmanna sagði álag í starfi sínu hafa aukist og ámóta margir sögð- ust eiga kost á fjarvinnu. Alls 58% sögðu að sér líkaði slíkt vinnu- fyrirkomulag vel, sérstaklega fólk þar sem börn eru á heimili. „Niðurstöðurnar staðfesta mikið álag á stórum hluta þeirra sem sinntu almannaþjónustu í faraldr- inum. Meðal okkar fólks eru fjöl- mennir hópar sem voru í framlín- unni og undir miklu álagi,“ segir Magnús Már Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri BSRB. Fram komi að vinnumarkaðurinn sé kynskiptur og hlutverkaskipting heima kyn- skipt. „Það er brýnt að brjóta upp mannskemmandi mynstur þar sem þriðjungur kvenna vinnur hluta- störf, sem hefur áhrif á starfs- frama, laun og lífeyrisréttindi. Það er mikilvægt að sveigjanlegri vinnumarkaður sé fyrir alla.“ »6 Álag jókst á kynjaskiptum markaði  Áhyggjur í heimsfaraldri áberandi  Brýnt verkefni að brjóta mynstrið upp 25%25% 50% Gæðastundir á tímum kórónuveiru Hefur gæðastundum með fjölskyldunni fjölgað eða fækkað? Heimild: könnun Maskínu fyrir BSRB Staðið í stað Fækkað nokkuð eða mikið Fjölgað nokkuð eða mikið M Á N U D A G U R 1 5. J Ú N Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  139. tölublað  108. árgangur  HVERFUL AUGNABLIK NÁTTÚRUNNAR NÓG AF MÖRKUM LANDSBYGGÐIN NIÐURGREIÐIR VÖRUVERÐ BOLTINN ER FARINN AÐ RÚLLA 26-27 VERSLUN Í DREIFBÝLI 10OPNAÐI SÝNINGU 29 Ragnhildur Þrastardóttir Pétur Magnússon Yfirvöld vinna nú að því að senda Rúmena sem voru í hópi þeirra sem virtu reglur um sóttkví að vettugi en reyndust ekki smitaðir af kórónuveiru úr landi, að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. „Það verður reynt að flytja þá úr landi sem reynast neikvæðir,“ segir Þórólfur en um er að ræða tólf ein- staklinga sem grunaðir eru um að hafa brotið sóttvarnalög með því að halda sig ekki í sóttkví í fjórtán daga eftir komuna til landsins. Tveir þeirra eru með virkt smit og verða því ekki fluttir úr landi. Sex Rúmenanna voru enn ófundnir þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi. Þau tvö úr hópnum sem greindust, karl og kona, voru fyrstu sjúklingarnir sem komu á COVID-göngudeild Landspítalans í heilan mánuð. Málið hefur ekki áhrif á breytingar á móttöku þeirra sem koma til lands- ins sem tóku gildi í dag, að sögn Þór- ólfs. Geta fylgst betur með Frá og með deginum í dag gefst þeim sem koma til landsins kostur á að fara í sýnatöku í stað fjórtán daga sóttkvíar. „Þetta ætti frekar að hvetja okkur til dáða þar sem þetta sýnir þörfina á því að skima á landamærunum og taka það föstum tökum. Ef fólk fer ekki eft- ir því sem því er sagt að gera þurfum við enn frekar að skima,“ segir Þór- ólfur, sem hefur ekki áhyggjur af mögulegum afleiðingum breytinganna og telur þær til góðs. „Ég held að við séum nú betur í stakk búin til þess að fylgjast með fólki sem kemur til landsins. Með þessu erum við að efla eftirlit enn frekar.“ Átta flugvélar eru væntanlegar til landsins í dag og með þeim um 600 farþegar. Sá fjöldi jafngildir tæpum helmingi þeirra farþega sem komu til ingar á móttöku ferðamanna heldur mega nú 500 manns koma saman í stað 200 og falla takmarkanir á gesta- fjölda í sundlaugar og líkamsræktar- stöðvar niður. Kristófer Oliversson, formaður Fé- lags fyrirtækja í hótel- og gistiþjón- ustu, segir tilslakanir á sóttvarna- aðgerðum rétt skref í átt að endurvakningu ferðaþjónustunnar, en allir geri sér grein fyrir því að öryggis- sjónarmið verði að vera í fyrirrúmi. „Næstu tvær vikur verða fyrst og fremst tilraunastarfsemi,“ segir Krist- ófer, en hann segir fáar bókanir berast hótelum þrátt fyrir opnun landamæra. „Reynt að flytja þá úr landi“  Til stendur að senda Rúmena sem ekki eru smitaðir burt  Átta flugvélar lenda í Keflavík í dag með um 600 farþega  Ferðamenn hafa val um sýnatöku eða sóttkví  Þórólfur telur breytingarnar til góðs Morgunblaðið/Sigurður Sóttvarnir Maðurinn sem hér sést með svarta húfu er einn af þeim sem skikkaðir voru til veru í sóttvarnahúsinu og fluttir þangað í sérstökum sendibíl. Morgunblaðið/Íris Skimun Æfing vegna skimana á Keflavíkurflugvelli fór fram um helgina. landsins í aprílmánuði og þriðjungi af þeim farþegum sem komu hingað í maí. Frá og með deginum í dag verður sérstakt fyrirkomulag á Landspítala vegna þeirra sem greinast með COVID-19, að sögn Önnu Sigrúnar Baldursdóttur, aðstoðarmanns for- stjóra Landspítalans. Héðan í frá verða einstaklingar sem greinast með veiruna kallaðir inn á göngudeildina, hvort sem þeir eru er- lendir eða íslenskir. Þetta er ólíkt því sem verið hefur, að látið sé duga að eiga samskipti við hina smituðu í síma og tryggja þar með að innlagnar sé ekki þörf. Í dag verða þó ekki einungis breyt- MHefði einfaldað … » 2 og 4  „Við eigum ekki að þurfa að vera í stanslausri varnarbaráttu með samgöngur til og frá bænum,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar- stjóri á Seltjarnarnesi. Hún er ósátt við þær fyrirætlanir Reykjavíkur- borgar að setja upp gangbrautar- ljós á sex stöðum á Eiðsgranda, sem er önnur helsta akbrautin á Nesið. Ekkert samráð hafi verið haft við Seltirninga. Raunar sé málið stærra, þar sem m.a. sé verið að lækka leyfilegan hámarkshraða á stofnbrautum í Vesturbænum og grípa til ýmissa annarra ráðstafana sem til baga séu fyrir Seltjarnar- nesið. »9 Seltirningar í vörn í samgöngumálum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.