Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020
Englendingurinn Gary Martin,
markakóngur úrvalsdeildar karla í fót-
bolta 2019, hóf tímabilið með þrennu
fyrir ÍBV gegn Grindavík þegar Eyja-
menn unnu stórsigur á útivelli, 5:1, í
leik liðanna í 2. umferð bikarkeppn-
innar í Grindavík á laugardaginn.
Telmo Castanheira skoraði hin tvö
mörk Eyjamanna.
ÍBV fær fjórðudeildarlið Samherja
úr Eyjafirði í heimsókn í 32 liða úrslit-
unum. Önnur lið sem mætast þar eru
Fjölnir – Selfoss, Breiðablik – Keflavík,
SR – Valur, Kórdrengir – ÍA, KA –
Leiknir R., Þór – Reynir S., Vængir
Júpíters – KR, Stjarnan – Leiknir F., ÍH
– Fylkir, Fram – ÍR, Magni – HK, Þrótt-
ur R. – FH, Grótta – Höttur/Huginn,
Afturelding – Árborg og Víkingur Ó. –
Víkingur R.
Í bikarkeppni kvenna mætast í 16-
liða úrslitum ÍA – Augnablik, KR –
Tindastóll, Haukar – Fjarðabyggð/
Höttur/Leiknir, Stjarnan – Selfoss,
Fylkir – Breiðablik, Þróttur R. – FH,
Þór/KA – Keflavík og Valur – ÍBV.
Alfreð Finnbogason og félagar í
Augsburg eru nánast búnir að bjarga
sér frá falli í þýska fótboltanum eftir
1:0-útisigur á Mainz í mikilvægum leik
í botnbaráttunni. Alfreð lék síðasta
hálftímann. Samúel Kári Friðjónsson
var á bekknum hjá Paderborn sem er
nánast fallið eftir skell gegn Werder
Bremen á heimavelli, 1:5.
Sara Björk Gunnarsdóttir er aðeins
einum sigri frá þýska meistaratitlinum
í knattspyrnu eftir að lið hennar vann
Essen 3:0 á útivelli á laugardaginn.
Sandra María Jessen er hinsvegar
komin í bullandi fallslag með Lever-
kusen eftir 1:5-skell gegn Turbine
Potsdam. Landsliðskonurnar léku báð-
ar allan tímann með liðum sínum.
Bandaríkjamaðurinn Daniel Berger
stóð uppi sem sigurvegari á Chall-
enge-mótinu í PGA-mótaröðinni í golfi,
því fyrsta í þrjá mánuði. Leikið var á
Colinial Country-vellinum í Texas.
Berger hafði betur gegn landa sínum
Collin Morikawa í bráðabana. Berger
og Morikawa voru báðir á 15 höggum
undir pari eftir fjóra hringi. Í bráða-
bananum hafði Berger betur strax á
fyrstu holu. Sigurinn var sá fyrsti hjá
Berger síðan hann vann FedEx St.
Jude Classic árið 2017 og þriðji sig-
urinn á PGA-mótaröðinni.
Haukur Helgi Pálsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, er einn fimm
leikmanna sem hafa verið leystir und-
an samningi hjá rússneska félaginu
UNICS Kazan, samkvæmt tilkynningu
sem félagið sendi frá sér í gær. Haukur
spilaði eitt tímabil með UNICS sem lék
í Evrópubikarnum í vetur, sem og í
VTB-deildinni þar sem bestu lið fyrr-
verandi Sovétríkjanna spila. Hann
skoraði 5,9 stig að meðaltali í VTB-
deildinni og 4,4
stig að með-
altali í leik í Evr-
ópubikarnum.
Báðum keppn-
um var hætt í
mars vegna
kórónuveiru-
farsóttarinnar
en samningar
allra þessara
leikmanna
áttu að renna
út í sumar.
Eitt
ogannað
FÓTBOLTI KARLAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ríkjandi Íslandsmeistarar geta
varla sent frá sér sterkari yfirlýs-
ingu í fyrsta leik á Íslandsmóti en að
sækja þrjú sig á útivöll þess liðs sem
spáð er Íslandsmeistaratitlinum.
KR-ingar gerðu það með sigr-
inum á Hlíðarenda á laugardags-
kvöldið, 1:0, en Valsmenn hafa í öll-
um spám fyrir Íslandsmótið verið
settir fram sem líklegustu meist-
araefnin, á undan Breiðabliki og
KR.
Eins og markaskorari leiksins,
Óskar Örn Hauksson, sagði við mig
eftir leik vannst ekkert eða tapaðist
hjá liðunum tveimur með þessum
úrslitum. Íslandsmótið væri rétt að
byrja, Valsliðið væri hrikalega öfl-
ugt og mikil vinna væri fram undan.
Hárrétt hjá Óskari sem var aðeins
39 mínútur að skora fyrsta mark
deildarinnar í ár og tryggja að hann
væri búinn að skora á 17 tímabilum í
röð í deildinni. Einstakt afrek hjá
leikmanni sem er smám saman að
skásetja einstakan feril.
Óskar er annar leikjahæsti leik-
maður deildarinnar frá upphafi, spil-
aði sinn 310. leik í fyrrakvöld, og að-
eins Birkir Kristinsson á fleiri leiki
að baki, 321.
Óskar er kominn með 76 mörk í
deildinni og er 14. markahæsti leik-
maður hennar frá upphafi. Hann á
bæði leikjamet (258) og markamet
(64) KR í deildinni.
Þá náði Óskar þeim magnaða
áfanga á laugardagskvöldið að leika
sinn 100. leik í röð fyrir KR í deild-
inni en hann hefur ekki misst af leik
síðan í júlí 2015. Hann er þrettándi
leikmaðurinn í sögu deildarinnar
sem nær 100 leikjum í röð.
„Þetta var yndisleg byrjun á
hinsta dansinum,“ sagði Pálmi Rafn
Pálmason, KR-ingurinn reyndi, sem
hóf sitt 21. tímabil í meistaraflokki.
Gæti verið það síðasta, miðað við
þessi orð hans.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson,
Finnur Tómas Pálmason og Pálmi
Rafn Pálmason úr KR og Rasmus
Christiansen úr Val fóru meiddir af
velli og Eiður Aron Sigurbjörnsson
úr Val meiddist undir lokin og haltr-
aði um völlinn í uppbótartímanum.
Rúnar Kristinsson þjálfari KR
sagði eins gott að leyfðar væru fimm
skiptingar á lið á þessu móti, það
veitti ekki af þeim.
„Við áttum ekki meira skilið,“
sagði Heimir Guðjónsson þjálfari
Vals sem nú er kominn aftur í deild-
ina eftir tvö ár í Færeyjum.
Glæsimörk Stefáns Teits
Stefán Teitur Þórðarson skoraði
tvö glæsileg mörk, sem margir í
hans miklu fótboltaætt gætu verið
stoltir af, þegar Skagamenn lögðu
KA 3:1 á sannfærandi hátt á Akra-
nesi í gær.
„Eftir fínan stundarfjórðung eða
svo var KA-mönnum hreinlega ýtt
úr leiknum af áræðnum og bar-
áttuglöðum Skagamönnum,“ skrif-
aði Kristófer Kristjánsson um leik-
inn á mbl.is.
Allir fjórir erlendu leikmenn lið-
anna voru fjarverandi vegna
meiðsla, Rodrigo Gómez, Mikkel
Qvist og Jibril Abubakar hjá KA og
Marcus Johansson hjá ÍA.
Ingi Þór Sigurðsson, 16 ára
bróðir Arnórs Sigurðssonar lands-
liðsmanns og sonur Margrétar Áka-
dóttur fyrrverandi landsliðskonu,
kom inn á sem varamaður hjá ÍA.
Lennon uppfyrir markahróka
Steven Lennon er orðinn fimm-
tándi markahæsti leikmaðurinn í
sögu efstu deildar hérlendis eftir að
hafa skorað tvö fyrri mörk FH í
sigri á HK í Kórnum í gær, 3:2. Þá
átti hann stóran þátt í þriðja mark-
inu sem var sjálfsmark HK-inga.
Lennon, markahæsti erlendi leik-
maðurinn frá upphafi, er kominn
með 73 mörk, 60 þeirra fyrir FH, og
fór uppfyrir tvo mikla markahróka á
listanum. Þeir Pétur Pétursson frá
Akranesi (og KR) og Steinar Jó-
hannsson frá Keflavík gerðu 72
mörk á sínum tíma.
Jóhann Ingi Hafþórsson skrifaði
m.a. um leikinn á mbl.is að gæði FH-
inga hefðu verið of mikil fyrir HK-
inga þegar upp var staðið. HK ætti
þó hrós skilið fyrir að neita að gefast
upp eftir að hafa misst tvo menn af
velli og lent undir.
Bjarni Gunnarsson framherji
HK og Arnar Freyr Ólafsson mark-
vörður fóru báðir af velli á fyrstu 15
mínútum. Báðir tognuðu þeir aftan í
læri og missa af næstu leikjum.
Guðmann Þórisson miðvörður
FH lék sinn 200. deildaleik á ferl-
inum. Þar af eru 155 á Íslandi og 45 í
Noregi og Svíþjóð.
Langþráð mark Kristins
Breiðablik vann frekar þægilegan
sigur á nýliðum Gróttu, 3:0, á Kópa-
vogsvelli í gærkvöld og Óskar Hrafn
Þorvaldsson lagði því að velli liðið
sem hann hafði farið óvænt með upp
um tvær deildir á tveimur árum.
„Getumunurinn á liðunum var
mikill en skynsamlegra verður að
fella dóma yfir Gróttuliðinu eftir
nokkra leiki,“ skrifaði Kristján Jóns-
son m.a. í grein um leikinn á mbl.is.
Thomas Mikkelsen sendi bolt-
ann fjórum sinnum í mark Seltirn-
inga en þrjú þau fyrstu voru öll
dæmd af vegna rangstöðu.
Kristinn Steindórsson skoraði
langþráð mark þegar hann innsigl-
aði sigurinn í lokin. Þetta er hans
fyrsta deildamark á ferlinum frá
2014, þegar hann skoraði fyrir
Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni.
Kristinn er eftir sem áður marka-
hæstur í sögu Blika í efstu deild en
hann gerði 34 mörk fyrir liðið á ár-
unum 2007-2011.
Arnar Helgason, hávaxinn mið-
vörður Gróttu, fékk sitt annað gula
spjald fyrir brot eftir 60 mínútuna
leik og var þar með rekinn af velli.
Hann verður í banni gegn Val um
næstu helgi.
Grótta var með í byrjunarliði
sínu tvo leikmenn sem höfðu spilað í
efstu deild, samtals sjö leiki.
Þessir léku í fyrsta sinn í deild-
inni um helgina: Magnús Egilsson
og Birkir Heimisson (Val), Gísli
Laxdal Unnarsson og Ingi Þór Sig-
urðsson (ÍA), Sveinn Margeir
Hauksson, Gunnar Örvar Stef-
ánsson og Adam Örn Guðmundsson
(KA), Hákon Rafn Valdimarsson,
Kristófer Melsted, Halldór Kristján
Baldursson, Arnar Þór Helgason,
Bjarki Leósson, Kristófer Orri Pét-
ursson, Óskar Jónsson, Gabríel H.
Eyjólfsson, Pétur Theódór Árna-
son, Axel Freyr Harðarson, Sig-
urvin Reynisson og Gunnar Jónas
Hauksson (Gróttu).
Firnasterk yfirlýsing
Óskar Örn Hauksson heldur áfram að skrifa söguna með sigurmarki á Hlíðar-
enda Skagamenn, FH-ingar og Blikar skoruðu þrjú mörk hverjir í sigurleikjum
Morgunblaðið/Eggert
Ánægðir Óskar Örn Hauksson og félagar fagna stuðningsmönnum KR í leikslok á Hlíðarenda í fyrrakvöld.
VALUR – KR 0:1
0:1 Óskar Örn Hauksson 39.
MM
Kennie Chopart (KR)
M
Beitir Ólafsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Arnþór Ingi Kristinsson (KR)
Pablo Punyed (KR)
Atli Sigurjónsson (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Hannes Þór Halldórsson (Val)
Orri Sigurður Ómarsson (Val)
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 7.
Áhorfendur: 1.200 – uppselt.
ÍA – KA 3:1
0:1 Nökkvi Þeyr Þórisson 5.
1:1 Stefán Teitur Þórðarson 56.
2:1 Stefán Teitur Þórðarson 56.
3:1 Tryggvi Hrafn Haraldsson 70.
MM
Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
M
Bjarki Steinn Bjarkason (ÍA)
Brynjar Snær Pálsson (ÍA)
Jón Gísli Eyland (ÍA)
Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Hrannar Björn Bergmann (KA)
Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Nökkvi Þeyr Þórisson (KA)
Dómari: Pétur Guðmundsson – 7.
Áhorfendur: 720.
HK – FH 2:3
0:1 Steven Lennon 19.
1:1 Valgeir Valgeirsson 45.
1:2 Steven Lennon 85.
1:3 Sjálfsmark 87.
2:3 Ásgeir Marteinsson 90.
MM
Steven Lennon (FH)
M
Leifur Andri Leifsson (HK)
Birkir Valur Jónsson (HK)
Ásgeir Marteinsson (HK)
Ólafur Örn Eyjólfsson (HK)
Valgeir Valgeirsson (HK)
Hörður Ingi Gunnarsson (FH)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Björn Daníel Sverrisson (FH)
Daníel Hafsteinsson (FH)
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 7.
Áhorfendur: Um 500.
BREIÐABLIK – GRÓTTA 3:0
1:0 Viktor Karl Einarsson 19.
2:0 Thomas Mikkelsen 56.
3:0 Kristinn Steindórsson 90.
MM
Hákon Rafn Valdimarsson (Gróttu)
M
Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki)
Davíð Ingvarsson (Breiðabliki)
Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Thomas Mikkelsen (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðab.9
I Rautt spjald: Arnar Helgason(Gróttu) 61.
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 7.
Áhorfendur: 2.114 – uppselt.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.