Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 26
FÓTBOLTI KONUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Stórar yfirlýsingar geta komið mönnum (og konum) í koll. Selfoss- konur tilkynntu að þær ætluðu sér að verða Íslands- og bikarmeist- arar eftir sigurinn á Val í Meist- arakeppni KSÍ um fyrri helgi en voru skotnar niður á jörðina í Ár- bænum á laugardaginn þegar Fylkir sigraði Selfoss, 1:0, í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Eva Rut Ásþórsdóttir, ein af mörgum ungum og efnilegum leik- mönnum sem Fylkir fékk til sín í vetur, skoraði sigurmarkið. Magda- lena Anna Reimus gat jafnað fyrir Selfyssinga undir lokin en skaut framhjá Fylkismarkinu úr víta- spyrnu. Jóhann Ingi Hafþórsson skrifaði á mbl.is: „Það hefur kannski gleymst í umræðunni að Fylkir vann alla sjö leiki sína á undirbún- ingstímabilinu og fékk aðeins á sig eitt mark. Varnarleikur liðsins er virkilega góður og Cecilía þar fyrir aftan einn besti markvörður deild- arinnar. Það má því alls ekki af- skrifa Fylki, en liðið vann bæði Selfoss og Val í vetur.“ „Geggjað að geta þaggað niður í þessu liði,“ sagði Sólveig J. Larsen kantmaður Fylkis og það segir sitt um stemninguna í Árbænum.  Vesna Elísa Smiljkovic kom inn á hjá Fylki og lék með sínu fimmta félagi í efstu deild. Hún er leikjahæsti erlendi leikmaðurinn á Íslandi, og er jafnframt komin í 13.-14. sæti yfir leikjahæstu leik- menn deildarinnar frá upphafi með 215 leiki fyrir Fylki, Val, ÍBV, Þór/ KA og Keflavík. Bið þrátt fyrir yfirburði Blika Breiðablik var 90 mínútur að brjóta niður nýliða FH þrátt fyrir mark Berglindar Bjargar Þor- valdsdóttur á annarri mínútu og tryggði ekki 3:0-sigur fyrr en í uppbótartíma með mörkum Alex- öndru Jóhannsdóttur og Sveind- ísar Jane Jónsdóttur. Kristófer Kristjánsson skrifaði m.a. um leikinn á mbl.is að þrátt fyrir yfirburði og verðskuldaðan sigur verði Blikar að spila enn bet- ur í næsta leik þegar liði heimsæk- ir Selfoss. Vandamál FH sé sókn- arleikurinn og liðið eigi erfitt sumar fyrir höndum, og sennilega botnbaráttu.  Svandís Jane Jónsdóttir náði að skora í fyrsta leik með Breiða- bliki. Hún skoraði sjö mörk fyrir Keflavík í fyrra og var besti leik- maður Íslandsmótsins samkvæmt M-gjöf Morgunblaðsins.  Sigríður Lára Garðarsdóttir landsliðskona lék sinn fyrsta deildaleik með FH og er strax orð- in fyrirliði liðsins. Sannfærandi norðankonur Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Þór/KA sem vann sannfærandi sigur á Stjörn- unni, 4:1, á Akureyri á laugardag- inn. Þar sem bæði lið hafa misst mikið af leikmönnum frá því í fyrra var rennt blint í sjóinn fyrir þessa viðureign en Akureyringar mæta með ferskt og frískt lið í slaginn. „Yfirburðir Þórs/KA voru miklir og Stjörnukonur sáu í raun aldrei til sólar,“ skrifaði Baldvin Kári Magnússon um leikinn á mbl.is. Sjö mörk en lítill varnarleikur ÍBV og Þróttur, liðin sem flestir hafa spáð falli, buðu upp á bráð- fjörugan leik í Vestmannaeyjum þar sem Eyjakonur unnu nauman sigur, 4:3, eftir að hafa komist í 3:0. Miyah Watford hjá ÍBV og Stephanie Ribeiro eru í hópi tólf nýrra erlendra leikmanna hjá þess- um tveimur liðum. Þær skoruðu tvö mörk hvor og virðast líklegar til að láta að sér kveða í deildinni. ÍBV tefldi fram gjörsamlega nýju byrjunarliði, átta nýjum út- lendingum og tveimur ungum láns- stúlkum ásamt einni sextán ára heimastúlku. Nýliðar Þróttar sóttu sig mjög eftir því sem leið á leik- inn en pressa þeirra undir lokin skilaði ekki jöfnunarmarki. „Búast má við að bæði þessi lið fái mörg mörk á sig í sumar ef þjálfararnir ná ekki að bæta varn- arleik sinna liða,“ skrifaði Arnar Gauti Grettisson um leikinn á mbl.is.  Þessar léku í fyrsta sinn í deildinni um helgina: Hafrún Rak- el Halldórsdóttir og Vigdís Edda Friðriksdóttir (Breiðabliki), Kayl- an Marckese og Tiffany McCarty (Selfossi), Gabriela Guillén, Rakel Sjöfn Stefánsdóttir og Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir (Þór/KA), Katrín Mist Kristinsdóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir (Stjörnunni), Inga Laufey Ágústsdóttir (KR), Arna Sigurðardóttir og Elísa Lana Sig- urjónsdóttir (FH), Miyah Watford, Kristjana Sigurz, Danielle Tolma- is, Olga Sevcova, Karlina Mik- sone, Grace Hancock, Hanna Kallmaier og Eliza Spruntule (ÍBV), Friðrika Arnardóttir, Je- lena Tinna Kujundzic, Laura Hug- hes, Andrea Rut Bjarnadóttir, Stephanie Ribeiro og Mary Vig- nola (Þrótti). Hefði verið betra að spara stóru orðin?  Gleymdust Fylkiskonur í umræðunni um bestu lið deildarinnar? Morgunblaðið/Eggert Efnileg Hin sextán ára gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Fylkis, gómar boltann af öryggi án þess að Tiffany McCarty framherji Selfyssinga eigi möguleika í viðureign liðanna í Árbænum á laugardaginn. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020 Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik – FH........................................ 3:0 Þór/KA – Stjarnan ................................... 4:1 Fylkir – Selfoss......................................... 1:0 ÍBV – Þróttur R........................................ 4:3 Staðan: Þór/KA 1 1 0 0 4:1 3 Breiðablik 1 1 0 0 3:0 3 Valur 1 1 0 0 3:0 3 ÍBV 1 1 0 0 4:3 3 Fylkir 1 1 0 0 1:0 3 Þróttur R. 1 0 0 1 3:4 0 Selfoss 1 0 0 1 0:1 0 Stjarnan 1 0 0 1 1:4 0 FH 1 0 0 1 0:3 0 KR 1 0 0 1 0:3 0 Pepsi Max-deild karla Valur – KR ................................................ 0:1 ÍA – KA ..................................................... 3:1 HK – FH ................................................... 2:3 Breiðablik – Grótta .................................. 3:0 Staðan: Breiðablik 1 1 0 0 3:0 3 ÍA 1 1 0 0 3:1 3 FH 1 1 0 0 3:2 3 KR 1 1 0 0 1:0 3 Fjölnir 0 0 0 0 0:0 0 Fylkir 0 0 0 0 0:0 0 Stjarnan 0 0 0 0 0:0 0 Víkingur R. 0 0 0 0 0:0 0 HK 1 0 0 1 2:3 0 Valur 1 0 0 1 0:1 0 KA 1 0 0 1 1:3 0 Grótta 1 0 0 1 0:3 0 Mjólkurbikar karla 2. umferð: Þróttur R. – Vestri ................................... 3:1 Vængir Júpíters – Víðir ........................... 2:1 Stokkseyri – Reynir S.............................. 2:8 KFG – Afturelding ................................... 0:5 Leiknir F. – Einherji................................ 3:1 Haukar – Fram ................................ (frl.) 1:2 Njarðvík – Árborg........................... (víti) 4:5 Þróttur V. – Víkingur Ó ........................... 1:2 Grindavík – ÍBV ....................................... 1:5 Tindastóll – Samherjar ............................ 1:2 Höttur/Huginn – Fjarðabyggð ............... 2:1 KF – Magni ...................................... (víti) 8:9 Mjólkurbikar kvenna 2. umferð: ÍR – ÍA....................................................... 0:7 Tindastóll – Völsungur............................. 4:1 Fjarð/Hött/Leiknir– Sindri..................... 5:0 Haukar – Víkingur R ...................... (víti) 5:4 Augnablik – Grindavík............................. 5:0 Keflavík – Afturelding ............................. 2:0 Þýskaland Darmstadt – Hannover ........................... 3:2  Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með Darmstadt í 5. sæti í B.deild. Úkraína Kolos Kovalivka – Shakhtar Donetsk... 0:1  Árni Vilhjálmsson lék fyrstu 52 mínút- urnar með Kolos sem er í sjötta sæti. Tyrkland Yeni Malatyaspor – Kasimpasa ............. 1:2  Viðar Örn Kjartansson lék fyrstu 68 mínúturnar með Yeni Malatyaspor. Búlgaría Arda – Levski Sofia ................................. 1:3  Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn með Levski sem er í fjórða sæti. Grikkland Panathinaikos – PAOK........................... 0:0  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK sem er í þriðja sæti. Danmörk AaB – Midtjylland.................................... 0:2  Mikael Anderson lék allan leikinn með Midtjylland sem er með 11 stiga forystu. Bröndby – AGF ........................................ 0:0  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Bröndby. Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 67 mínúturnar með AGF. SönderjyskE – Lyngby ........................... 1:0  Eggert Gunnþór Jónsson lék fyrstu 68 mínúturnar með SönderjyskE. Svíþjóð Örebro – AIK............................................ 0:2  Kolbeinn Sigþórsson kom inná hjá AIK á 70. mínútu í fyrstu umferð deildarinnar. Hammarby – Östersund ......................... 2:0  Aron Jóhannsson kom inná hjá Hamm- arby á 66. mínútu.  Þýskaland Úrslitakeppnin, B-riðill: Vechta – Alba Berlín......................... 72:102  Martin Hermannsson skoraði sex stig fyrir Alba, átti fjórar stoðsendingar og tók eitt frákast á 17 mínútum.  Staðan: Alba Berlín 6, Ludwigsburg 6, Bamberg 2, Frankfurt 2, Vechta 0.   KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Víkingsvöllur: Víkingur R. – Fjölnir ....... 18 Samsungvöllur: Stjarnan – Fylkir...... 19.15 Í KVÖLD! Spjótkastarinn og heimsmethafinn Helgi Sveinsson átti lengsta kast ársins í heiminum í flokki F63 hjá fötluðum á kastmóti Hattar sem fór fram á Egilsstöðum á laugardag. Helgi kastaði 51,77 metra á Vil- hjálmsvelli en hann átti þrjú köst yfir fimmtíu metrana. Það eru rúm þrjú ár síðan Helgi kastaði 59,77 en þá keppti hann í flokki F42 og á heimsmetið þar. ÍR-ingurinn Dag- bjartur Daði Jónsson kastaði 71,11 metra á Egilsstöðum en besti árangur hans er 78,30 metrar sem er aldursflokkamet 20-22 ára. Helgi með besta heimskastið í ár Ljósmynd/IFsport.is Spjótkast Helgi Sveinsson stefnir á Ólympíumót fatlaðra á næsta ári. Bandaríski bakvörðurinn Mike Di Nunno hefur gert tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild KR. Di Nunno er 29 ára bakvörður og er með bæði bandarískt og ítalskt vegabréf. Hann kom fyrst til KR á síðasta ári og varð Íslands- meistari með liðinu 2019. Hann fór til Leyma Coruna í spænsku B- deildinni og lék þar framan af vetri, áður en hann samdi aftur við KR í byrjun þessa árs. Di Nunno lék hins vegar lítið með liðinu þar sem tíma- bilinu var aflýst í mars vegna kór- ónuveirunnar. Áfram tvö ár í Vesturbænum Morgunblaðið/Hari Samdi Michele Di Nunno var öfl- ugur með KR-ingum vorið 2019. BREIÐABLIK – FH 3:0 1:0 Berglind B. Þorvaldsdóttir 2. 2:0 Alexandra Jóhannsdóttir 90. 3:0 Sveindís Jane Jónsdóttir 90. M Agla María Albertsdóttir (Breiðab.) Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðab.) Berglind Björg Þorvaldsd. (Breið.) Karólína Lea Vilhjálmsd. (Breiðab.) Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðab.) Aníta Dögg Guðmundsdóttir (FH) Sigríður Lára Garðarsdóttir (FH) Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (FH) Dómari: Gunnþór S. Jónsson – 7. Áhorfendur: 485. ÞÓR/KA – STJARNAN 4:1 1:0 María C. Ólafsd. Gros 16. 2:0 Karen María Sigurgeirsd. 32. 3:0 Hulda Ósk Jónsdóttir 51. 3:1 María Sól Jakobsdóttir 53. 4:1 Karen María Sigurgeirsd. 57. MM Karen M. Sigurgeirsd. (Þór/KA) M Berglind Baldursdóttir (Þór/KA) María C. Ólafsd. Gros (Þór/KA) Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA) Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA) María Sól Jakobsdóttir (Stjörn.) Birna Jóhannsdóttir (Stjörnunni) Dómari: Sveinn Arnarsson – 8. Áhorfendur: 186. FYLKIR – SELFOSS 1:0 1:0 Eva Rut Ásþórsdóttir 54. M Cecilia Rán Rúnardóttir (Fylki) Katla María Þórðardóttir (Fylki) María Eva Eyjólfsdóttir (Fylki) Sólveig J. Larsen (Fylki) Margrét Björg Ástvaldsd. (Fylki) Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki) Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki) Karitas Tómasdóttir (Selfossi) Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfossi) Clara Sigurðardóttir (Selfossi) Dómari: Birkir Sigurðarson – 5. Áhorfendur: 349. ÍBV – ÞRÓTTUR R. 4:3 1:0 Miyah Watford 6. 2:0 Miyah Watford 36. 3:0 Danielle Tolmais 53. 3:1 Stephanie Ribeiro 68. 3:2 Laura Hughes 78. 4:2 Fatma Kara 84. 4:3 Stephanie Ribeiro 85. M Miyah Watford (ÍBV) Karlina Miksone (ÍBV) Daniella Tolmais (ÍBV) Olga Sevcova (ÍBV) Stephanie Riberio (Þrótti) Laura Hughes (Þrótti) Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (Þrótti) Dómari: Ásmundur Sveinsson – 6. Áhorfendur: 179.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.