Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 9
SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við upplifum þetta sem yfirgang af hálfu Reykjavíkurborgar. Stjórn- völd verða að grípa inn í og tryggja að ekki verði hróflað við þjóð- vegum og stofn- brautum nema með samþykki og í góðri sátt við þau sveitarfélög sem hagsmuna hafa að gæta,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Sel- tjarnarnesi, í samtali við Morgun- blaðið. Vísar hún í máli sínu til þess að Reykjavíkurborg vill nú koma fyrir alls sex ljósastýrðum gönguþverun- um yfir Eiðsgranda, sem skilgreind- ur er sem þjóðvegur í byggð og er önnur helsta akbrautin út á Seltjarnarnes. Ásgerður segist fyrst hafa heyrt af þessum áformum í Morgunblaðinu 12. júní síðastliðinn þegar fjallað var um umdeilda fram- kvæmd við Eiðsgranda. Var það for- maður skipulags- og samgönguráðs sem í viðtali greindi frá þessum áformum. Ásgerður gagnrýnir borgina fyrir fullkomið samráðsleysi og segir skipulagsvald hennar ekki geta gengið svo langt að hamla sam- göngum til Seltjarnarness og frá. „Við erum sjálfstætt bæjarfélag og við eigum ekki að þurfa að vera í stanslausri varnarbaráttu með sam- göngumál til og frá bænum. Þessu verður að breyta,“ segir hún. Síendurtekið samráðsleysi Ásgerður segir Reykjavíkurborg meðvitað vera að þrengja að sveitar- félagi sínu með truflunum á umferð. „Við getum ekki á neinn hátt sætt okkur við að ítrekað og án samráðs sé þrengt að okkar stofnbrautum. Í ljósi þessa hef ég óskað eftir fundi með forstjóra Vegagerðarinnar til að ræða þessi mál,“ segir Ásgerður og heldur áfram: „Reykjavíkurborg er meðvitað og ítrekað að þrengja að aðgengi að Seltjarnarnesi. Er það meðal annars gert með lækkun á hámarkshraða á Hringbraut niður í 40 km/klst, leng- ingu á ferðatíma fólks með ósam- stilltum ljósum, strætóstoppistöð á miðri Geirsgötu og breytingu á gatnamótum Lækjargötu og Geirs- götu. Ég skil ekki þetta samráðs- leysi. Við viljum öll tryggja gott flæði á götum, skapa öryggi fyrir gangandi og hjólandi ásamt því að tryggja gott aðgengi fyrir slökkvi- og sjúkrabíla ef til rýmingar kemur. Samráð og samvinna skiptir öllu máli fyrir þá sem búa í Vesturbæ Reykjavíkur og á Seltjarnarnesi.“ Þá segir Ásgerður allt benda til þess að ákvörðun um gönguþveranir hafi verið tekin án þess að fyrir liggi þarfagreining á nauðsyn þeirra. „Ég hef ekki heyrt annað en að flæði umferðar sé nokkuð gott á Eiðsgranda. Og á það við um bílaum- ferð og umferð hjólandi, hlaupandi og gangandi vegfarenda,“ segir hún að endingu. Borgin sýnir af sér yfirgang og samráðsleysi  Bæjarstjóri vill að stjórnvöld grípi inn í þrengingarstefnu Reykjavíkurborgar Morgunblaðið/Árni Sæberg Þögn Hátt í sex vikur eru síðan borgarstjóra bárust mótmæli frá Seltjarnar- nesi vegna þessarar stoppistöðvar við Geirsgötu. Ekkert svar hefur borist. Ásgerður Halldórsdóttir FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020 www.danco.is Heildsöludreifing yrirtæki og verslanir Sumarleikföng í úrvali Kynntu þér málið og pantaðu á vefverslun okkar www.danco.is Kútar S ndlau Sundboltar 120x120x87 cm Fótbolta- æfingasett Vatnsblöðrur Hoppubolt 50 cm Fötusett Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Líklegast er að lóðir annars vegar á tjaldsvæði við Þórunnarstræti og hins vegar við Skarðs- hlíð verði fyrir valinu undir húsnæði fyrir nýjar heilsugæslustöðvar á Akureyri. Ríkiskaup og Framkvæmdasýsla ríkisins stóðu fyrir markaðskönnun fyrir húsnæði fyrir heilsugæsluna á Akureyri fyrr á þessu ári. Jón Helgi Björnsson, framkvæmdastjóri Heil- brigðisstofnunar Norðurlands, segir í bréfi til starfsfólks að ekki hafi komið fram heppilegt húsnæði fyrir starfsemina í þeirri könnun. Ákveðið hefur verið að byggja nýjar heilsu- gæslustöðvar á Akureyri, eina sem sinnir norð- urhluta bæjarins og verður að líkindum við Skarðshlíð og hina fyrir suðurhlutann sem verður væntanlega reist á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti. Sérhannað húsnæði „Við fögnum því mjög að málið sé komið í þennan farveg. Það er virkilega ánægjulegt að á Akureyri verði byggðar tvær heilsugæslu- stöðvar sem eru sérhannaðar fyrir þá starf- semi sem stöðin sinnir og nú sjáum við að málið er að þokast áfram,“ segir Jón Helgi. Starf- semin á Akureyri hefur um árabil verðið rekin í húsnæði við Hafnarstræti, í miðbæ Akureyrar, og lagt undir sig nokkrar hæðir í því húsi. Fleiri möguleikar í stöðunni Nú er verið að undirbúa frumathugun vegna fyrirhugaðra framkvæmda og gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki fljótt. Jón Helgi segir að litið verði til staðarvals- greiningar sem unnin var fyrir Akureyrarbæ í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Norðurlands, en þar voru lóðir við tjaldsvæðið á Akureyri og Skarðshlíð líklegastar. Hann bendir þó á að fleiri möguleikar séu í stöðunni. HSN fékk 100 milljóna fjárframlag til hönn- unar á nýjum heilsugæslustöðvum í fjárauka í vor og gæti þannig hafið vinnu við hönnun og undirbúning verksins. Jón Helgi segir að vonir standi til að ef fjár- magn fáist á fjárlögum gætu framkvæmdir hafist á næsta ári. „Þetta er skýrt dæmi um innviðafjárfestingu sem hyggilegt er að ráðast í við þær aðstæður sem uppi eru,“ segir hann. Styttist í hönnun nýrra heilsugæslustöðva  Lóðir við Skarðshlíð og Þórunnarstræti á Akureyri verða líklegast fyrir valinu undir húsnæðið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.