Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt 50 ára Þórdís ólst upp í Keflavík en býr í Garðabæ. Hún er viðskipta- fræðingur að mennt frá Háskól- anum í Reykjavík og starfar hjá KPMG. Maki: Helgi Ingólfur, raffræðingur og framkvæmdastjóri Rafholts. Synir: Birnir Snær, f. 1991, og Ernir Snær, f. 1996. Foreldrar: Guðrún Jónína Karls- dóttir, f. 1951, fyrrverandi sauma- kona, og Sigurjón Rúnar Vikars- son, f. 1950, setjari. Þau eru búsett í Reykjanesbæ. Þórdís Árný Sigurjónsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Forðastu rifrildi við ástvini, ekki síst foreldra og maka. Hugaðu að því hvernig þú getir öðlast heilbrigða sál í hraustum líkama. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert upp á þitt besta og hefur já- kvæð áhrif á umhverfi þitt með léttleika þínum. Vertu öruggur með þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hugaðu að hjartanu. Pening- arnir flæða til þín úr öllum áttum, líka óvæntum. Jafnvægi skapast þegar þú leyfir loftinu að endurnæra þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Vinsældir þínar fara vaxandi á næstunni. Gerðu ráð fyrir lagfæringum og viðgerðum heima fyrir og taktu frá tíma fyrir mikilvæg fjölskyldumál. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hver jákvæð niðurstaða felur í sér tiltekin óþægindi. Nú þarf að taka af skarið og komast að niðurstöðu í pen- ingamálum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Samband þitt við vini þína og kunningja á eftir að batna mikið á næstu vikum. Endurfundir ættingja veita þér tækifæri til þess að rifja upp æskuminn- ingar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vertu með allar klær úti við að auka menntun þína og tækifæri til þess að læra eitthvað nýtt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Besta leiðin til að sýna ást þína núna er að treysta. Góðlátlegt grín er í lagi, en ekki að niðurlægja einhvern með gamanseminni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Aflaðu þér upplýsinga um yfirmanninn eða fyrirtækið, þú færð stöðuhækkun með því að sýna frum- kvæði. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú er rétti tíminn til þess að taka upp heilsusamlegra líferni. Sambönd við maka og aðra koma þér að gagni núna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Stundum er erfiðara að skapa jafnvægi milli ástar og atvinnu en í þjóð- arfjárlögum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Forðastu rifrildi við maka og nána vini í dag. Nú er rétti tíminn til að ganga að samningaborði. og golf. Við fórum eftirminnilega siglingu frá Ameríku til Rómar á 50 ára brúðkaupsafmælinu. Við höfum líka nokkrar skólasystur úr Kenn- araskólanum ferðast saman, t.d. til Barselóna á 50 ára kennaraafmæl- inu. Við hjónin eignuðumst sumar- bústað með dóttur okkar og sam- býlismanni hennar fyrir þremur fremur í bæjarstjórn Neskaupstaðar nokkur ár sem vara- og aðalmaður og var formaður skipulagsnefndar og jafnréttisnefndar Neskaup- staðar. Helstu áhugamál Steinunnar eru ferðalög og golf og hún stundar líka sund og jóga. „Við hjónin höfum ver- ið dugleg að sameina Spánarferðir S teinunn Lilja Aðalsteins- dóttir er fædd 15. júní 1945 í Neskaupstað og ólst þar upp. „Tólf ára gömul var ég farin að vinna á fullu í frystihúsinu til 16 ára aldurs öll sumur, stundum frá 8 á morgnana til 23 á kvöldin. Við vor- um keyrð úr og í vinnu á vörubíls- palli. Opið var að aftan og það var mest spennandi að sitja þar.“ Steinunn gekk í Barnaskóla Nes- kaupstaðar og lauk landsprófi frá Gagnfræðiskólanum þar. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Ís- lands 1965 og hóf kennslu við Barnaskólann í Neskaupstað. Hún var eitt ár við nám við Kennarahá- skólann í Kaupmannahöfn frá útibúi í Óðinsvéum 1982-1983. Hún lauk sérkennaranámi og meistaranámi frá KHÍ 2004. „Ég tók fyrsta hluta sérkennaranáms frá Hallormsstað vor og haust í tvö ár. Það var upp- hafið að fjarnámi undir stjórn Berit Johnsen á Hallormsstað.“ Steinunn var aðstoðarskólastjóri við Nesskóla frá 1983-97, en nem- endur voru þá yfir 200 í skólanum. Hún var kennsluráðgjafi við Skóla- skrifstofu Austurlands 1997-2007, sem er á Reyðarfirði og heimsótti skóla á öllu Austurlandi. „Ég þurfti því að keyra yfir Oddsskarð, það var ekki alltaf blíðan þar og ég fór stundum út af. Þetta er allt annað líf eftir að göngin komu.“ Steinunn lauk starfsævinni sem sérkennari við Verkmenntaskóla Austurlands og var þar í tvö ár við stofnun sér- deildar við skólann. Steinunn skrifaði grein í riti Delta Kappa Gamma, Þekking – þjálfun – þroski, sem var um einstaklings- miðað lestrarnám í 1. bekk í Nes- skóla. Hún hefur einnig ritað nokkra pistla á vef Skólaskrifstof- unnar. Steinunn hefur starfað mikið að félagsmálum. Hún var formaður í nokkrum félögum s.s. Kvenfélaginu Nönnu, Kennarasambandi Austur- lands, Zetadeild Delta Kappa Gamma (félags kvenna í fræðslu- störfum) og er nýhætt sem formað- ur Mæðrastyrksnefndar kven- félagsins Nönnu. Hún sat enn árum í Eyjólfsstaðaskógi á Fljóts- dalshéraði sem var ekki alveg tilbú- inn og höfum við eytt miklum tíma þar. Fjölskyldan ætlar að hittast þar um helgina og fagna afmælinu.“ Fjölskylda Eiginmaður Steinunnar er Krist- inn Ívarsson, f. 17.6. 1946, fyrrver- Steinunn Lilja Aðalsteinsdóttir, sérkennari og kennsluráðgjafi – 75 ára Fjölskyldan Steinunn og Kristinn ásamt börnum og tengdabörnum árið 2013. Ekki alltaf blíðan í Oddsskarði Skólasystur Í Napóli 2019 á slóðum bókarinnar Framúrskarandi vinkona. Hjónin Í golfferð á Spáni. 30 ára Bryndís er úr Grafarvogi en býr í Hveragerði. Hún er með MA-gráðu í fé- lagsráðgjöf frá HÍ og er félagsráðgjafi hjá Barnavernd Árborgar. Maki: Kjartan Smári Jóhannsson, f. 1986, lögfræðingur og vinnur á Bílaverkstæði Jóhanns og er meðeigandi þar. Börn: Guðmundur Logi, f. 2016, og Júlía Hrafney, f. 2019. Foreldrar: Guðmundur Guðfinnsson, f. 1959, bakari og eigandi Brauðhússins í Grímsbæ, og Lena María Gústafsdóttir, f. 1961, vinnur í Brauðhúsinu. Þau eru bú- sett í Grafarvogi. Bryndís Guðmundsdóttir Til hamingju með daginn Hveragerði Júlía Hrafney fæddist 11. desember 2019 kl. 23.08 á Landspít- alanum. Hún vó 3.725 g og var 51 cm á lengd. Foreldrar hennar eru Bryndís Guðmundsdóttir og Kjartan Smári Jóhannsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.