Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 16
ildar (kvóta), oftast er miðað við þriggja ára veiðireynslu kvótahafa. Fimmtíu fyrirtæki voru með 88% veiðiheimilda 2019. Fjöldi skipa og báta með aflaheimildir var 540 2018 og 468 2019. Telur „útgerð- araðallinn“ 50 eða 540 eða 468? Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða frá 2006 nr. 106 (1. mgr.) eru nytjastofnar við Ís- land sameign þjóðarinnar og út- hlutun veiðiheimilda samkvæmt lög- um þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði ein- stakra aðila yfir veiðiheimildum. Út- hlutun veiðiheimilda (kvóta) er til eins árs í senn. Til þess að reyna að átta sig á nefndum daglegum bata/hag „út- gerðaraðalsins“ (123 milljónir á dag) má skoða síðustu afkomutölur sjávarútvegs eftir skatt, útgefnar af Hagstofu Íslands, en þar kemur fram: Fyrir árið 2018 var hagnaður á dag í fiskveiðum 22.820.164 kr., í fiskvinnslu 32.779.836, í sjávar- útvegi 55.600.000. Yfir tímabilið 2014-2018, þ.e. 5 ára meðaltal, var hagnaður á dag í fiskveiðum 42.603.047 kr., í fisk- vinnslu 34.512.482, í sjávarútvegi 77.115.529. Ofangreindar tölur ríma illa við hagnaðar(hag)tölur sem vitnað er til í grein Benedikts. Er hin rétta tala 123 milljónir eða 23 milljónir eða 43 milljónir? Það er brýnt að fá upplýs- ingar um hvernig útkoman 123 milljónir á dag er fengin og hvort hún nái til fiskveiða eingöngu sem væri eðlilegt til þess að ekki verði litið á hana sem upphrópun eina gripna úr lausu lofti til þess eins að auka á úlfúð milli almennings og svonefnds „útgerðaraðals“ á Íslandi. Nóg er öfundin fyrir. Oft birtast í blöðum greinar eftir ein- staklinga þar sem hneykslast er á arð- ráni svonefndra kvóta- eigenda og er þá átt við þá einstaklinga og fyrirtæki sem skráð eru sem handhafar veiðileyfanna/ úthlutaðs kvóta hverju sinni. Greinarhöfundar telja sig yfirleitt vera málsvara réttlætis og almanna- hagsmuna og tala fyrir hönd flestra á Íslandi. Síðast las ég grein 29. maí í mbl sem ber yfirskriftina Mikill vill meira – og meira – og meira eft- ir Benedikt Jóhannesson. Segir hann að „útgerðaraðallinn“ hafi nýtt sér reglurnar, sem settar hafa verið um úthlutun kvóta, til þess að skapa dagvaxandi ójöfnuð á milli „útgerð- araðalsins“ og almennings. Segir hann að hagur greinarinnar – virð- ist eiga við afkomu fiskveiða og fisk- vinnslu samtals, þó ekki viss – batni dag frá degi um 123.000.000 krónur. Það er líklegt að margir skelli sér á lær fullir hneykslunar við svoddan upphæð og taki undir með Benedikt um forkastanlega græðgi „útgerð- araðalsins“. Ekki er ljóst annars vegar hvaða tímabil hann miðar við – er það síð- astliðið ár eða nær það yfir lengri tíma – og hins vegar hvernig reikn- ar hann sig niður á þessa tölu. Undirritaður er þeirrar skoðunar að þau sérréttindi sem um ræðir nái eingöngu til úthlutunar á veiðikvóta. Hvernig greiðsla fyrir þessi sérrétt- indi verði ákvörðuð bæði hvað varð- ar grundvöll og upphæð afgjaldsins er álitamál. Sitt sýnist hverjum og niðurstaðan verður óhjákvæmilega einhvers konar málmiðlun milli ólíkra sjónarmiða og hagsmuna líkt og við á um alla gjaldtöku og skatt- heimtu hins opinbera. Gæta þarf þess að slátra ekki mjólkurkúnni í þeirri vegferð og hafa í huga að vel- ferð þjóðarinnar er ekki í litlum mæli háð því að fiskveiðum og af- leiddri fiskvinnslu séu búin sann- gjörn starfsskilyrði. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu eru að jafnaði um 1.300 skip og bátar með veiðileyfi, sem er skilyrði fyrir úthlutun veiðiheim- Eftir Þorbjörn Guðjónsson Þorbjörn Guðjónsson »Undirritaður er þeirrar skoðunar að þau sérréttindi sem um ræðir nái eingöngu til úthlutunar á veiðikvóta. Höfundur er eftirlaunaþegi. tgudjonssongmail.com Öfund 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020 Þegar strandveiðum var komið á sumarið 2009 urðu ákveðin vatnaskil í umræðunni um kvótakerfið. Al- þingiskosningar voru nýafstaðnar sem mörk- uðu endalok Frjáls- lynda flokksins (F), sem hafði í raun byggt stefnuskrá sína á frelsi til handfæraveiða og andstöðu við kvótakerf- ið. Í kosningabaráttunni tók Vinstri- hreyfingin – grænt framboð undir með F varðandi frelsi til handfæra- veiða. Steingrímur J. Sigfússon, þá- verandi sjávarútvegsráðherra, kynnti þann 16. apríl 2009 áætlanir um að frjálsum handfæraveiðum yrði komið á við strendur landsins á næsta kjörtímabili. Ráðherra boðaði frumvarp til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða um strandveiðar, að afloknum kosningum. Enginn vafi er á að útspilið hafði sín áhrif á úrslit kosninganna og þar með umræðu um kvótakerfið. Fylgi við Frjálslynda flokkinn minnkaði og fór svo að flokkurinn fékk 4.148 at- kvæði (2,2%), sem nægði honum ekki til að fá kjörinn fulltrúa til Alþingis í kosningunum sem haldnar voru þann 25. apríl. Hann gat þó fagnað sínum þætti í að auka frelsi til handfæraveiða. Úrslit kosninganna urðu þau að fráfarandi ríkisstjórn Samfylk- ingar og VG fékk hreinan meirihluta, 51,7%. Þann 18. júní af- greiddi Alþingi strand- veiðifrumvarp ríkisstjórnarinnar. Viku seinna undirritaði Jón Bjarnason, þáver- andi sjávarútvegsráð- herra, reglugerð um veiðarnar og fyrstu bátarnir hófu veiðar sunnu- daginn 28. júní. Eins og vænta mátti voru menn ekki á eitt sáttir um að strandveiðum hefði verið komið á. Í dag hefur hins vegar fennt yfir þær óánægjuraddir og ef einhverjar eru, þá eru þær hrópandi í eyðimörkinni. Fullyrða má að almenn ánægja er meðal þjóðarinnar með strandveiðar og mikilvægi þeirra fyrir hinar dreifðu byggðir. Mikilvægi strandveiða Þróun veiðanna hefur verið ævin- týraleg. Þær hafa veitt þúsundum sjómanna atvinnu og tryggt stöðugt framboð á 10.000 tonnum af þorski á síðasta fjórðungi hvers fiskveiðiárs og þannig fyllt upp það skarð sem skapast þegar fjöldi aðila í sjávar- útvegi tekur sér frí. Aflinn er eftir- sóttur og aðgengilegur jafnt stórum sem smærri aðilum. Nánast allur seldur gegnum fiskmarkaði og treyst- ir því í leiðinni rekstrargrunn þeirra. Strandveiðikerfið hefur fylgt ákalli um breytingar og mætt kröfum markaðarins. Þannig eru gæði aflans nú rómuð. Aflinn ísaður um leið og hann hefur verið blóðgaður og hita- stig við löndun nálægt núllinu. Veið- arnar hafa frá upphafi verið bundnar við fjögur svæði og tryggt þannig út- gerðina um land allt. Mætt kröfum hinna dreifðu byggða. Samfelldar veiðar Fyrir tveimur árum var gerð sú breyting á kerfinu að í stað þess að ætluðum heimildum til strandveiða væri skipt niður á svæðin varð til heildarviðmiðun. Henni var ætlað að auka öryggi við veiðarnar með því að tryggja 48 veiðidaga sem skiptust jafnt á strandveiðimánuðina fjóra maí – ágúst. LS var sammála breyting- unni enda forsenda hennar að 48 dag- ar væru tryggðir. Annað kom þó á daginn sem virðist ætla að bíta á yfir- standandi vertíð. Árin 2018 og 2019 náði afli strand- veiðibáta ekki því sem þeim var ætlað. Markmiðið um 48 daga náðist og var það í fyrsta sinn sem tímabil strandveiða var ekki rofið með stöðv- un veiða á einhverju svæðanna. Að jafnaði nýtir strandveiðibátur 26 veiðidaga af þeim 48 sem í boði eru. Engar veiðar í ágúst? Í ár háttar því svo að vegna fjölg- unar báta á veiðum stefnir heildarafli þeirra í að fara umfram ætlaða við- miðun. Ef heldur sem horfir gæti Fiskistofa orðið að auglýsa stöðvun veiða áður en júlí er liðinn. Eins og vænta má hafa strandveiðisjómenn af þessu þungar áhyggjur. Að enginn af þeim 700 sem stunda veiðarnar í júlí fái að róa í ágúst. 36 dagar búnir af 48 og allt stopp. LS hefur á undanförnum mán- uðum reynt að tryggja að veiðarnar verði leyfðar til loka ágúst í þá 48 daga sem þeim eru ætlaðar. Sann- gjarnt sé að taka tillit til aðstæðna í þjóðfélaginu sem leiði meðal annars til meiri þátttöku í strandveiðum. Ætla verði aukið magn til veiðanna þannig að tryggt verði að þær veiti at- vinnu í þá fjóra mánuði sem þeim er ætlað og greitt hefur verið fyrir. Veiðiheimildir skertar Þrátt fyrir að nóg sé til að ónýtt- um heimildum í þorski hefur sjávar- útvegsráðherra ekki orðið við beiðni LS. Eina svarið sem fengist hefur er reglugerð sem skerti aflaheimildir til strandveiða um 1.000 tonn – 9%. Andstætt því sem atvinnuveganefnd Alþingis hafði talað fyrir. Jafnframt hefur ráðherra ekki enn orðið við því að óveiddur afli frá fyrra ári komi til viðbótar í ár. Aflaheimildir sem hér er hvatt til að bætt verði við strandveiðar eru ekki frá neinum teknar og myndu því að óbreyttu ekki nýtast til verð- mæta á hamfaraárinu mikla 2020. Skorað á ráðherra Auk þess sem hér hefur verið nefnt um gildi strandveiða skal ítrekað það lím sem þær hafa skap- að innan stjórnkerfis fiskveiða. Að nugga og opna það sár er engum til heilla. Hér með er skorað á Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að lýsa því yf- ir að strandveiðar verði tryggðar í 48 daga, þeim ljúki 31. ágúst eins og gengið var út frá þegar kerfinu var breytt. Eftir Örn Pálsson » LS var sammála breytingunni enda forsenda hennar að 48 dagar væru tryggðir. Annað kom þó á daginn sem virðist ætla að bíta á yfirstandandi vertíð. Örn Pálsson Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. orn@smabatar.is Strandveiðar límið í fiskveiðistjórnunarkerfinu Þann 28. apríl sl. sagði Icelandair Gro- up upp 900 flug- freyjum, 420 flug- mönnum og 150 flugvirkjum. Um miðjan maí gerði fyrirtækið nýja kjara- samninga við Félag íslenskra atvinnuflug- manna og Flugvirkja- félag Íslands. Samn- ingar þessir gilda í fimm ár. Nú hafa bæði þessi félög samþykkt samningana. Bogi Nils Bogason forstjóri orðar það svo: „Þetta er stórt skref til að tryggja sam- keppnishæfni félagsins og veiga- mikill þáttur í fjárhagslegri end- urskipulagningu félagsins.“ Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, kallar þetta „tímamótasamning“ og bætir við: „Flugmenn eru stoltir af því að hafa náð markmiðunum sem lagt var upp með, sem eykur enn á samkeppnishæfni Icelandair.“ Greinilega réttur maður á réttum stað. Enn er þó ósamið við „þriðju stétt“. Stjórn Icelandair hefur gert Flugfreyjufélagi Íslands tilboð sem félagið metur sem allt að 40% kjaraskerðingu. Samninganefnd fé- lagsins hafnaði tilboðinu en þá sendi Bogi Nils tilboðið bara til einstakra félagsmanna! Þann 20. maí sendi stjórn Icelandair Flug- freyjufélagi Íslands svokallað loka- tilboð. Og enn hafnaði félagið til- boðinu og aftur notaði Bogi Nils hina nýstárlegu aðferð sína og sendi tilboðið beint til fé- lagsmanna. Lokatilboðinu var hafnað, samstöðu flugfreyja tókst ekki að rjúfa. Talskonur flugfreyja benda á að kjaraskerðingarstefna Icelandair sé ekki alveg ný: „Þeir eru búnir að bjóða nánast sömu samninga síðan haustið 2018 og það er ástæðan fyrir að ekki hefur verið samið.“ Auðvitað er samningsstaða flug- stéttanna erfið. Icelandair Group rambar á barmi gjaldþrots og stefnir á að safna 29 milljarða nýju hlutafé. Biðlar helst til lífeyrissjóðanna og enn frekar til ríkisins. Með tilkomu COVID-19 getur Icelandair sett stóraukið afl á bak við kjaraskerðingakröfur sínar, enda COVID-19 sérlega hentugt verk- færi til að hræða fólk til undirgefni. Icelandair er auð- hringur sem keppir á hnattvæddum markaði. Bogi Nils forstjóri hamrar á því að lækka þurfi „einingarkostnað“, einkum að launakostnaður verði „samkeppnisfær“ við „alþjóðleg flugfélög“. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, spyr: „Samkeppni um hvað? Verstu lífsgæði fyrir mestu vinnuna?“ Hnattvæðingin felur í sér frjálst flæði fjármagns og fjárfestinga milli landa. Óskastaða stórfyr- irtækja gagnvart samtökum launa- fólks. Þau hóta því stöðugt að flytja starfsemi sína til annars lands, þar sem skilyrði eru hag- felldari, nema verkalýðssamtök gefi eftir varðandi kaup og kjör. Sum þeirra létu ekki sitja við orðin tóm og hafa flutt starfsemi sína til lágkostnaðarlanda í Asíu. Einn leikurinn í refskák auðvaldsins. Andspænis stórfyrirtækjunum standa samtök launafólks sem berjast við atvinnuleysi og reyna að toga starfsemina til sín eða halda henni. Við þau skilyrði þurfa verkalýðshreyfingar ólíkra svæða að undirbjóða hver aðra. Auðhring- arnir stilla enn fremur stjórnvöld- um einstakra ríkja upp við vegg og spyrja hver bjóði besta þjónustu, lægst aðstöðugjald, besta skatta- umhverfi o.s.frv.? Ísland þarf flugrekstur. Það til- heyrir innviðum samfélagsins. En á íslenska ríkið að moka millj- örðum í rekstur Icelandair án þess að ráða nokkru um rekstrarstefn- una og án þess að breyta því fé í eign? Þarf Ísland að keppa um Norður-Atlantshafsmarkaðinn? Gera sig gildandi á alþjóðlegum áhættumarkaði? Í kreppu og minnkandi arðsemi heldur auðvaldið því alltaf fram að launafólk þurfi að skerða laun sín. Í kreppunni á 4. áratug 20. aldar reyndi auðvaldið að skerða laun, en tókst það ekki. Kjörin versnuðu vegna atvinnuleysis, en kauptaxt- ana tókst að verja. Hörðustu stéttaátökin á Íslandi áttu sér stað í miðri þeirri kreppu. Gúttóslag- urinn í Reykjavík 1932 og Nóvu- deilan á Akueyri 1933. Í báðum til- vikum ætluðu verkalýðsfjandsamlegar bæjar- stjórnir að lækka laun verka- manna. Með órofa samstöðu sigr- uðu verkalýðssamtökin og komu í veg fyrir tilræðin. Gúttóslagurinn var hörðustu átök sem orðið hafa í Reykjavík á öldinni sem leið, ef frá er talinn 30. mars 1949. Vorið 1970 var síðasta meiriháttar verkfall á vegum ASÍ, það síðasta af hálfu ASÍ-félaganna, þar til nú í vetur eða í nærri hálfa öld. Það var m.ö.o. sagt skilið við stéttabarátt- una af hálfu ASÍ-forystunnar og við tók stéttasamvinna, miðstýring og sérfræðingaveldi. Ekki sigldu þó öll samtök launa- fólks lygnan sjó það sem af er öld- inni. Árið 2014 og 2015 áttu ýmis félög opinberra starfsmanna í hörðum verkfallsátökum, sumum þeirra í æðilöngum. Það er aug- ljóst að sum stéttarfélög flugstétt- anna hafa tileinkað sér stétta- samvinnustefnu, látið undan kröfum Icelandair um grófar kjaraskerðingar, jafnvel til langs tíma. Flugfreyjur hafa hins vegar ekki beygt sig undir okið og standa þétt saman. Það vekur von að stéttasamvinnustefnan hefur ekki sömu tök á verkalýðshreyf- ingunni og áður. Efling-stétt- arfélag náði fram meginkröfum sínum í samningi við samband ís- lenskra sveitarfélaga 10. maí. Efl- ing var auðvitað ekki í jafnþröngri stöðu og flugstéttirnar en var þó lamin með COVID-keyrinu. Það er lífsspursmál í harðnandi aðstæðum stéttabaráttunnar að öll stéttvís launþegasamtök stilli sér upp við bakið á Flugfreyjufélagi Íslands, þarf að bíða þess lengi? Icelandair-kjara- deilan og Covid-19 Eftir Ólaf Þ. Jónsson » Það er lífsspursmál í harðnandi aðstæð- um stéttabaráttunnar að öll stéttvís launþega- samtök stilli sér upp við bakið á Flugfreyjufélagi Íslands. Ólafur Þ. Jónsson Höfundur er skipasmiður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.