Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.06.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020 Dagskrá: Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins Vakin er athygli á að allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs Grand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 16. júní kl. 17:00 Gildi–lífeyrissjóður Ársfundur 2020 ▪ Lífeyrissjóður www.gildi.is Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Áhyggjur af eigin fjárhag jukust verulega meðal landsmanna eftir að faraldur kórónuveirunnar hófst hér á landi og þótt meirihluti fólks segi fjölskylduna ná endum vel saman fækkaði töluvert í þeim hópi eftir að faraldurinn hóf innreið sína. 13,4% segja fjölskylduna ná illa eða alls ekki endum saman eftir að veiru- faraldurinn hófst. Þrátt fyrir þetta virðast Íslendingar enn upp til hópa vera hamingjusamir og staðsetja flestir sig á efstu stig hamingju- kvarða. Ellefu prósent segjast á hinn bóginn vera óhamingjusamari en þau voru fyrir ári. Um fjórð- ungur landsmanna, 25,3%, segist vera hamingjusamari en hann var í fyrra. Þessar upplýsingar má lesa út úr ítarlegri viðhorfskönnun sem Mask- ína gerði meðal þjóðarinnar fyrir BSRB um áhrif kórónuveirunar á líf og störf einstaklinga en hún var gerð frá 24. apríl til 4. maí sl. Þegar spurt var hvort fjárhags- áhyggjur fólks hefðu aukist, minnk- að eða staðið í stað eftir að farald- urinn hófst sögðu 62,2% að þær hefðu staðið í stað. 34,9% sögðu hins vegar að fjárhagsáhyggjurnar hefðu aukist nokkuð (26%) eða mikið (8,9%) eftir að faraldurinn hófst. 2,7% sögðu áhyggjurnar hafa minnkað. Eru auknar fjárhagsáhyggjur áberandi meiri meðal fólks sem er með lægri heimilistekjur en 400 þúsund kr. á mánuði, fólks sem býr í leiguhúsnæði og þeirra sem eru yngri en 40 ára. 7,7% þurftu að leita aðstoðar Þegar spurt var hvort viðkom- andi eða fjölskylda hans hefði þurft að leita eftir fjárhagsaðstoð eftir að faraldur kórónuverunnar hófst svöruðuðu 92,3% því neitandi. 7,7% sögðust hins vegar hafa þurft að leita eftir fjárhagsaðstoð. Tals- verður munur var á svörum kynjanna við þessari spurningu. 9,8% kvenna sögðust hafa þurft að leita eftir fjárhagsaðstoð en hið sama á við um 5,6% karla. Fólk með heimilistekjur lægri en 400 þúsund þurfti fremur en aðrir tekjuhópar að leita eftir aðstoð og 17,6% þeirra sem búa í leiguhúsnæði sögðust hafa þurft að leita eftir fjárhags- aðstoð. Yngstu aldurshóparnir, frá 18 til 39 ára, eru áberandi fleiri meðal þeirra sem leituðu eftir fjár- hagsaðstoð en þeir sem eldri eru skv. könnuninni. Veirufaraldurinn hafði í för með sér verulegar breytingar á stöðu margra á vinnumarkaði, sérstaklega meðal fólks á almenna vinnumark- aðinum. 81,9% þeirra sem starfa hjá hinu opinbera sögðu stöðu sína á vinnumarkaði óbreytta en 64,6% fólks á almenna markaðinum sögðu stöðu sína ekkert hafa breyst. Einn af hverjum sex svarendum sem starfa á almenna vinnumarkaðinum eða 20,2% varð fyrir því að starfs- hlutfall hans var skert en aðeins 3% sem þeirra starfa hjá ríki eða sveit- arfélögum sögðust hafa orðið fyrir því. Álag í starfi jókst hins vegar verulega meðal opinberra starfs- manna en um 53% þeirra sögðu álagið hafa aukist. 36% fólks á al- menna markaðinum sögðu álag í starfi hafa aukist í faraldrinum. Þegar þeir sem sögðu að staða þeirra á vinnumarkaði hefði breyst eftir að faraldurinn hófst voru spurðir nánar um það kom í ljós að 11,8% þeirra hafði verið sagt upp störfum. Starfshlutfalli var breytt hjá 57,2% þessa hóps og 9,8% sögð- ust vera komin í launalaust leyfi. Ríflega 71% þeirra sem sagt var upp störfum sagðist fá uppsagn- arfrestinn greiddan en 28,5% sögð- ust ekki fá hann greiddan. Rétt rúmur helmingur þeirra sem sagt var upp var beðinn að vinna út upp- sagnarfrestinn. Fram kemur að 51,9% lands- manna eiga kost á að vinna í fjar- vinnu skv. niðurstöðum könnunar- innar. Mikill munur er þó á því eftir menntunarstigi; 81,3% þeirra sem eru með háskólapróf eiga þess kost en aðeins 22,2% þeirra sem eru ein- göngu með grunnskólapróf. Um 43% þeirra sem eru í laun- aðri vinnu, hlutastarfi eða segjast vera heimavinnandi segjast vinna einhverja fjarvinnu í dag. Yfir 90% þessa hóps segja fjarvinnuna hafa aukist eftir að faraldurinn hófst og mörgum virðist líka fjarvinnan vel. Tæpum 58% líkar hún frekar eða mjög vel og er áberandi að ein- staklingum með börn á heimilinn líkar fjarvinnan vel og mun betur en þeim sem búa án barna á heimilum. 65% svarenda með þrjú börn eða fleiri á heimili líkar fjarvinna frem- ur eða mjög vel. Áhrif einangrunar og lokana vegna smitvarna birtast greinilega í svörum í könnuninni. Áberandi er t.a.m. að gæðastundum sem svar- endur sögðust hafa átt með fjöl- skyldu sinni fækkaði sérstaklega mikið meðal 60 ára og eldri en um 45% þeirra sögðu gæðastundunum hafa fækkað. Á móti fjölgaði gæða- stundum áberandi mest meðal barnafjölskyldna. Hátt í 70% þeirra sögðu gæðastundum hafa fjölgað. Áhyggjurnar af fjárhagnum jukust  Fjórðungur landsmanna er hamingjusamari en fyrir ári en 11% eru óhamingjusamari  13,4% ná illa eða alls ekki endum saman  Miklum meirihluta fólks með börn líkar vel að vinna fjarvinnu heima Áhrif kórónuveirunnar á líf og störf Íslendinga Telur þú að þú sért hamingjusamari eða óhamingju- samari en þú varst á sama tíma fyrir ári? 25% Íslendinga að meðaltali töldu sig vera töluvert eða mun hamingjusamari en fyrir ári Hæsta hlutfall þeira sem telja sig hamingjusamari en fyrir ári (prósentustig umfram meðaltal innan sviga) 11% Íslendinga að með-altali töldu sig vera töluvert eða mun óhamingju- samari en fyrir ári Hæsta hlutfall þeirra sem telja sig óhamingjusamari en fyrir ári (prósentustig umfram meðaltal innan sviga) Samkvæmt könnun sem var gerð fyrir BSRB 24. apríl til 4. maí sl.* Karlmaður (1%) 30-39 ára (4%) Býr í nágrannasveitarfélagi höfuðborgarinnar (5%) Er með langt háskólanám (2%) Með tekjur undir 400 þús. kr. á mánuði (4%) Er fráskilinn (10%) Ekki með börn á heimilinu (8%) Býr í foreldrahúsum (5%) Er í vinnu á almenna vinnumarkaðinum (2%) Kona (2%) 18-29 ára (15%) Búsett utan höfuð- borgarsvæðisins (3%) Er með stutt háskólanám (3%) Með tekjur á bilinu 400- 550 þús. kr. á mánuði (6%) Er einhleyp (1%) Með 1-2 börn á heimilinu (4%) Býr í leiguhúsnæði (8%) Vinnur hjá hinu opinbera (1%) Myndin tengist ekki fréttinni Finnst þér gæðastundum með fjölskyldunni hafa fjölgað eða fækkað eftir að kórónu- veirufaraldurinn kom til sögunnar? 50% 25% Fjölgað nokkuð eða mikið Fækkað nokkuð eða mikið 12% 57% 10% 21% Sagt upp Launalaust leyfi Skert starfshlutfall Annað 6% 5% 10% 18% Karlar Konur Eigin húsnæði Leigu- húsnæði 45% 60 ára og eldri töldu að gæðastundum með fjölskyldunni hefði fækkað nokkuð eða mikið 65-68% 30-50 ára töldu að gæðastundum með fjölskyldunni hefði fjölgað nokkuð eða mikið Hefur staða þín á vinnumarkaði breyst síðan 1. febrúar? Breytt, vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins Óbreytt, sama og 1. febrúar síðastliðinn Breytt af öðrum ástæðum 86% hafa nýtt sér úrræði Vinnu- málastofnunar með bætur á móti skertu starfshlutfall 20% 73% Breytingin er þessi: Hefur þú miklar, litlar eða engar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu þinni? Nærð þú/fjölskyldan endum vel eða illa saman eftir að kórónu- veirufaraldurinn hófst? Hafa fjárhagsáhyggjur þínar aukist eða minnkað eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst? Hefur þú/fjölskyldan þurft að leita eftir fjárhagsaðstoð eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst? Fremur eða mjög vel Í meðallagi Fremur eða mjög illa eða alls ekki 13% 54% * Áhrif Covid-19 könnun Maskínu fyrir Litlar eða engar Í meðallagi Frekar eða mjög miklar Staðið í stað Minnkað nokkuð eða mikið Aukist nokkuð eða mikið 62% 35% 3% 54% 28% 18% Meðaltal (8%)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.