Morgunblaðið - 15.06.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020
BROTINN
SKJÁR?
Við gerum við
allar tegundir
síma, spjaldtölva,
og tölva
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ellefu konur sem skipa útivistarhópinn Snjódríf-
urnar luku síðdegis í gær 150 kílómetra skíða-
göngu þvert yfir Vatnajökul. „Þetta hefur geng-
ið eins og í ævintýri,“ segir Brynhildur
Ólafsdóttir, ein Snjódrífanna. Þær ætluðu í nótt
sem leið að gista í fjallaskála við Geldingafell,
sem er við NA-horn Vatnajökuls og suður af
Eyjabökkum. Snjódrífurnar standa að verkefn-
inu Lífskrafti og safna áheitum til stuðnings
Krafti, sem er félag ungs fólks með krabbamein,
og Lífi, en það er styrktarfélag kvennadeildar
Landspítalans. sbs@mbl.is
Snjódrífurnar eru komnar í Geldingafell eftir 150 km leiðangur á fannbreiðunni
Ljósmynd/Aðsend
Ævintýri á gönguför á
Vatnajökli er að baki
Pétur Magnússon
petur@mbl.is
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir ánægjulegt að verið
sé að slaka á ferðatakmörkunum um
alla Evrópu, en að í augum ferða-
þjónustunnar sé Ísland svo gott sem
lokað fyrir ferðamennsku undir
nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra.
Ferðaþjónusta hefur stöðvast á
heimsvísu, en Jóhannes segir að
mikið sé í húfi fyrir Íslendinga, þar
sem landið eigi meira undir ferða-
þjónustunni sem atvinnugrein en
margar aðrar þjóðir. Hann segir já-
kvætt að verið sé að aflétta ferða-
hömlum, en í staðinn koma hindr-
anir sem settar eru upp í
sóttvarnaskyni en hafa verulega
slæm áhrif á möguleika ferðaþjón-
ustunnar.
Frá og með deginum í dag er öll-
um sem koma til landsins og hafa
dvalið í meira en sólarhring síðast-
liðna fjórtán daga í löndum sem
sóttvarnalæknir skilgreinir sem
áhættusvæði skylt að fara í sóttkví í
fjórtán daga. Hægt er að sleppa við
sóttkví með því að fara í sýnatöku,
sem verður endurgjaldslaus þangað
til 30. júní, og mun kosta fimmtán
þúsund krónur frá og með 1. júlí.
Jóhannes segir að fólk sem var
búið að bóka ferðir, sérstaklega hóp-
ferðir, hafi miklar áhyggjur af þess-
um hindrunum, bæði með tilliti til
skimana og að ekki verði hægt að
framvísa vottorði að utan.
Jóhannes segir að reglugerðin
valdi því að fjárhagsleg áhætta við
að koma til Íslands sé of mikil, þar
sem fólk geti ekki tryggt að það
þurfi ekki að fara í sóttkví fyrr en
það er komið til Keflavíkur. Það geti
falið í sér mikið fjártap auk þess
sem það eyðileggi fríið. „Það má
segja að þetta hafi þau áhrif að ferð
til Íslands sé einhvers konar lotterí.
Enginn ferðast með fjölskylduna til
annars lands til að sitja inni á hót-
elherbergi í fjórtán daga og horfa út
um gluggann,“ segir Jóhannes. „Það
hefur klárlega þau áhrif að það er
engin ferðaþjónusta.“
Jóhannes segir að ferðaþjónustu-
fyrirtæki hafi tekið við miklu magni
afbókana síðan reglugerðin var til-
kynnt. Samtök ferðaþjónustunnar
leggi áherslu á að það verði horft til
breytinga á reglugerðinni eftir 1.
júlí.
Skref í rétta átt
Kristófer Oliversson, formaður
Félags fyrirtækja í hótel- og gisti-
þjónustu og framkvæmdastjóri
Center hótela, segir að næstu tvær
vikur verði fyrst og fremst tilrauna-
starfsemi hjá hótelum. „Það hafa
verið að tínast inn örfáar bókanir, en
það er ekki mikið. Þannig að við er-
um að bregðast við þessum fáu gest-
um sem koma næstu daga,“ segir
Kristófer.
Auk opnana á landamærum taka
tilslakanir á samkomubanni einnig
gildi í dag, svo fimm hundruð manns
mega koma saman í stað þeirra tvö
hundruð sem fyrri tilslakanir gerðu
ráð fyrir.
Kristófer segir slíkar tilslakanir
skref í rétta átt en allir geri sér
grein fyrir því að öryggissjónarmið
verði að vera í fyrirrúmi.
Næstu dagar muni þá fara í að
bregðast við þeim aðstæðum sem
skapast í kjölfar breytinganna.
Lotterí að ferðast til Íslands
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttkví,
sýnatöku og einangrun við landamæri Íslands leggi hindranir á veg ferðaþjónustunnar í landinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við Leifsstöð Aflétta á ferðahöml-
um og boðið er upp á sýnatökur.
ISAVIA hefur gengið frá samningi
við Hollensku loft- og geimferða-
stofnunina um að gera úttekt á mögu-
legum áhrifum fyrirhugaðrar byggð-
ar í Skerjafirði á flugöryggi á
Reykjavíkurflugvelli. Úttektin er
gerð með sérstöku tilliti til áhrifa
byggðarinnar á ókyrrð og vinda á
vellinum.
Sigrún Jakobsdóttir, fram-
kvæmdastjóri flugvallasviðs ISAVIA,
segir mikilvægt að allar upplýsingar
liggi fyrir í þessu máli svo öruggt sé
að byggð í kringum flugvöllinn muni
ekki hafa áhrif á flugöryggi.
Að sögn Sigrúnar hafa flugmenn
Air Iceland tilkynnt atvik þar sem
þeir hafa orðið varir við talsvert meiri
ókyrrð á vellinum í kjölfar þess að
byggð reis á Hlíðarenda, en úttekt á
mögulegum áhrifum þeirrar byggðar
á Reykjavíkurflugvöll var ekki gerð
áður en hún var reist. Þess vegna
þótti ISAVIA ástæða til að ráðast í
slíka rannsókn á fyrirhugaðri byggð í
Skerjafirði.
Hollenska loft- og geimferðastofn-
unin mun gegna hlutverki óháðs aðila
við skoðunina, og mun ISAVIA kynna
borg og ríki niðurstöðurnar þegar
þær liggja fyrir.
Byggð gæti haft talsverð áhrif
„Þetta hefur allt áhrif, sérstaklega
þegar byggð er komin svona nálægt
flugvöllum.“ Byggð í návist flugvalla
getur haft áhrif á vind og ókyrrð á
völlunum og fyrirhuguð byggð í
Skerjafirði gæti haft talsverð áhrif.
Slíkar breytingar gætu lækkað
notkunarstuðul flugvalla og haft áhrif
á ákvörðun flugfélaga um hvort flogið
skal við ákveðnar aðstæður.
Niðurstöður úttektarinnar munu,
að sögn Sigrúnar, líklega liggja fyrir í
byrjun júlí, og verður þá hægt að
ræða næstu skref. petur@mbl.is
Rannsaka vind í Vatnsmýri
ISAVIA skoðar möguleg áhrif byggðar á flugöryggi
Morgunblaðið/RAX
Flugöryggi Hollenska loft- og geim-
ferðastofnunin mun sjá um úttektina.
Útilit er fyrir aðgerðalítið og mein-
leysislegt veður á landinu á þjóð-
hátíðinni, 17. júní, sem er nú á mið-
vikudaginn. Á vestanverðu landinu
verða suðlægar áttir ríkjandi, skýja-
loft og sólarlítið. Hins vegar verður
bjart yfir norðanlands og austan og
veðrið sennilega allra best á Akur-
eyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Um
miðjan dag gæti hitastig þar farið í
15-16 gráður þegar best lætur.
Þessu gæti þó fylgt lítilsháttar haf-
gola þegar líða tekur á daginn, að
sögn Einars Sveinbjörnssonar veð-
urfræðings. Hvergi ætti að verða
rigning að deginum, þótt í vitund
margra sé fast að þjóðhátíðardeg-
inum fylgi úrkoma. Vissulega eru
dæmi um slíkt, en engin regla.
sbs@mbl.is
Meinlaust
veður á 17.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akureyri Þar sem sumarsólin skín.
Sól á Norðurlandi
á þjóðhátíðardaginn