Morgunblaðið - 15.06.2020, Síða 10
Landsbyggðin niðurgreiðir
Sigurður Bogi Sævarsson
Ragnhildur Þrastardóttir
„Vegna styrkingar krónunnar hefur
verð hjá birgjum hækkað að undan-
förnu, gjarnan um 3-7%. Stærstu
verslanirnar hafa ef til vill náð að
kreista fram afslætti sem minni
fyrirtæki fá ekki. Í raun má segja að
landsbyggðin niðurgreiði í einhverj-
um mæli vöruverð á höfuðborgar-
svæðinu, sem er ekki sanngjarnt,“
segir Ása Fossdal, kaupmaður í
Hólabúðinni á Reykhólum í Austur-
Barðastrandarsýslu.
Altæk stofnun
Í þorpinu á Reykhólum búa um
120 manns og um 260 í Reykhóla-
hreppi öllum. Hólabúðin nálgast að
vera altæk þjónustustofnun í byggð-
arlaginu. Vöruúrvalið er mikið; mat-
ur, hreinlætisvörur, gjafavara, rit-
föng, fatnaður í einhverjum mæli og
svo mætti áfram telja. Sérpöntuð að
sunnan koma bíldekk, olíuvörur og
fleira eftir atvikum. Undir sama þaki
og verslunin er svo veitingastaður-
inn 380 Restaurant og talan tengist
póstnúmerinu
„Samskipti kaupmanna, svo sem
þeirra sem eru með litlar verslanir,
við birgja eru merkileg og áhrif frá
þeim fara út í verðlagið,“ segir Ása
og heldur áfram:
Ódýrara í Bónus
„Að minnsti kosti finnst mér sér-
stakt til dæmis að pakki með kexi sé
ódýrari í Bónus en við fáum hann hjá
innlendum framleiðendum. Þetta er
veruleiki sem við þurfum að glíma
við og heildsöluverð hefur hækkað
að undanförnu. Eftir mætti höfum
við reynt að taka það á okkur svo það
fari ekki aftur út í verðlagið. Stund-
um erum við á mjög svipuðum stað í
verðlagi og lágvöruverðsbúðir en í
öðrum tilvikum dýrari og þar kemur
líka til að stóru lágverðsverslanirnar
flytja sjálfar inn vörur í talsverðum
mæli Að í byggðarlagi eins og hérna
sé starfrækt verslun er hluti af mik-
ilvægum innviðum samfélagsins. Við
erum meðvituð um þær skyldur okk-
ar,“ segir Ása.
Og meira um verslunarmál úti á
landi. Í vor breyttu Samkaup versl-
unum sínum í Búðardal og á Flúðum
úr Samkaupum-Strax í Krambúð.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í
sl. viku gætir óánægju meðal íbúa á
Flúðum og þar í kring með versl-
unarmálin. Er staðhæft að vöruverð
sé hærra og úrval minna. Hefur því
verið sett af stað undirskriftasöfnun
þar sem skorað er á forsvarsmenn
stóru verslunarkeðjanna að opna
lágvöruverðsbúð á Flúðum.
Græða á ferðamönnum
Gagnrýni samtóna því sem uppi er
á Flúðum er meðal fólks í Dalabyggð
með búðina í Búðardal. „Almenn
óánægja er með breytinguna,“ segir
Eyjólfur Ingvi Bjarnason, oddviti
Dalabyggðar. „Forsvarsmenn Sam-
kaupa komu á fund byggðaráðs
Dalabyggðar í byrjun maí og sögðu
að vöruverð myndi að jafnaði hækka
um 7-8% í Krambúðinni sem var
opnuð 15. maí. Jú, vissulega er lengri
afgreiðslutími en við höfum ekki séð
eina einustu vöru lækka í verði og
líklega er meðaltalshækkun á verði
nauðsynjavara 15-20%. Allt þetta
lyktar bara af gróðarsjónarmiðum
hjá Samkaupum, sem ætla að reyna
að græða á ferðamönnum,“ segir
Eyjólfur Ingvi.
Viðsjár í verslun úti á landi Hærra verð og stærri verslanirnar fá meiri af-
slætti en aðrir Mikilvægir innviðir Breytingar lykta af gróðasjónarmiðum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Búðardalur Verslunin undir merkjum Samkaupa-Úrvals er nú Krambúðin.
Reykhólasveit Samskipti kaupmanna við birgja eru
merkileg, segir Ása Fossdal sem rekur Hólabúðina.
Dalir Líklega er meðaltalshækkun á verði nauðsynja-
vara 15-20%, segir Eyjólfur Yngvi Bjarnason oddviti.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
vígði á föstudaginn steinbryggjuna
á skáldatorgi. Bryggjan á rætur að
rekja til gömlu bæjarbryggjunnar
sem var byggð í Reykjavík 1884 og
var vel sýnileg fram að seinni
heimsstyrjöld, en fór þá undir upp-
fyllingu.
Bryggjan er á mótum Hafnar-
strætis og Tryggvagötu, og gegndi
að sögn borgarstjóra mjög mikil-
vægu hlutverki við þróun borgar-
innar. „Við sjáum að mannfjöldi
jókst stórum skrefum ár frá ári í
Reykjavík og var það ekki síst
vegna þess að við vorum loks búin
að fjárfesta í almennilegri höfn,“
sagði borgarstjóri við vígsluna.
Nú mun bryggjan gegna öðru
hlutverki; sem áfangastaður þar
sem hægt er að sitja innan um nýju
húsin á Hafnartorgi og njóta borg-
arlífsins.
Verkefnið var unnið af umhverf-
is- og skipulagssviði borgarinnar, í
samstarfi við Minjastofnun Íslands
og Borgarsögusafn. Landsmótun sá
um hönnun torgsins.
Steinbryggjan mun
gegna nýju hlutverki
Vígsla Steinbryggjan við Hafnarstræti var vígð í rigningunni á föstudag.
Um breyt-
ingar í búð-
inni á Flúð-
um segir
Gunnar Egill
Sigurðsson,
fram-
kvæmda-
stjóri versl-
unarsviðs
Samkaupa,
engar breyt-
ingar hafa verið gerðar á verð-
lagi en vöruval aukið svo sem á
grænmeti sem ræktað er af
bændum í nágrenninu.
„Alllstaðar út um land þar
sem Samkaup hafa tekið yfir
verslunarrekstur hefur vöruverð
lækkað um 15-30%. Samkaup
telja það samfélagslega skyldu
sína að veita íbúum eins góða
þjónustu og mögulegt er,“ segir
Gunnar, sem telur Krambúðina
úti á landi svara þörfum við-
skiptavina vel.
KRAMBÚÐIN ÓDÝRARI
Gunnar Egill
Sigurðsson
Samfélags-
leg skylda
Jarðhræringa verður nú vart í
Bárðarbunguöskjunni, þar sem
skjálfti, 3,4 að stærð, mældist kl.
16:32 í gær. Eftirskjálfti sem var
1,2 að styrk kom í kjölfarið. Enginn
gosórói er sjáanlegur. Síðast mæld-
ist skjálfti af svipaðri stærðargráðu
í Bárðarbungu hinn 30. maí.
Í pistli vísindaráðs almanna-
varnadeildar Ríkislögreglustjóra
segir að vatnsborð í Grímsvötnum
standi hátt um þessar mundir, auk
þess sem hár kvikuþrýstingur sé í
kvikuhólfinu undir öskjunni. „Því
verður að gera ráð fyrir þeim
möguleika að eldgos brjótist út í lok
jökulhlaups, sem gæti orðið á næstu
vikum eða mánuðum. Alls ekki er
víst að svona fari, jökulhlaup á
næstunni þarf ekki að leiða til eld-
goss,“ segir vísindaráðið. Á vett-
vangi þess verður farið yfir stöðu
mála í vikunni. Algengt er að fimm
til tíu ár séu á milli Grímsvatna-
gosa, en það síðasta var árið 2011.
Morgunblaðið/RAX
Eldgos Dökkur mökkur í Grímsvötnum.
Reikna má með eld-
gosi í Grímsvötnum
Kórónuveirufaraldurinn hafði mik-
il áhrif á starfsemi Sjúkrahússins á
Akureyri (SAk) á fyrstu fimm
mánuðum ársins, segir í pistli sem
Bjarni Jónasson forstjóri skrifar á
vef spítalans. Frá sama tímabili í
fyrra fækkaði komum á dagdeildir
um 13% og á göngudeildir um
fimmtung. Komur á bráðamóttöku
voru um 19% færri og skurð-
aðgerðir 540 færri en sl. ár.
Í pistli Bjarna segir að biðlistar
og -tímar eftir aðgerðum hafi eðli-
lega lengst vegna COVID-19 og
tíma taki að vinda ofan af þeim.
Það sé því full ástæða til að bera
kvíðboga fyrir boðuðu verkfalli
hjúkrunarfræðinga. Þar sé mikil-
vægt að ná samkomulagi sem
fyrst.
Breytingar á SAk