Morgunblaðið - 15.06.2020, Page 11

Morgunblaðið - 15.06.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020 ..sameinuð gæði ALMENNAR BÍLAVIÐGERÐIR HJÓLA- STILLINGAR FJÓRHJÓLA- DEKKJA- VEISLA 15. – 19. JÚNÍ Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is ALLT AÐ 25% AFSLÁTTUR Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þrátt fyrir bakslag í ferðaþjón- ustunni hefur okkur tekist ágæt- lega að halda okkar striki; byggja upp og horfa til framtíðar,“ segir Jakob Björgvin Jakobsson bæjar- stjóri í Stykkishólmi. „Á vegum bæjarins er unnið að ýmsum verk- efnum og umhverfisbótum en mestu skiptir að íbúarnir eru í framkvæmdahug. Núna eru hér tæplega 10 nýjar íbúðir í bygg- ingu, þar á meðal í eigu ungs fólks sem ætlar að skapa sína framtíð hér. Fólkið hefur trú á Stykkishólmi.“ Aðgerðir til viðspyrnu Auk framkvæmda við íbúða- byggingar er verið að reisa og endurbæta atvinnuhúsnæði á nokkrum stöðum í Stykkishólmi. Sitthvað hefur svo verið í gangi í ferðaþjónustunni, sem á síðustu árum hefur orðið mikilvæg stoð í atvinnulífi bæjarins. „Árið 2018 komu um 230 þús- und ferðamenn hingað. Auðvitað verðum við langt undir þeirri tölu í ár. Samt hefur mér að und- anförnu fundist margir vera á ferðinni hér í Hólminum og fleiri á veitingastöðum en margir gerðu ráð fyrir. Ferðaþjónusta í Stykkishólmi á sér langa hefð og það kemur mér í sjálfu sér ekkert á óvart vinsældir Stykkishólms enda eru hér í okkar fallega bæ framúrskarandi veitingastaðir, úrval af afþreyingu, gistingu og annarri þjónustu. Vonandi gefur þetta góð fyrirheit um sumarið og að landið rísi senn. Hjá sveitar- félaginu er unnið eftir áætlun sem bæjarstjórn samþykkti í apríl síð- astliðnum. Í kjölfar hennar voru fjárfestingar tvöfaldaðar frá því sem áformað var í fyrstu, sumar- störfum ungs fólks fjölgað og fleira. Allt eru þetta aðgerðir til viðspyrnu vegna af Covid 19 og jákvæð áhrif eru strax komin fram,“ segir Jakob. Um þessar mundir er unnið að undirbúningi á breytingu á hluta húsnæðis St. Fransiskus- sjúkrahússins í Stykkishólmi fyrir hjúkrunarheimili og því verkefni miðar vel áfram. Þar koma að málum Stykkishólmsbær og ýms- ar stofnanir ríkisins – en til stend- ur að útbúa 18 ný hjúkrunarrými í stað þeirra sem nú eru á dvalar- heimilinu í Stykkishólmi. Auk þess verður aðstaða bak- og end- urhæfingardeildar sjúkrahússins bætt til muna. Láta sig samfélagið varða „Já, og það segir talsvert að þú veljir að taka mynd af mér hér í Súgandisey með bæinn í baksýn. Þetta er einstakt umhverfi,“ segir Jakob sem tók við starfi bæjar- stjóra í Stykkishólmi fyrir tveim- ur árum. Í kosningum vorið 2018 var hann bæjarstjóraefni H- listans sem fékk meirihluta í bæjarstjórn; fjóra af sjö bæjar- fulltrúum. „Mér þykir afar vænt um að vera fluttur aftur heim, í bæinn þar sem ég ólst upp og á mínar rætur. Starf bæjarstjórans er áhugavert og fjölbreytt. Þar er maður með samstarfsfólkinu í því að leggja stóru línurnar; vinna í skipulags- og umhverfismálum eða gera áætlanir og koma af stað stórum verkefnum. Svo skapar líka ákveðna jarðtengingu að mikið er leitað til bæjarstjórans út af litlu málunum, svo sem hvar þurfi að setja upp ruslatunnur, slá grasflöt, tína rusl og svo fram- vegis. Þá er mitt að koma hlut- unum í farveg í bæjarkerfinu, því öll þessi erindi skipta máli og segja okkur að íbúarnir láta um- hverfi sitt og samfélag varða. Hagsmunagæsla er líka hluti af starfinu og svo leitar fólk einnig til bæjarstjórans jafnvel vegna persónulegra mála og stundum getur maður þar orðið að liði. Vinnudagurinn er því oft langur, en alltaf áhugaverður.“ Vel heppnað módel Oft er sagt að á Norðurlönd- unum hafi tekist að skapa bestu samfélagsgerð veraldar, enda vel séð fyrir velferðarmálum í breið- ustu merkingu þess orðs. Þá má líka velta því fyrir sér hvort ís- lenski þéttbýlisstaðurinn sé ekki líka vel heppnað módel; þorp, kauptún eða kaupstaður með kannski 100 til 3.000 íbúum. Byggð þar sem eru fjölbreytt at- vinnutækifæri, góðir skólar, íþróttaaðstaða, verslun, heil- brigðisþjónusta og öflugt menn- ingarlíf. Hver unir sæmilega við sitt. Svona staðir á landinu eru margir og þarna er Stykkis- hólmur ágætt dæmi. „Stykkishólmur býr að sterk- um innviðum. Hér komast börnin á leikskóla tólf mánaða, grunn- skólinn fær góða umsögn og stór hluti nemenda hans er í tónlistar- námi. Hér er einnig öflugt tóm- stundastarf og félagsstarf meðal eldri borgara. Okkur hefur tekist að halda vel utan um fólkið og veita því þjónustu. Það segir líka sitt að bæjarbúum er að fjölga. Íbúar hér voru þegar best lét hátt í 1.400 en eftir að hörpudiskveið- arnar á Breiðafirði hrundu fyrir um fimmtán árum, fækkaði fólki hér verulega. En nú erum við samkvæmt tölum frá sl. áramót- um orðin 1.209, en íbúum hefur fjölgað um rúmlega 100 manns á síðustu fimm til sex árum.“ Skapa tækifæri til viðspyrnu í ferðaþjónustubænum Stykkishólmi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bæjarstjórinn „Allt segir þetta okkur líka að fólkið hefur trú á Stykk- ishólmi,“ segir Jakob Björgvin um mannlíf og málefni í bænum. Góð fyrirheit  Jakob Björgvin Jakobsson er fæddur 1982 í Stykkishólmi og bjó þar fram á unglingsár. Með meistarapróf í lögfræði frá HR og starfaði sem lögmað- ur í Reykjavík ásamt því að sinna kennslu á sviði fyrir- tækja- og skattaréttar.  Var þar áður verkefnastjóri hjá Deloitte og vann hjá skatta- yfirvöldum. Árið 2018 flutti Jakob Björgvin aftur á heima- slóðir og tók við starfi bæjar- stjóra í Stykkishólmi. Hver er hann?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.