Morgunblaðið - 15.06.2020, Page 22

Morgunblaðið - 15.06.2020, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera     ! Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Opinn handavinnuhópur kl. 12-16. Stólajóga kl. 10-10:45. Sögustund af hljóðbók kl. 13.00. Hádegismatur kl. 11:30 – 13. Kaffisala kl. 14:45 – 15:30. Allir velkomnir í Félagsstarfið s: 411-2600. Boðinn Gönguhópur kl. 10:30. Sundleikfimi kl. 14:30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8:50. Púttvöllurinn og Hæðarvellir opnir öllum allan daginn. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Tálgun með Valdóri 13. Handavinnuhornið kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Við vinnum eftir Samfélagssáttmálanum, og þannig tryggjum góðan árangur áfram. Nánari upplýsingar í síma 411-2790 Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 08:30-16:00. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13:45 -15:15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Gerðuberg 3-5 kl. 08:30-16:00, Opin handavinnustofa kl. 09:00-16:00 Útskurður kl. 11:00-11:30, Leikfimi Helgu Ben kl. 13:00. Ganga um hverfið Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Minningahópur kl. 10:30. Stólaleikfimi 13:30. Seltjarnarnes Dagskráin í dag, mánudagur 15.júní. Kl.10:30 kaffispjall í króknum. Kl. 11:00 er leikfimi í salnum Skólabraut. Kl. 13:30 er tækninámskeið á Skólabraut. Kl. 18:30 er vatnsleikfimi sundlaug Seltjarnarness. ATH. Pútt er á þriðjudögum kl. 13:30, prentvilla í bækling sem þið fenguð inn um lúguna. Mercedes Bens til sölu Mjög vel með farinn svartur Mercedes Bens CLS 350 Bluetec til sölu, árg. 2015, ekinn aðeins 45 þús. km. Bíllinn er í topp standi og hefur verið í reglulegu viðhaldi hjá Öskju. Svart leðuráklæði, topplúga rafm. & hiti í sætum, splunku ný heilsársdekk, „self park“ og margt fl., kostar nýr +12mkr. Verð 6.490 þús. Áhugasamir hafið samband í síma 896-0747. Bílar Vantar þig fagmann? FINNA.is Smáauglýsingar augl@mbl.is ✝ Anna MarínKristjánsdóttir fæddist í Sandgerð- isbót í Glerárþorpi 27. ágúst 1927. Hún lést 2. maí 2020. Foreldrar henn- ar voru Kristján Hallfreður Sig- urjónsson f. 28. júlí 1895 á Glerárholti í Eyjafirði og Anna Pétursdóttir f. 23. júlí 1894 í Skörðum á Tjörnesi. Systkini hennar voru: Jóhann Benedikt f. 7. apríl 1922, d. 30. september 1976. Sigurður Lár- us f. 13. september 1923, d. 20. október 2010. Þórey Edith f. 15. nóvember 1924, d. 12. febrúar 1994. Pétur Sigurjón f. 1. októ- ber 1929. Kristján Guðmundur f. 14. nóvember 1930, d. 8. júlí 1951. Erla f. 21. janúar 1932, d. 17. ágúst 2003 (hálfsystir). Sig- ríður Kristín f. 3. júlí 1932, d. þau þrjú börn: Sigríður Katrín f. 30. maí 1979, Egill f. 7. ágúst 1984 og Auður Ösp f. 10. Sept- ember 1990. Gunnar f. 30. apríl 1957, maki Ingveldur Teitsdóttir sem er látin. Þau eiga þrjú börn: Ástbjörg Ýr f. 30. mars 1978, Gunnar Ingi f. 10. nóvember 1983 og Teitur f. 18. desember 1985. Kristleifur Gauti f. 31. mars 1958, maki Kristín Birna Ang- antýsdóttir og eiga þau fjögur börn: Guðrún Ása f. 16. mars 1978, Torfi Björn f. 20. febrúar 1980, Daníel Hrafn f. 14. febr- úar 1985 og Andri Týr f. 26. september 1987. Barna barnabörn Önnu Mar- ínar og Torfa eru 27 talsins. Anna Marín og Torfi bjuggu lengst af að Neðstutröð 8 í Kópavogi þar sem Torfi starf- rækti rakarastofu í 56 ár. Anna Marín starfaði um árabil sem fiskimatsmaður í frystihúsinu Ísbirninum og við afgreiðslu í kaffiteríunni á Hótel Loftleið- um. Útför Önnu Marínar fór fram frá Kópavogskirkju 26. maí 2020. 14. mars 2000. Eiginmaður Önnu var Torfi Guðbjörnsson rak- ari og gengu þau í hjónaband 30. mars 1952. Torfi lést 6. júní 2004. Börn þeirra eru: Katrín Guðbjörg f. 9. mars 1949, maki Bragi Jónsson og eiga þau tvö börn: Berglind f. 5. september 1976 og Brynjar Þór f 30. apríl 1980. Katrín átti fyrir Bjarndísi Marín Hannesdóttur f. 13.7.1968. Kristján Guðmundur f. 4. maí 1953, maki Bára Benedikts- dóttir og eiga þau þrjú börn: Anna Marín f. 18. janúar 1978, Sigrún Katrín f. 1. nóvember 1979 og Benedikt f.24. apríl 1986. Björn f. 5. feb 1956, maki Soffía Guðjónsdóttir og eiga Á fallegu vorkvöldi kvaddi ég Maju frænku á Tröðinni. Maja móðursystir mín hefur fylgt mér alla ævi og verið mér einstaklega kær. Þegar ég man fyrst eftir mér bjuggu ég og foreldrar mínir á Kópavogsbrautinni hjá Maju og Torfa. Eftir að Maja og Torfi fluttu í Voga og síðan til Keflavík- ur dvaldi ég oft hjá þeim – það var alltaf hægt að bæta einum krakka við. Ég átti hjá Maju- ,Torfa og krökkunum mitt annað heimili. Eftir að fjölskyldan flutt- ist á Neðstutröð í Kópavogi var heimilið þeirra eins og stoppi- stöð, miðsvæðis á ferðum um svæðið þar sem var gott að koma við. Heimili þeirra stóð alltaf op- ið, kaffi á boðstólum, eitthvað að maula og á matmálstímum alltaf nóg fyrir alla sem þar mættu. Maja og Torfi áttu fimm börn sem voru og eru mér eins og systkini. Að koma á Tröðina var alltaf eins og að koma heim – allt- af velkomin. Mannmargt heimilið var oft eins og félagsheimili. Mik- ið skrafað um það sem var að ger- ast á hverjum tíma. Hvað þessi eða hinn var að stússa og um bæj- arpólitíkusana, hvernig þeir stóðu sig, vel eða illa. Engin logn- molla þar og oft bévuð læti. Maja frænka elskaði að ferðast og við krakkarnir nutum góðs af því. Mín fyrsta utanlandsferð var með Maju – sigling með Gullfossi. Hún vílaði ekki fyrir sér að taka okkur með – mig, Kötu og Kidda. Við áttum ógleymanlega ferð þar sem hún fór hún með okkur í skoðunarferðir á ýmsa staði og að sjálfsögðu í Tívolí, sem var undraveröld fyrir 12 ára krakka. Þær urðu margar ferðirnar til út- landa með Maju frænku þegar hún starfaði í kaffiteríunni á Loftleiðahótelinu. Kaupmanna- höfn, London og Lúxemborg. Síðasta ferð okkar saman var þegar við Kata fórum með henni til Kaupmannahafnar fyrir nokkrum árum. Þá átti Maja orð- ið erfitt með gang og við trilluð- um henni í hjólastól um borgina og skemmtum okkur vel. Við fengum þó að heyra það þegar aksturslagið var henni ekki að skapi. Þetta var síðasta ferð hennar út fyrir landsteinana en fram á síðasta dag var hún í hug- anum til í tuskið og vildi panta nýja ferð. Missir Maju var mikill þegar Torfi maður hennar lést. Hún var lánsöm, átti stóra fjölskyldu og krakkarnir voru mikið hjá henni. Nánast alltaf þegar maður kom til Maju hitti maður þar fyrir eitt- hvert systkinanna eða barna- börn, sem voru orðin mörg. Maja dvaldi á hjúkrunarheim- ilinu Ísafold síðustu mánuðina áður en hún lést. Hún var orðin þreytt og líkaminn að gefa sig. Heilsan fór þverrandi en andlega var hún hress og minnug til síð- asta dags. Hún fylgdist með öll- um og sagði manni fréttir af stór- fjölskyldunni, börnum og barnabörnum og ekki síst fólkinu fyrir norðan. Hún reyndist börn- um mínum góð frænka og fylgd- ist með þeim fram til síðasta dags. Það er erfitt að lýsa væntum- þykjunni til þessarar konu og ég sakna hennar. Efst í huga er þakklæti fyrir það sem Maja hefur verið mér og minni fjölskyldu. Elsku Kata, Kiddi, Bjössi, Gunni, Gauti og fjölskyldur, innilegar samúðar- kveðjur til ykkar. Megi minning um Maju mömmu lifa. Agnes Agnarsdóttir og fjölskylda. Anna Marín Kristjánsdóttir Elsku Siggi frændi. Það er hrikalega sárt að sjá þig fara. Ég er svo þakklát fyrir allar samverustundirnar og gleðina sem þú smitaðir út frá þér. Við Kristín höfum ósjaldan rætt það hversu lánsamar við erum að eiga svona alvitra, hressa og skemmti- lega pabba, sem eru líka hinir mestu snillingar í eldhúsinu. Ég gleymi aldrei bangsakökunni sem þú bakaðir fyrir afmælið hennar Kristínar eitt árið. Kakan var skreytt út í ýtrustu smáatriði, enda var bangsinn með gifsi og hækju, líkt og Kristín sem hafði fótbrotnað það árið. Aldrei hafði ég séð eins flotta afmælisköku og óskaði mér helst að ég hefði fót- brotnað líka. Eitt sumarið þegar ég var lítil fékk ég að fara ein með ykkur fjölskyldunni í Glaðheima. Þetta fannst mér vera toppurinn á til- verunni. Ég, ein, með uppáhalds- frændfólkinu mínu í sumarfríi! Sigurður E.R. Lyngdal ✝ Sigurður E.R.Lyngdal fædd- ist 15. ágúst 1948. Hann lést 3. júní 2020. Útför Sig- urðar fór fram 12. júní 2020. Ekki vissi ég hvað væri í vændum. Það var endalaust um að vera; við löbbuðum, grilluðum og spiluð- um allt fríið. Þá má ekki gleyma einum eftirminnilegasta göngutúr lífs míns. Þú skutlaðist einn morguninn stutta stund á bílnum og fékkst svo far til baka með nágrannanum. Þetta fannst mér skrýtið, en þá sagðir þú: „Við ætlum í göngutúr, heila átta kílómetra, að sækja bílinn.“ Ég skildi hvorki upp né niður í því hvers vegna við þyrftum að labba og sækja bíl sem var í fín- asta standi, hvað þá hvernig þú vissir hversu langir átta kíló- metrar væru. En við gengum öll af stað, spjölluðum og sungum á leiðinni. Þegar við loksins komum að bílnum, þá sýndir þú mér hvernig hægt væri að láta bílinn sýna kílómetrafjöldann sem mað- ur keyrði. Frá því ég fékk bílpróf hef ég alltaf hugsað til þín þegar ég horfi á kílómetrafjöldann á mínum bíl. Elsku Siggi, sem betur fer lifir fólk áfram í gegnum minningarn- ar og ég hlakka mikið til að deila þeim með fólkinu okkar. Þín verður sárt saknað. Kveðja, uppáhaldsfrænkan þín úr Garðabænum, Sigríður Bára Ingadóttir. Vinur minn Sigurður Lyngdal hefur kvatt þennan heim eftir stutta sjúkrahúslegu. Kynni okk- ar hófust fyrir nokkuð mörgum árum þegar hann var kennari við Hólabrekkuskóla í Breiðholti og ég sem matreiðslumaður sá um matargerð við ýmsa viðburði í skólanum fyrir nemendur og kennara. Það má segja að mat- urinn hafi tengt okkur saman en Sigurður hafði mikinn áhuga á mat og matargerð og ekki síður að njóta þess að borða góðan mat. Upp frá þessum tíma hófst okkar vinátta og það voru ófáar veisl- urnar sem ég kom að fyrir Sigurð og hans fjölskyldu og vini. Þegar halda átti veislu kom hann til mín og sagði: Jæja Lárus, hvað eigum við að hafa í matinn? Hann hafði sínar hugmyndir sem reyndar pössuðu við mínar. Hann vildi halda í gamlar hefðir og líka koma fólki á óvart allt frá því að vera eingöngu með sjávarrétt- ahlaðborð eða danskt hlaðborð en þar var hann á heimavelli. Það var yndislegt að hanna veislu- borðin með Sigurði sem vildi hafa puttana í sem flestu. Sigurður átti sína uppáhaldsrétti, en þar bar hæst saltaða nautatungu með piparrótarsósu sem var algjört sælgæti að hans mati, einnig hin- ir sígildu dönsku þjóðarréttir eins og síld, purusteik, rauð- spretta, söltuð uxabringa (ox- ebryst) og heit lifrarkæfa (lever- postej). Sigurður var ákaflega hlýr maður sem ekkert mátti aumt sjá. Það var gaman og fróð- legt að hlusta á hans skoðanir á lífinu og tilverunni. Að hafa átt vin eins og Sigurð með sinn kær- leika, trúmennsku og einlægni gefur manni mikið sem ég er þakklátur fyrir. Við Sigurður átt- um langt og gott spjall nokkrum dögum fyrir andlát hans, þar sem hann fór yfir veisluferilinn okkar saman og var ótrúlegt hvað hann mundi hvað var í matinn í hverri veislu fyrir sig og hvað hann var ánægður með þetta allt saman. Það gladdi mig mikið hvað hann var sáttur og ánægður að rifja þetta upp og sýnir áhuga hans á mat og matargerð. Ég kveð þennan vin minn með söknuði um leið og ég þakka honum fyrir all- ar ógleymanlegu stundirnar sem við áttum við að undirbúa allar okkar veislur. Elsku Magnea mín, Guð styrki þig og fjölskyldu þína í sorg ykkar við fráfall Sig- urðar. Lárus Loftsson. Fyrir 47 árum barst okkur hjónum bréf með póstinum til New York, þar sem við vorum bú- sett, um að Maggý, eina systir Bjössa, og Siggi ætluðu að gifta sig þ. 16. júní og að Sigga vantaði skó. Þá voru háhælaðir skó fyrir karlmenn í tísku fyrir alla sem töldu sig vera „svala gæja“. Mis- jafnlega gekk fyrir þessa „svölu gæja“ að fóta sig í þessum skó- búnaði og braut undirritaður hæl og næstum fót á þessu fyrirbæri áður en hann gafst upp á þessari vonlausu tísku. Ekki fara miklar sögur af fótafimi Sigga á háhæl- uðum skóm en hann komst alla vega klakklaust niður kirkju- tröppurnar á Háteigskirkju. Við höfðum kynnst Sigga árinu áður og í sannleika sagt fannst okkur stundum nóg um hispursleysið og orðaflauminn hjá þessum hár- prúða og vel skeggjaða unga manni. Hann var jú kærasti Mag- gýjar, einu systur Bjössa, og þau voru ákveðin að ganga lífsins veg saman og það hafa þau svo sann- anlega gert. Við höfum átt marg- ar gleðistundir saman í áranna rás sem ber að þakka og á síðasta ári, áður en Siggi varð mikið veik- ur, talaði hann um að við þyrftum að hittast oftar og nú er tíminn runninn út. Við viljum þakka Sigga mági og svila fyrir öll árin og sérstaklega hvað hann var umhyggjusamur við Auðbjörgu okkar og Guðmund á þeirra efri árum. Elsku Maggý og fjöl- skylda, minning um skemmtileg- an og umhyggjusaman eigin- mann og föður lifir. Helga Jakobs og Björn Antonsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.