Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Hátíðin HönnunarMars hefst í dag,
24. júní, og stendur til 28. júní.
Þetta er í tólfta sinn sem Hönn-
unarMars fer fram en vegna að-
stæðna hefur margt breyst á stutt-
um tíma. Það kemur þó ekki í veg
fyrir fjölbreytta og umfangsmikla
dagskrá.
Á hátíðinni í ár verða um áttatíu
sýningar og hundrað viðburðir. Á
dagskránni verður boðið upp á
vöruhönnun,
fatahönnun, arki-
tektúr, grafíska
hönnun, gull-
smíði, keramík
og textíll ásamt
fleiru. Áhersla er
lögð á nýsköpun,
tækni og ekki síst
sjálfbærni. „Það
er ótrúlegt róf
sem þetta spann-
ar,“ segir Þórey Einarsdóttir,
stjórnandi hátíðarinnar. „Um-
hverfismálin eru alltaf í forgrunni.
Svo erum við að vinna með viðskipti
og framleiðslu, alls kyns hráefni og
skynjun.“ Þórey nefnir einnig að
ýmsir fjölskylduvænir viðburðir séu
á dagskrá.
Hátíðin teygir anga sína um allt
höfuðborgarsvæðið, allt frá Sel-
tjarnarnesi til Hafnarfjarðar og
Mosfellsbæjar. Skeifan, Kópavogur
og Garðabær koma einnig við sögu.
„Miðbærinn er alveg ótrúlega öfl-
ugur í ár,“ segir Þórey. Hafnartorg
verði til dæmis í stóru hlutverki að
þessu sinni.
Nýjar fréttir daglega
HönnunarMars, eins og nafnið
gefur til kynna, hefur hingað til ver-
ið haldinn í mars, en var sem von er
frestað vegna faraldursins. „Þegar
við vorum að skipuleggja dagskrána
vorum við að bregðast við nýjum
fréttum daglega. Þá fæddist þessi
hugmynd um að færa hátíðina um
þrjá mánuði. Í versta falli hefði enn
verið samkomubann.“ Þórey segist
hafa tekið eftir því að fólk væri mik-
ið á ferðinni í kófinu. „Það jákvæða
við þetta ástand var kannski að fólk
var meira úti. Það var mannlíf í
hverfunum og niðri í bæ“. Skipu-
leggjendur hátíðarinnar sóttu inn-
blástur í það og ákváðu að nýta auð
rými sem fólk gengur fram á á leið
sinni um borgina.
Hönnun í gegnum glerið
Undirbúningurinn að hátíðinni
sem halda hefði átt í mars var auð-
vitað langt kominn þegar fregnir
fóru að berast af faraldrinum Co-
vid-19. „Það var búið að leggja of-
boðslega mikla vinnu í sýningar og
viðburði sem voru bara tilbúnir.“
Það vöknuðu spurningar um það
hvernig hægt væri að miðla viðburð-
unum í verstu sviðsmyndinni; í
óbreyttu ástandi með tilheyrandi
samkomubanni, tveggja metra reglu
og banni við því að koma við hluti.
„Þá varð til þessi hugmynd um
verkefni sem Signý Jónsdóttir vöru-
hönnuður leiðir. Það leiða hönnuðir
og húsnæðiseigendur í miðbænum
saman hesta sína og gefa gestum og
gangandi tækifæri á að skoða alls
kyns hönnun í gegnum glerið.
HönnunarMars hefur fengið að-
gang að rýmum við göngugötuna við
Hafnartorg meðan hátíðin stendur
yfir. „Við lögðum upp með það frá
byrjun, áður en allt skall á, að vinna
með klasa. Tíminn er ofboðslega
dýrmætur og fólk getur kannski
ekki tekið sér fimm daga frí til þess
að fara á HönnunarMars,“ segir
Þórey. Þeim fannst sjálfsagt að
bjóða upp á þá lausn að safna saman
ólíkum sýningum á sama stað. „Fólk
getur farið í Norræna húsið, Ás-
mundarsal, á Hönnunarsafnið í
Garðabæ eða Hafnartogið, þar sem
þessar fjölbreyttu sýningar eru og
sótt sér ólíkan innblástur.“
Innblásin af kófinu
Þórey sendir sínar bestu þakkir
til hönnunarsamfélagsins, sem hún
segir hafa brugðist vel við ástand-
inu. „Þetta er ótrúlega magnaður
hópur, að geta hugsað svona í lausn-
um, frestað sinni vinnu og sínum
sýningum um þennan tíma. Margar
sýningarnar hafa tekið gríðarlegum
breytingum.“
Nokkur verk á hátíðinni eru inn-
blásin af kófinu. Björn Steinar
Blumenstein vöruhönnuður brást til
dæmis þannig við að hann hóf að
framleiða handspritt fyrir alla þátt-
takendur hátíðarinnar úr bönunum.
Verkefnið ber heitið Catch of the
day: Limited Covid-19 edition.
Björn nýtir aflögu ávexti frá mat-
vælainnflytjendum sem annars
hefði verið sóað í framleiðsluna.
Vegna forsetakosninganna sem
fara fram á laugardaginn missir há-
tíðin rými sitt í Ráðhúsinu, þar sem
sýning um borgarlínuna, Næsta
stopp, hefur verið undanfarna daga.
Fréttir þess efnis að hluti sýningar-
innar verði flutt á bókasafnið í
Kópavogi bárust í dag, svo enn er
verið að finna lausnir við þessar
breyttu aðstæður.
Miðla hátíðinni erlendis
Kófið hafði ekki aðeins áhrif á
sýningartíma og staðsetningar held-
ur einnig á aðkomu erlendra gesta
að hátíðinni. „Við tókum erfiða
ákvörðun um það að vera ekki með
erlenda gesti á hátíðinni í ár. Óviss-
an og áhættan var bara allt of mikil.
En við bjóðum þetta fólk hjartan-
lega velkomið á næsta ári auk þess
sem þeir geta tekið þátt í annarri
mynd. Þessir einstaklingar verða
ekki staddir hér í eigin persónu, en
við verðum í góðu og djúpu samtali
við þá og erum að miðla efni af há-
tíðinni til erlendra aðila.“
Ein þeirra lausna sem varð til í
samtali við hönnunarsamfélagið
þegar ljóst var að hátíðina yrði að
halda með breyttu sniði og erlenda
gesti vanti var verkefnið Studio
2020. „Það er tilraunavettvangur
hátíðarinnar,“ segir Þórey. Þetta er
tilraunavettvangur sem ætlað er að
miðla efni hátíðarinnar á ýmsu
formi á meðan á henni stendur og í
kjölfarið. Markmiðið er að veita inn-
sýn í hugskot hönnuða, viðfangsefni
og hugmyndir um framtíðina. Efn-
inu verður miðlað til ólíkra hópa, al-
mennings sem og fagfólks, innan-
lands og erlendis.
Nánari upplýsingar um viðburði
hátíðarinnar má nálgast á vefnum
honnunarmars.is. Þar geta gestir
sett saman sína eigin dagskrá og
skoðað kort af sýningarstöðunum í
Reykjavík.
„Ótrúlega magnaður hópur“
Miðlun HönnunarMars hefur fengið afnot af rýmum við Hafnartorg, meðal
annars undir verkefnið Studio 2020 sem mun miðla hátíðinni erlendis.
Hátíðin HönnunarMars haldin 24.-28. júní Skipuleggjendur og listamenn
hafa þurft að bregðast vð breyttum aðstæðum Nýta auð rými í miðborginni
Þórey
Einarsdóttir
Hin bandaríska Danielle Allen, sem
er stjórnmálafræðingur og sér-
fræðingur í klassískum fræðum við
Harvard-háskóla, hlýtur Kluge-
verðlaunin í ár. Stofnað var til
verðlaunanna árið 2003 á sviði fé-
lagsvísinda og húmanískra fræða,
sviða sem ekki eru veitt Nóbels-
verðlaun fyrir. Nemur verðlauna-
féð hálfri milljón dollara og eru
verðlaunin veitt af Library of Con-
gress í Washington DC.
Kluge hefur skrifað um fjöl-
breytileg efni, allt frá bandarísku
sjálfstæðisyfirlýsingunni til við-
bragða við Covid-19. Í tengslum við
verðlaunin mun hún leiða verkefni
sem miðar að því auka samfélags-
legan styrk og meðvitund borgara
um samfélagsleg málefni.
Verðlaunahafinn Danielle Allen.
Allen hreppti
Kluge-verðlaunin
Árni Beinteinn
Árnason hefur
verið ráðinn til
að leika Benedikt
búálf í uppsetn-
ingu Leikfélags
Akureyrar á
ævintýralega
fjölskyldusöng-
leiknum um
Benedikt búálf
eftir Ólaf Gunnar
Guðlaugsson og Þorvald Bjarna
Þorvaldsson. Söngleikurinn var
valinn í netkosningu þar sem áhorf-
endur fengu að velja næstu fjöl-
skyldusýningu Leikfélags Akureyr-
ar og verður frumsýndur í
Samkomuhúsinu í febrúar 2021.
Leikkonan Þórdís Björk Þorfinns-
dóttir leikur einnig stórt hlutverk,
Dídí mannabarn.
Mun leika Bene-
dikt búálf hjá LA
Árni Beinteinn
Árnason
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Aðrar Christopher Nolan myndir:
The Dark Knight,
The Dark Knight Rises