Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2020, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2020
LÍFSSTÍLL
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
Við höfum alltaf verið mikið áskíðum og ég æfði og kepptifrá því ég var smákrakki,“
segir Ásmundur Þórðarson, mark-
aðsstjóri Fjallakofans.
„Ásmundur er gamall keppnis-
maður,“ segir Harpa Þórðardóttir
sálfræðiráðgjafi.
„Ég kenndi lengi og þjálfaði. Við
erum bæði úr miklum skíða-
fjölskyldum,“ segir hann.
„Ég var mikið á skíðum sem barn
en svo tók ballettinn öll völd. Á með-
an mamma og pabbi voru uppi í fjöll-
um var ég í Þjóðleikhúsinu að
dansa,“ segir Harpa.
„Mamma var rosa góð skíðakona
en hún er af miklu skíðafólki. Bróðir
hennar keppti eitt sinn á Ólympíu-
leikunum,“ segir hún.
„Við vorum KR-ingar í Skálafelli
en Hörpu fjölskylda Ármenningar í
Bláfjöllum. Frændum hennar Hörpu
leist ekkert á það þegar Harpa var
komin með einhvern helvítis KR-
ing,“ segir hann og hlær.
Hundrað dagar á ári
Harpa og Ásmundur eru bæði
Garðbæingar. Þau voru átján og
tuttugu ára þegar þau kynntust en
bæði voru þá í Fjölbraut í Garðabæ.
„Við kynntumst í skíðaferðalagi í
skólanum. Við fórum í Skálafell og
það var gist í nokkrar nætur og þar
kynntumst við. Við kynntumst á
skíðum,“ segir Harpa.
„Þetta hefur alltaf verið okkar
helsta áhugamál,“ segir Harpa en
þau hjón eiga dætur yfir tvítugt og
tólf ára gamlan son sem er heltekinn
af skíðamennskunni, enda nánast al-
inn upp í skíðabrekkunni.
„Hann er að æfa skíði og eftir að
það byrjaði er þetta orðið að lífsstíl
hjá okkur. Við erum á skíðum allar
helgar,“ segir hún.
„Við höfum verið að fara yfir
hundrað daga á ári á skíði,“ segir
Ásmundur.
Sprenging í Covid
Fyrir nokkrum árum byrjuðu hjónin
að fara á fjallaskíði, en þá er gengið
á fjöll á sérstökum skíðum. Skinn
eru sett undir skíðin en skíði, skíða-
skór og bindingar eru öðruvísi og
léttari en venjulega.
„Við byrjuðum á fjallaskíðum á
Siglufirði og er Tröllaskaginn æð-
islegur. Þar eru miklir möguleikar.
Þá fékk ég bakteríuna og sá að ég
gæti þetta,“ segir Harpa.
Þau segja fjallaskíðasportið hafa
farið vaxandi með árunum.
„Sértaklega hafa margir farið á
fjallaskíði í vetur eftir að öllum
skíðastöðum var lokað. Þá varð
sprenging,“ segir Ásmundur og seg-
ir sportið samt ekki glænýtt.
„Það voru einhverjir örfáir nördar
að gera þetta fyrir þrjátíu árum
þannig að þetta er ekki nýtt af nál-
inni. En þetta er nýorðið vinsælt.
Skíðasvæðin eru svo takmörkuð á
Íslandi. En það er frábær aðstaða til
Ljósmyndir/Úr einkasafni
Hundrað dagar
á skíðum
Harpa Þórðardóttir og Ásmundur Þórðarson kynntust
í skólaskíðaferð fyrir 35 árum. Síðan þá hafa þau arkað
saman æviveginn, oftar en ekki á skíðaskónum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is.