Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020 Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Síminn mun um næstu mánaðamót kynna verðbreytingar á áskrift að ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. „Með þessu erum við að gera breyt- ingar til að komast út úr hinu meinta broti. Þá erum við einnig búin að áfrýja dómnum,“ segir Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri af- þreyingarmiðla og sölu hjá Síman- um. Vísar hann í máli sínu til 500 milljóna króna sektar Samkeppnis- eftirlitsins. Var fyrirtækið talið hafa beitt skaðlegri undirverðlagningu sem markaðsráðandi aðili. Í kjölfarið ákváðu Nova og Vodafone að bjóða aðgang að enska boltanum á 1.000 krónur það sem eftir lifði yfirstand- andi keppnistímabils. Töldu fyrir- tækin að dómur Samkeppniseftir- litsins þýddi að fyrirtækin mættu þannig bjóða umtalsvert lægra verð en heildsöluverð Símans. Að sögn Magnúsar skiptir það fyrirtækið litlu hvað Vodafone eða Nova ákveða að gera. Þau þurfi jafnframt að bera kostnað af eigin ákvörðunum. Undrast meint brot Símans „Ef hin fyrirtækin ákveða að niðurgreiða þetta tímabundið er það þeirra mál. Það skiptir okkur ekki máli hvað þeir gera á smásölustigi,“ segir Magnús sem undrast mjög meint brot Símans í málinu. „Sam- keppniseftirlitið gefur sér þessa þús- und króna tölu sem okkur finnst al- veg óskiljanlegt. Við skiljum ekki þessa útreikninga,“ segir Magnús. Aðspurður segir hann að áskrifta- salan hafi lítið breyst frá því að málið kom upp. Keppni í ensku úrvals- deildinni hafi í raun verið að mestu lokið. „Salan hefur ekki breyst nokk- urn skapaðan hlut. Þetta er ekki sjónvarpstímabil og svo var Liver- pool búið að vinna deildina. Þeir sem hafa áhuga voru nú þegar með áskrift,“ segir Magnús. Forstjóri Sýnar, Heiðar Guðjóns- son, segir að allir sem eru með áskrift að enska boltanum í gegnum Vodafone fái hann á þúsund krónur. „Það eru allir að fara í sama pakka. Salan hefur aukist aðeins eftir þetta,“ segir Heiðar og bætir við að fyrirtækið muni greiða fyrir enska boltann í samræmi við úrskurð Sam- keppniseftirlitsins. Verðbreytingar á enska boltanum  Sala á áskriftum breyst mjög lítið eftir úrskurð Samkeppniseftirlitsins Morgunblaðið/Hari Síminn Vænta má breytinga á heildsöluverði enska boltans um næstu mánaðamót. Óvíst er hvort verð mun hækka eða lækka. Alexander Gunnar Kristjánsson Björn Jóhann Björnsson Frá og með deginum í dag bætast ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi á lista með ferðamönnum frá Færeyjum og Grænlandi sem eru undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví vegna kórónuveirunnar. Á vef Isavia má sjá að von er á 18 farþegavélum til landsins, sem er svipað og síðustu daga. Búist er við allt að 2.500 farþegum. Af þessum 18 vélum koma 11 frá fyrrnefndum löndum, sem sóttvarnalæknir telur örugg. Fyrsta slíka vélin kom reynd- ar í nótt frá Kaupmannahöfn en hún átti að koma seint í gærkvöldi. Nýja fyrirkomulagið mun gilda um vél EasyJet sem á að koma kl. 8 frá Luton, og síðan kemur hver vélin á eftir annarri yfir daginn og fram á kvöld. Þannig koma vélar SAS frá Ósló og Kaupmannahöfn, ein Luft- hansa-vél frá Frankfurt, Wizz Air frá Vín og Varsjá, Norwegian frá Ósló og vélar Icelandair koma frá London, Kaupmannahöfn, París, Amsterdam og Frankfurt. Engar sérstakar ráðstafanir verða í Leifs- stöð á vegum almannavarna eða Landlæknis þótt nýtt fyrirkomulag taki gildi í dag. Starfsfólk Isavia, lög- reglan á Suðurnesjum og sýnatöku- fólk verða á staðnum. „Forskráningarskylda er fyrir alla sem koma og ætti hún að beina fólki í rétta átt eftir lendingu. Starfsmenn munu svara spurningum á staðnum,“ segir Jóhann K. Jóhannsson, upplýs- ingafulltrúi almannavarna, í svari til blaðsins. Engin ein stofnun ábyrg fyrir undanþágum Beiðnir um undanþágur frá ferða- takmörkunum stjórnvalda eru yfir- farnar af sérstökum starfshópi sem í sitja fulltrúar utanríkisráðuneytis- ins, atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytisins og Íslandsstofu. Utanríkisráðuneytið hefur tekið á móti fyrirspurnum og beiðnum um undanþágur vegna brýnna erinda- gjörða og hefur Útlendingastofnun leiðbeint þeim í samráði við lögreglu. Því virðist engin ein stofnun ábyrg fyrir undanþágunum og óvíst er hver tekur endanlega ákvörðun. Einhverjir Bandaríkjamenn hafa komið hingað til lands á einkaþotum síðustu daga og vikur þrátt fyrir ferðabannið, en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í fyrradag að það væri gert með leyfi frá utanríkis- ráðuneytinu. Ættingjar EES-búa og náms- menn á leið í nám á Íslandi eru meðal þeirra sem geta sótt um undanþágu, en einnig má sækja um undanþágu fyrir einstaklinga „sem þurfa nauð- synlega að ferðast vegna starfa sem teljast efnahagslega mikilvæg og störf þeirra geta ekki verið fram- kvæmd síðar eða erlendis“. Ekki eru þó veittar undanþágur fyrir ferða- mennsku af neinu tagi. Umsækjendur sem telja sig eiga brýnt erindi hingað til lands,þurfa að leggja fram gögn því til staðfesting- ar, en ekki fást upplýsingar um það hjá Útlendingastofnun hvernig lagt er mat á þau gögn né heldur hvort eftirlit er haft með því að einstak- lingar sem koma hingað til lands séu í raun hér í uppgefnum tilgangi. Átján farþegavélar lenda í Keflavík í dag  Allt að 2.500 farþegar  Engar sérstakar aðgerðir Morgunblaðið/Eggert Leifsstöð Um 2.500 farþegar eru væntanlegir til landsins í dag. Ellefu vélar koma frá öruggum löndum. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mun sjaldnar hefur verið ekið á fé á vegum landsins það sem af er ári en á sama tíma undanfarin ár. Munar tugum prósenta. Ástæðan er vænt- anlega sú að færri erlendir ferða- menn eru á ferðinni á bílaleigubílum. VÍS hefur fengið á hverju ári 300 til 350 tilkynningar um tjón þar sem ekið hefur verið á búfé. Ljóst er að það verður ekki á þessu ári því síð- astliðinn sunnudag hafði félagið fengið tilkynningar um 89 slík tjóns- tilvik. Er fjöldi tilkynninga það sem af er ári því aðeins helmingur til tveir þriðju af sams konar tilkynn- ingum á undanförnum árum. Átti ekki von á fækkun Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sér- fræðingur í forvörnum hjá Vátrygg- ingafélagi Íslands, segist ekki endi- lega hafa átt von á fækkun tilkynninga um ákeyrslu á búfé. Nefnir hún í því sambandi fréttir um að girðingar hafi verið í slæmu ástandi eftir snjóþungan vetur. Margir bændur hafi þurft að girða mikið upp og það taki tíma. Nefnir hún færri erlenda öku- menn sem skýringu og þótt Íslend- ingar ferðist meira um eigið land sé kannski von til þess að þeir vari sig betur á búfénu. Ábyrgð á tjóni þegar ekið er á búfé á vegum er ávallt ökumanns bifreiðarinnar, ef lausaganga búfjár er leyfileg á þeim stað. Ef kaskó- trygging er á bílnum getur hún bætt skemmdir á bílnum, en sjálfsábyrgð er þó oft hærri en því nemur. Ef lausaganga er bönnuð á svæðinu og bóndinn hefur ekki gætt nægilega vel að fé sínu er ábyrgðin hans og þá bætir ábyrgðarliður í landbún- aðartryggingu bænda tjón á bifreið og búfé. Ef búfénaður finnst dauður eftir ákeyrslu og enginn gefur sig fram getur bóndinn sótt í landbún- aðartryggingu, ef hann hefur keypt slíka tryggingu. Tryggingafélögin eru með sam- ræmdar bætur fyrir sauðfé sem drepst. Greiddar eru 15.800 krónur fyrir lamb og 44.800 kr. fyrir full- orðið fé. Yfirleitt er keyrt á sauðfé en dæmi eru einnig um að ekið sé á hross og fleiri stórgripi. Féð sleppur betur á vegum  Færri erlendir ferðamenn á akstri Kindur Ekki er færra fé við vegina en ökumenn virðast gæta sín betur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.