Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020 ✝ Sigurósk Ey-land Jónsdóttir (Nanný) fæddist á Patreksfirði 8. maí 1937. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 6. júlí 2020. Foreldrar henn- ar voru Jón Bjarni Ólafsson, f. 1903, d. 1987, bóndi á Fífu- stöðum, og Sigríð- ur Kristjana Sigurðardóttir, f. 1916, d. 1996. Nanný ólst upp á Patreksfirði hjá ömmu sinni, Kristínu Angantýsdóttur, f. 1893, d. 1973, og stjúpföður, Jóhannesi Gíslasyni, f. 1896, d. 1970. Systk- ini hennar samfeðra eru Vilborg Kristín, Ólafur Einar, Valdís Ingibjörg, Jóhanna, Guðrún Jóna, Lilja Sigrún og Inga Dóra. Bróðir hennar sammæðra var Sigurður Arnaldur Ísleifsson. Nanný giftist Gísla Þóri Vic- torssyni, f. 11.10. 1934, múrara- meistara frá Reykjavík, þann 23. október 1957. Þau skildu ár- ið 2003. Foreldrar hans voru Victor Kristinn Helgason, f. 1897, d. 1955, vegg- fóðrunarmeistari og kaupmaður Börn Victors a) Monika Dröfn, b) Tinna Holt, maki Guðmundur Orri Arnarson. 5) Jóhanna, f. 1970, aðalbókari, maki Geir Gestsson, f. 1967. Börn a) Vic- toría Kristín, maki Berglind Muller, b) Gabríel Már. Dóttir Geirs er Guðríður Hlín. Lang- ömmubörnin eru sex, Embla Alexandra, Freyja Cecilia, Vic- tor Emil, Ville Gísli, Baldur Marinó og Eric Ás. Nanný lauk unglingaprófi frá Patreksfirði árið 1952 og starf- aði síðan á skrifstofu Vatneyrar- verslunarinnar þar til hún fór til Reykjavíkur 1954 í Gagnfræði- skóla verknámsins. Nanný og Gísli hófu búskap í Reykjavík árið 1957 og þar starfaði hún í versluninni Feld- inum. Þau fluttu til Patreks- fjarðar árið 1963 þar sem Nanný vann ýmis störf, m.a. á sýslu- skrifstofunni og á pósthúsinu þar sem hún vann til starfsloka. Árið 1989 fór hún í Póst- og símaskólann. Nanný var virkur þátttakandi í starfi Kvenfélags- ins Sifjar og Slysavarnadeild- arinnar Unnar auk þess sem hún starfaði með Leikfélagi Pat- reksfjarðar í fjöldamörg ár og var gerð að heiðursfélaga þess árið 1996. Í Reykjavík vann hún sem sjálfboðaliði í verslun Rauða krossins. Útför Nannýjar fer fram frá Áskirkju í Reykjavík í dag, 16. júlí 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. í Reykjavík, og Pál- ina Eygló Gísla- dóttir, f. 1890, d. 1966, húsfrú. Nanný og Gísli eignuðust fimm börn: 1) Eygló, f. 1958, umsjónar- maður fasteigna, maki Olle Bergh, f. 1953. Börn Eyglóar eru Eva Lotta Stanleysdóttir, maki Arne Forsström, b) Gísli Patrik Stanleysson, maki Anna Fernqvist. Börn Olle eru a) Jenný, b) Evelina, c) Jimi. 2) Kristín, f. 1960, íþróttakennari, maki Gunnlaugur Úlfar Gunn- laugsson, f. 1958, d. 2019. Dóttir Kristínar er Sunna Sigurósk Gísladóttir, maki Gylfi Gígja Geirsson. Börn Gunnlaugs Úlf- ars eru a) Eva Rut, maki Þor- björn Sigfússon, b) Þorfinnur, maki Ágústa Jóna Heiðdal, c) Gunný. 3) Gerður, f. 1964, píanó- kennari, maki Sigurður Borgar Guðmundsson, f. 1965. Börn þeirra eru a) Karitas, b) Guð- mundur Gauti, maki Svala Björgvinsdóttir. 4) Victor Krist- inn, f. 1966, sjómaður, maki Julia Karen Kubowic, f.1991. Elskuleg móðir okkar Sigur- ósk Eyland Jónsdóttir, Nanný, var bráðkvödd þann 6. júlí sl. á heimili sínu. Mamma var skemmtileg kona og í minningu okkar var hún alltaf eitthvað að bralla með okkur. Hún var mikill leikari, var endalaust að setja upp leikrit með okkur og klæddi sig og okkur í búninga. Þá var dagskrá barnaafmælanna alltaf skipulögð í þaula. Mamma elsk- aði ljóð og kvæði og þuldi upp heilu ljóðabálkana sem hún hafði lært sem barn. Mörg kvöldin lágum við með henni upp í rúmi og fórum í leikinn, Komdu nú að kveðast á. Hún var einstaklega lagviss og söng okkur gjarnan í svefn þegar hún var búin að láta okkur fara með bænirnar. Henni var mjög umhugað um að við myndum standa okkur vel í skóla og eyddi ómældum tíma í að lesa með okkur námsefnið og hlýða okkur yfir. Mamma var mikill náttúru- unnandi, elskaði fjallgöngur og útivist og ósjaldan sáum við á eftir henni hátt upp í fjall að ná sér í plöntur í fallega garðinn sinn sem hún lagði mikla rækt við. Mamma var mikill sóldýrk- andi og notaði hvert tækifæri til að fara í sólbað. Hún var dýra- vinur og átti bæði ketti og hunda. Mamma var sem fyrr segir mikill leikari og góður penni, skrifaði ófáa leikþætti sem settir voru upp á skemmtunum hjá kvenfélaginu og slysavarna- deildinni á Patró og auðvitað var hún leikstjórinn. Hún starfaði með Leikfélagi Patreksfjarðar í yfir 20 ár, lék í fjöldamörgum leikritum og var gerð að heiðurs- félaga þar árið 1996. Eftir að hún flutti til Reykjavíkur starfaði hún með leikfélaginu Snúði og Snældu og einnig lék hún auka- hlutverk í nokkrum sjónvarps- þáttum og bíómyndum þar sem hún naut sín í botn. Mamma var mikil Kvennalistakona og fór m.a. á kvennaráðstefnu í Osló og Turku. Henni fannst gaman að ferðast, fór oft til Svíþjóðar til að heimsækja Eygló og barnabörn- in og svo fór hún oft í ferðir með Bændaferðum, m.a. til Kanada þar sem hún var fjallkona í Gimli 17. júní. Lestur góðra bóka var hennar líf og yndi og las hún margar bækur á viku. Undir það síðasta var orðið mjög erfitt að finna bækur fyrir hana á bóka- safninu sem hún var ekki búin að lesa. Hún var mikill snillingur í að ráða krossgátur og hafði mjög gaman af því að spila og leggja kapal. Mamma var mjög glæsileg kona, klæddi sig alltaf stelpulega og það kom ekki til greina að fara með hana í einhverjar kerlinga- búðir þegar hana vantaði föt. Það var alltaf gott að koma til mömmu. Hún vildi alltaf vera að gefa okkur mat og ef hún vissi að einhver var á leiðinni var hún ekki lengi að galdra fram veislu- borð. Þótt mamma og pabbi hefðu skilið árið 2003 þá voru þau alltaf mjög góðir vinir og héldu góðu samband. Elsku mamma, við söknum þín mikið og þess að geta ekki komið við í kaffi hjá þér og barnabörnin sakna ömmu og langömmu sem var þeim einstak- lega hlý og góð. Minningin um þig mun lifa í hjörtum okkar elsku mamma, Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Þín börn Eygló, Kristín, Gerður, Victor og Jóhanna. Elsku amma, það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farin. Minningarnar um stundir okkar saman eru margar og skemmti- legar. Þú passaðir mig iðulega þegar við bjuggum á Patró og við krakkarnir máttum alltaf koma og vera hjá þér. Það var enginn staður bannaður í stóra húsinu ykkar afa. Við stelpurnar dund- uðum okkur tímunum saman inn í herbergi með slæðurnar þínar, hálsfestarnar, veskin og skóna eða vorum í eltingaleik út um allt hús. Oft lékum við okkur úti í garði og þegar það hafði snjóað mikið þá klifruðum við upp á þak- ið á bílskúrnum og hoppuðum of- an í skafl. Þú keyrðir ekki bíl, tókst að vísu einhverntíman bíl- próf en keyrðir samt aldrei sjálf. Ég held samt að þú hafir innst inni notið þess því þá hafðirðu góða og gilda ástæðu til að hringja í okkur krakkana ef þú þurftir að komast eitthvað og alltaf vorum við tilbúin. Ég fékk fallega nafnið þitt, Sigurósk, og hef ég alltaf borið það með stolti og virðingu og ég er ekki lengi að leiðrétta fólk þegar það ber það vitlaust fram. Í dag er ég sú eina í fjölskyldunni sem ber þetta nafn og það er mikill heiður fyrir mig, elsku amma mín. Mér þykir óskaplega vænt um að hafa gist hjá þér síðustu nóttina í lífi þínu og þakka fyrir stundina okkar saman. Ég elska þig amma mín, minning þín lífir í hjarta mínu. Þín Sunna Sigurósk. Elsku amma Nanný, þú varst ekki bara amma mín heldur líka vinkona mín, við vorum nefnilega mjög nánar. Við áttum yndislegt samband, einstakt og skemmti- legt var það og mun ég alltaf vera þakklát. Ég man þegar þú bjóst á Patró. Það var alltaf svo gaman að keyra vestur til ömmu og afa, hitta ykkur og Prins hundinn ykkar og þegar ég tók bestu vin- konu mína í ferðalag vestur tókstu svo vel á móti okkur. Við fórum í berjamó og hjálpuðum þér að búa til sultu. Þegar ég hugsa til baka þá koma margar minningar upp í hugann sem ég mun geyma í hjarta mínu. Eftir að þú fluttir ein til Reykjavíkur þá vorum við enn meira saman, ég og mamma í kaffi til ömmu, bókasafnið að velja fyrir þig bækur og þegar ég fór með þig að versla snyrtidót, þú varst alltaf svo vel til fara og klæddir þig svo björtum og skær- um litum, þú elskaðir bleikan og það var þinn litur, amma mín. Síðasta sumar, þegar ég kom til þín og gisti, tókum við algjört trúnó saman og þú sagðir: „Við skulum nú ekkert vera að segja mömmu þinni,“ sem var svo bara á milli okkar og bréfið sem þú gafst mér síðustu jól, þú hafðir sko húmor. Ég mun sakna þess að eyða næstu jólum með þér amma mín, þú eyddir alltaf jól- unum og áramótunum þínum hjá okkur í Mosó og þau verða sko ekki eins án þín. Þú fékkst lang- flestu pakkana og flæddu þeir út fyrir tréð, þú varst okkur öllum svo kær og elskum við þig svo mikið. Ég og Gauti bróðir mun- um sakna þess að hafa ömmu hjá okkur á jólunum. Ég vildi óska þess að ég hefði komið fyrr heim til Íslands svo ég hefði getað séð þig, það var svo margt sem ég hefði viljað segja þér, en við tök- um trúnó seinna, ég veit það vel. Ég elska þig og sakna þín elsku amma mín. Þín ömmustelpa, Karitas. Þann 6. júlí síðastliðinn fékk ég upphringingu. Kristín, dóttir elskulegrar og yndislegrar vin- konu minnar, Nannýjar, tilkynnti mér andlát móður sinnar og var það henni mjög þungbært. Við Nanný töluðumst við í síma tveimur dögum fyrr, þá var hún sárþjáð. Hún spurði mig þó, hvernig hefur þú það elskan mín. Hún hafði alltaf hjartarúm og svona var hún alltaf við vini sína. Stuttu eftir að ég flutti til Reykjavíkur kynntumst við úti á tröppum hjá mér. Hún var líka nýflutt að vestan. Svo ég geri 15 ára sögu okkar stutta, þá gátum við spjallað endalaust saman. Hún á svo stórkostlega fjöl- skyldu. Börnin hennar báru for- eldrana á höndum sér. Þau héldu þeim veislur og samfögnuði og þau voru í daglegu sambandi. Við bárum saman bækur og áttum svo margt sameiginlegt. Skemmst er að minnast bænda- ferðar sem við fórum saman í til Ítalíu. Það var auðséð hvaða mann Nanný hafði að geyma og allir tóku henni opnum örmum þar sem og hér heima. Við fórum í ótal margar skemmtiferðir í bæ- inn, t.d. á 17. júní og Menning- arnótt með regnhlífar og í ljósum sumarfötum. Við fórum í Kola- portið saman og fengum okkur kakó og vöfflur og tókum með okkur nesti í Grasagarðinn þar sem við settumst á teppi og létum sólina baða okkur kerlurnar. Við tókum strætó og ferðuðumst um með leið 14 með léttum leik. Síðast fórum við saman á konukvöld í Blómavali. Í and- dyrinu, sem var þéttsetið af fólki, tók Sigga Kling á móti okkur. Hún faðmaði Nanný að sér og hrópaði að hún væri fallegasta og yndislegasta manneskjan á staðnum. Hún brosti breitt og dansaði dátt af gleði við hana undir tónlist Helga okkar Björns. Svona var allt í kringum Nanný. Ég sakna hennar mjög og sím- tölin, sem voru nánast dagleg, björguðu mér oft í einsemd minni. Í dag eiga fjölskyldur okk- ar nóg með sig og sína og margt er í boði fyrir þær. Ég kveð elskulega vinkonu mína með þakklæti í huga og söknuði. Yndislega fjölskylda, ég samhryggist ykkur. Kærar kveðjur, Steingerður Axelsdóttir og börn. Sigurósk Eyland Jónsdóttir Kær móðir okkar og tengdamóðir, BRYNDÍS ÞORSTEINSDÓTTIR, sem lengst af bjó á Laugarásvegi 63 í Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Grund 9. júlí. Hún verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 17. júlí klukkan 15. Dagný Helgadóttir Gunnar H. Egilson Árni B. Helgason Rósa Guðný Jónsdóttir Guðrún Helgadóttir Atli Rúnar Halldórsson Þorsteinn Helgason Jónína Á. Steingrímsdóttir og fjölskyldur Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALUR JÚLÍUSSON læknir, Hrafnistu, Sléttuvegi, lést 5. júlí. Útför hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Ágústa Nellý Hafsteinsdóttir Hrefna Lilja Valsdóttir Hafsteinn Valsson Hallfríður Karlsdóttir Hörður Valsson Ingibjörg Lilja Halldórsdóttir afabörn og langafabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HANNA BJÖRK HÁLFDÁNARDÓTTIR, Kristnibraut 85, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 10. júlí. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju þriðjudaginn 21. júlí klukkan 13. Bjarni Sigurðsson Dagbjört Rut Bjarnadóttir Daði Hafþórsson Sigurður Freyr Bjarnason Silja Dögg Andradóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG GÍSLADÓTTIR fv. útibússtjóri, Ársölum 3, lést á Hrafnistu DAS í Boðaþingi föstudaginn 10. júlí. Útför fer fram frá Lindakirkju þriðjudaginn 21. júlí klukkan 13. Sigurður Sigurðsson Unnur Guðbjargardóttir Laufey Sigurðardóttir Jón Bjarki Sigurðsson Sigurður Björn Bjarkason Sigurbjörg Ósk Kristjánsdóttir Arnór Ingi Bjarkason Lina Marija Bal■i■nait■ Elmar Trausti Sigurðsson lč ū ė Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, sonur og tengdasonur, GUNNAR M. ERLINGSSON, löggiltur endurskoðandi, Hæðarseli 14, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 11. júlí umvafinn ástvinum sínum. Útför verður auglýst síðar. Lilja Guðjónsdóttir Kolbrún F. Gunnarsdóttir Sigurður Dagur Sigurðarson Andri Örn Gunnarsson Dagný Jónsdóttir Gunnar Örn Sigurðarson Björgvin Logi Sigurðarson Lilja Kristín Sigurðardóttir Birkir Úlfar Sigurðarson Kolbrún Gunnarsdóttir Erling J. Sigurðsson Sigfríður Runólfsdóttir systkini og fjölskyldur þeirra Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Helga Guðmundsdóttir, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.