Morgunblaðið - 16.07.2020, Side 5

Morgunblaðið - 16.07.2020, Side 5
fyrirtaekjaskra@skatturinn.is 442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Skila skal ársreikningum eftir að þeir hafa verið staðfestir á aðalfundi viðkomandi félags, ekki síðar enmánuði eftir aðalfund. Forráðamönnum félaga er bent á að lokafrestur til að halda aðalfund og skila ársreikningum rennur út átta mánuðum eftir lok reikningsárs. Forráðamenn eru hvattir til að bregðast skjótt við og senda ársreikning rafrænt þannig að ekki þurfi að koma til sektarákvörðunar. Hægt er að ganga úr skugga um hvort að ársreikningi hafi verið skilað til ársreikningaskrár á vefnum skatturinn.is undir Fyrirtækjaskrá. Vakin er athygli á því að örfélög geta nýtt sér Hnappinn, að því tilskyldu að þau hafi skilað skattframtali. Ef félag nýtir sér Hnappinn þá er farið inn á þjónustusíðuna, skattur.is og valið að láta Skattinn útbúa ársreikning félagsins og skila til ársreikningaskrár. Senda skal inn til opinberrar birtingar þann ársreikning sem staðfestur var á aðalfundi viðkomandi félags. Ekki er heimilt að breyta eða fella niður neinar upplýsingar í þeim ársreikningi sem sendur er inn til opinberrar birtingar. Ekki er því heimilt að staðfesta hefðbundinn ársreikning á aðalfundi félags en senda svo inn hnappsreikning í stað þess reiknings sem staðfestur var á aðalfundi. Lokafrestur til að skila ársreikningum rennur út 31. ágúst 2020. Ársreikn ingur 2019 Ertu nokkuð að gleyma þér?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.