Morgunblaðið - 16.07.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
10-60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALAN ER Í
FULLUMGANGI
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Fimmtudagurinn 25. júní var örlaga-
dagur í lífi Andreu Ránar Snæfeld
Hauksdóttur knattspyrnukonu. Um
miðjan dag fékk hún símtal frá
hjúkrunarfræðingi sem upplýsti
hana um að sýni úr henni hefði
greinst jákvætt fyrir kórónuveirunni.
Andrea, sem hafði dagana á undan
spilað tvo leiki fyrir Breiðablik í
Pepsi Max-deild kvenna, sá undir
eins að smitið ætti eftir að draga dilk
á eftir sér.
Í hönd fóru erfiðir dagar og vikur
þar sem fjallað var um veikindi henn-
ar opinberlega og sjálfsásakanir tóku
völdin. Í samtali við mbl.is segist
Andrea hafa brotnað niður þegar
henni var fyrst tjáð að hún væri smit-
uð:
„Það var bara eins og heimurinn
hefði stoppað. Ég náði ekki andanum
og vissi um leið hvað hafði gerst.
Næstu tímar fóru í að tala við smit-
rakningarteymið sem hringdi við-
stöðulaust í mig og vann frábært
starf. Ég hringdi sjálf í mína nánustu
en síðan hringir kona frá smitrakn-
ingarteyminu og spyr hvort ég sé bú-
in að láta þjálfarann minn vita.
Þá vissi ég í hvað stefndi; ég væri
að fara að senda tvö lið í sóttkví og ég
vissi hvaða áhrif þetta myndi hafa á
deildina. Ég fæ stjúppabba minn til
að hringja í þjálfarann áður en smit-
rakningarteymið gerir það og sit
sjálf gersamlega niðurbrotin á gólf-
inu í herberginu mínu. Þetta var
versta tilfinning í lífi mínu að valda
þessu,“ lýsir Andrea.
„Ég hélt að ég hefði
brotnað niður fyrst“
Ef þetta var það versta, þá var það
alversta handan við hornið.
„Ég sit þarna á gólfinu og reyni að
eiga samskipti við mömmu í gegnum
hurðina, því hún má væntanlega ekki
koma nálægt mér, þannig að ég vissi
ekki hvert ég átti að snúa mér eða
segja eða gera. Svo gerist það mjög
stuttu síðar að ég fæ skilaboð á Face-
book frá mjög góðri vinkonu minni.
Ég stend upp og skoða símann og les:
„Heyrðu, ert þú með COVID?“ Með-
fylgjandi var skjáskot af frétt með
mynd af mér og nafninu mínu: Ís-
landsmótið í uppnámi? Leikmaður
Breiðabliks greind með COVID-19.
Ég hélt að ég hefði brotnað niður
fyrst en þessu get ég ekki einu sinni
lýst. Þetta var ólýsanleg tilfinning,
sem ég myndi aldrei vilja að neinn
gengi í gegnum, ekki einu sinni minn
versti óvinur. Ég þurfti ekki einu
sinni að kalla á mömmu, ég bara
veinaði,“ segir Andrea.
Á meðan þetta stóð yfir stóð móðir
Andreu hjá en gat lítið huggað dóttur
sína, enda faðmlag brot á sóttvarna-
lögum á stundu sem þessari. Andrea
hafði verið nafngreind hjá fotbolta.-
net kl. 17.21 25. júní, 18 mínútum áð-
ur en almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra lét vita af smitinu, og
birtu almannavarnir þó ekkert nafn.
Andrea segir fotbolta.net hafa varpað
fyrir róða öllum hefðbundnum við-
miðum í fjölmiðlum um nafn- og
myndbirtingar í tengslum við veikindi
fólks, og um leið bakað henni ómæld-
ar þjáningar með framferði sínu, enda
hafi þeirra athæfi rutt brautina fyrir
nafnbirtingu í öðrum miðlum, þar á
meðal á mbl.is og Morgunblaðinu.
Fyrsta fórnarlamb nýs kerfis
Segja má að Andrea hafi verið
fyrsta birtingarmynd og þar með
fórnarlamb þeirrar áhættu sem bjó í
nýju kerfi við landamærin, þar sem
fólki var hleypt inn í landið eftir eina
skimun í stað sóttkvíar frá 15. júní.
Andrea kom 17. júní. Eins og var vit-
að að kynni að gerast, og hefur komið
í ljós með afgerandi hætti síðan þá,
greina PCR-prófin ekki öll virk smit
og síst þau sem nýlega hafa búið um
sig í líkamanum.
Andrea var því grunlaus um að hún
væri sjálf smituð allt frá því að hún
fékk neikvæða niðurstöðu úr sýna-
töku á fimmtudegi og þar til hún fékk
símtal frá Bandaríkjunum á þriðju-
dagskvöld: „Mér datt það bara ekki í
hug. Ég treysti því að neikvætt væri
neikvætt. Þetta er bara eins og grænt
ljós. Þú ferð áfram á grænu ljósi,“
segir Andrea, sem var að auki með
öllu einkennalaus, veiktist aldrei og
hafði fulla burði til þess að spila tvo
knattspyrnuleiki. Þrátt fyrir allt fjöl-
miðlafárið smitaði Andrea aðeins þrjá
en sendi 3-400 í sóttkví. Nánar er rætt
við Andreu í ítarlegu viðtali á mbl.is.
„Eins og heimurinn hefði stoppað“
Nafngreind í fjölmiðlum rétt eftir að hún fékk að vita að hún væri smituð Brotnaði niður þegar
hún sá hvaða áhrif smitið gæti haft á knattspyrnudeildina Sendi 3-400 í sóttkví en smitaði aðeins þrjá
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bliki Knattspyrnukonan Andrea Rán greindist ekki með kórónuveiruna við
skimun á flugvellinum en fór aftur í sýnatöku eftir að símtal barst frá BNA.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir veikingu krónunnar
munu styðja við ferðaþjónustuna.
Hún geti enda haft áhrif á ákvörð-
unartöku hjá ferðamönnum sem
íhuga ferð til Íslands.
„Menn sjá að Ísland er orðið væn-
legri kostur hvað varðar verðlagn-
ingu en landið hefur verið í langan
tíma. Við það
bætist að verðið
hjá fyrirtækjun-
um er lægra en
það hefur verið,“
segir Jóhannes
Þór.
Hins vegar sé
algengt að bókun-
arfrestur sé 60-90
dagar. Því geti
orðið nokkur
tímatöf í gengisáhrifunum. Þá beri
að líta til þess að við aðstæður sem
þessar, í kórónufaraldrinum miðjum,
sé verðið ekki endilega úrslitaatriðið.
Ferðamenn spyrji sig hvort öruggt
sé að ferðast og hversu miklar hindr-
anir þurfi að yfirstíga.
Örvar þýska markaðinn
Með þetta í huga telur Jóhannes
Þór það munu örva eftirspurn eftir
Íslandsferðum að hætt hefur verið
að skima farþega frá fjórum löndum.
„Það mun hafa mjög jákvæð áhrif
á þýska markaðinn að skimun hafi
verið hætt. Það mun klárlega hafa
þau áhrif að færri munu afbóka ferð-
ir til Íslands,“ segir Jóhannes Þór.
Evran kostar nú um 160 kr. en
kostaði tæplega 150 kr. í byrjun júní.
Spurður hvort gengið þurfi að
vera á þessum slóðum, svo ferða-
þjónustan eigi sér viðreisnar von,
segir Jóhannes Þór að „raunsætt á
litið þurfi gengið að vera að minnsta
kosti heldur veikara en það hefur
verið undanfarin ár“. Gengið hafi
verið of sterkt fyrir íslenska ferða-
þjónustu undanfarin ár.
Myndi styðja við fyrirtækin
„Það myndi hjálpa mörgum fyrir-
tækjum mjög mikið ef gengið yrði
áfram á þessum slóðum fram á
næsta ár og næsta sumar. Það er
klárt mál,“ segir Jóhannes Þór.
„Ef gengið hækkar mun það klár-
lega vinna gegn því að fleiri fyrirtæki
geti lifað af. Ég held að gengi krón-
unnar sé þó ekki úrslitaatriði núna.
Úrslitaatriðið er hversu miklar
tekjur hafa komið í kassann en þar
munar mun meira um fjöldann sem
er horfinn úr jöfnunni. Gengisveik-
ingin vinnur ekki upp 80% samdrátt í
komum ferðamanna.“ »32
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Við Dettifoss Stígandi er í komum erlendra ferðamanna eftir erfitt vor.
Fjölgun ferðamanna
seinkar gjaldþrotum
Framkvæmdastjóri SAF segir veikara gengi örva söluna
Jóhannes Þór
Skúlason
Selja ríkisbréf
» Jón Bjarki Bentsson, aðal-
hagfræðingur Íslandsbanka,
segir sölu erlendra fjárfesta á
ríkisbréfum eiga þátt í veikingu
krónunnar síðustu daga – nú
leiti þeir á stærri markaði.
» Skýringin á veikingu krón-
unnar sé ekki minni vaxtamunur.