Morgunblaðið - 16.07.2020, Page 10

Morgunblaðið - 16.07.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020 VERTU Í RÉTTA PAKKANUM Í SUMAR! Smíði nýrra söluhúsa fyrir hvala- skoðunarferðir á Ægisgarði er á lokastigi. Sem kunnugt er hefur verið afar rólegt yfir þeirri starf- semi í sumar vegna COVID-19 og því hefur ekki bráðlegið á að ljúka smíðinni. Húsin eru sjö talsins. Tvö stærstu húsin verða tilbúin í vik- unni og þá verða þau tekin út. Hin húsin ættu að verða tilbúin í fyrri hluta ágústmánaðar, að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra. Ekki er búið að dagsetja afhendingu til hvalaskoðunarfyrirtækjanna. Faxaflóahafnir ákváðu að ganga til samninga við eftirtalin fyrir- tæki um leigu á húsunum: Special Tours, Eldingu, Sea Safari, Sea- trips, Reykjavík by Boat, Happy Tours og Katla Whale Watching. Faxaflóahafnir ákváðu í fyrra að ráðast í smíði söluhúsanna á Ægisgarði. Hvalaskoðunarfyrir- tækin seldu miða í hvala- og lundaskoðunarferðir og aðrar slík- ar ferðir í skúrum sem lítil prýði þótti að. Skrifað var undir verksamning við E Sigurðsson ehf. þann 15. maí 2019. Samningsupphæðin var tæp- lega 400 milljónir. Fyrirtækið sér um allt verkið, þ.e. smíði og upp- setningu húsanna og jarðvinnuna við Ægisgarð. Verkinu átti að ljúka 30. apríl 2020, í tæka tíð fyrir háannatíma hvalaskoðunar- ferða. Því hefur seinkað af ýmsum ástæðum. sisi@mbl.is Fyrstu söluhús hvalaskoðunarfyrirtækjanna á Ægisgarði við Gömlu höfnina í Reykjavík verða tilbúin í þessari viku Rólegt yfir höfninni á veirutímum Morgunblaðið/Árni Sæberg Listamaðurinn Páll Guðmundsson á Húsafelli þarf að fjarlægja nýlegt hús sem hýsa átti legsteinasafn og vera þannig hluti af þeim byggingum sem hýsa listasafn Páls. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Vesturlands við kröfu nágranna Páls, Sæmundar Ásgeirssonar, sem rekur gistiþjón- ustu á næstu lóð. Hins vegar var Páll sýknaður af kröfu um að rífa annað hús sem kallast pakkhúsið. Páll býr á Húsafelli 2, en Sæ- mundur rekur gistiþjónustuna Gamla bæ á Húsafelli I. Páll á einnig lóðina Bæjargil sem á lóðamörk að Húsafelli I við Húsafellskirkju. Borgarbyggð hafði árið 2015 veitt leyfi til að flytja pakkhúsið á lóðina við Bæjargil sem og byggingarleyfi fyrir húsnæði legsteinasafnsins á sömu lóð. Sæmundur var ósáttur við þessa niðurstöðu og benti meðal ann- ars á að mannvirkjum þessum væri ætlað að laða að sér gesti og slíkt myndi hafa í för með sér aukna um- ferð á svæðinu, en aðkoma að Bæjar- gili og Húsafelli I er sú hin sama. Þá gerði deiliskipulag ráð fyrir að þrengt yrði að bílaplani á lóð Húsa- fells I, en bílastæði Gamla bæjar, kirkjunnar og Bæjargils átti að vera óskipt. Taldi Sæmundur ljóst að safngestir myndu leggja undir sig bílastæði á svæðinu. Árið 2018 komst úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála að því að deiliskipulagið hefði ekki tekið lög- formlegt gildi og væri því ógilt. Var byggingarleyfi vegna húsnæðis und- ir legsteinasafnið jafnframt fellt úr gildi. Hafði Páll á þessum tíma byggt húsnæðið undir legsteinasafnið og flutt pakkhúsið á lóðina. Í kjölfar úr- skurðarins fór Sæmundur með málið fyrir dómstóla og krafðist þess að Páli yrði gert að fjarlægja húsin. Héraðsdómur Vesturlands komst í dómi sínum að þeirri niðurstöðu að Páli hefði mátt vera ljóst þegar hann lét reisa húsnæði undir legsteina- safnið að ágreiningur væri um lög- mæti þess að húsið yrði reist og að kostnaður vegna þess væri á hans ábyrgð. Var honum því gert að fjar- lægja það. Í tilfelli pakkhússins, sem var fært að Bæjargili, telur dómur- inn að ekki hafi verið sýnt fram á að Páli hafi við flutninginn mátt vera kunnugt um ólögmæti leyfisins fyrir fram. Er hann því sýknaður af kröf- unni um að fjarlægja það hús. thorsteinn@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Húsafell Pakkhúsið, sem er rauða húsið á myndinni, var fært að Bæjargili og fær að standa þar áfram samkvæmt dómi Héraðsdóms Vesturlands. Gert að fjarlægja nýtt hús á Húsafelli  Átti að geyma legsteinasafn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.