Morgunblaðið - 16.07.2020, Síða 49

Morgunblaðið - 16.07.2020, Síða 49
Tvö embætti dómara við Hæstarétt Íslands laus til umsóknar Dómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar tvö embætti dómara við Hæstarétt Íslands. Stefnt er að því að skipa í embættin frá 1. september 2020 eða hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 13. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) upplýsingar um tvo fyrrverandi eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf hæstaréttardómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til að starfa sem hæstaréttardómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 27. júlí nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 10. júlí 2020. Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Fyrirmyndarfyrirtæki 2020 hagvangur.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.