Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 54
K
amilla Rún Jóhanns-
dóttir er fædd 16. júlí
1970 á Akureyri. Hún
eyddi þremur fyrstu
árum ævinnar í
Kristnesi en flutti þá í Hleiðargarð
í Eyjarfjarðarsveit og ólst þar
upp.
Kamilla gekk í Barnaskóla Saur-
bæjarhrepps og síðan í Hrafnagils-
skóla og var þar á heimavist, 13-15
ára. Hún varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1990 og lauk
BA prófi í sálfræði frá Háskóla Ís-
lands 1996. Hún tók á þeim tíma
virkan þátt í stúdentapólitík, var í
Röskvu og sat í Stúdentaráði 1994-
1996, sem framkvæmdastjóri Stúd-
entaráðs 1995-96. Hún útskrifaðist
með doktorspróf í þverfaglegum
hugvísindum frá Carleton-háskóla
í Ottawa í Kanada 2004. Hún var
með Carleton University Doctoral
námsstyrk 1996-2002 og var valin
rannsakandi ársins á meðal nem-
enda árið 2000.
„Ég var nokkuð snemma búin að
ákveða að læra sálfræði og ástæðan
var almennur áhugi á manneskj-
unni og mannlegu atferli. Ég ætlaði
reyndar fyrst að verða bóndi en
það breyttist svo. Ég hef líka alltaf
haft áhuga á að vinna þverfaglega
innan vísindanna eins og með
gervigreind, taugasálfræði og heim-
speki, að spyrja stærri spurninga
og fór beint í doktorsnámið eftir að
hafa klárað BS-námið.“
Kamilla starfaði sem lektor við
Háskólann á Akureyri árin 2004-
2017, og sem lektor og síðar dós-
ent við Háskólann í Reykjavík frá
2011. „Eftir að ég byrjaði hjá Há-
skólanum í Reykjavík, en það var
fullt starf, þá hélt ég eftir 30%
stöðu á Akureyri, mér fannst gam-
an að halda tengslum við Háskól-
ann á Akureyri.“ Kamilla er einnig
forstöðumaður BSc grunnnáms í
sálfræði við HR og tók við þeirri
stöðu 2014.
„Allar mínar rannsóknir við Há-
skólann í Reykjavík eru þverfag-
legar og ég hef unnið með verk-
fræðideildinni og tölvunarfræði-
deildinni við skólann. Það er mjög
hollt að nálgast viðfangsefnin út
frá fleiri en einu sjónarhorni og er
ég hluti af CADIA (Center for
Analysis and Design of Intelligent
Agents) rannsóknarsetrinu við
HR.“ Kamilla hefur skrifað fjölda
vísindagreina sem birst hafa í er-
lendum vísindaritum. „Ég hef
meðal annars verið að greina
þreytu og vinnuálag hjá flug-
umferðarstjórum og var að hanna
flugstjórnarklefa áður en ég kom
heim til Íslands.“
Áhugamál Kamillu eru meðal
annars útivist og ferðalög. „Ég hef
komið til yfir 50 landa og farið í
bakpokaferðir, bæði innanlands og
erlendis. Mér finnst líka gaman að
spjalla um lífið og tilveruna yfir
góðum kaffibolla með góðum vin-
um og rauðvín má vera með.“
Kamilla heldur upp á afmælið í
heimahögunum. „Þegar Hleiðar-
garður var seldur héldum við eftir
smá hluta af landi og byggðum
sumarbústað þar.“
Fjölskylda
Eiginmaður Kamillu er Gerardo
Reynaga, f. 18.5. 1970, doktor í
tölvunarfræði og starfar sem
kerfisfræðingur hjá Icelandair.
Þau eru búsett í Reykjavík. For-
eldrar Gerardo eru hjónin Ben-
jamin Reynaga arkitekt og Silvia
Reynaga húsfreyja. Þau eru búsett
í Guadalajara í Mexíkó.
Börn Kamillu og Gerardo eru
Hrafney María Reynaga, f. 2.4.
2006, og Benjamín Þór Reynaga, f.
26.9. 2008.
Systkini Kamillu eru Rósa Jó-
hannsdóttir, f. 23.8. 1963, örveru-
líffræðingur, búsett í Bandaríkj-
unum; Brynjólfur Jóhannsson, f.
4.8. 1964, rafmagnstæknifræð-
ingur, MBA, búsettur á Akureyri;
Dóra Jóhannsdóttir, f. 17.10. 1971,
hjúkrunarfræðingur, MSc, búsett
á Akureyri.
Foreldrar Kamillu: Hjónin
Auður Eiríksdóttir, f. 11.8. 1938,
hjúkrunarfræðingur, kennari og
fyrrverandi bóndi og oddviti Saur-
bæjarhrepps, búsett á Akureyri,
og Jóhann Þór Halldórsson, f.
12.9. 1938, d. 31.12. 2006, bóndi í
Hleiðargarði.
Kamilla Rún Jóhannsdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík – 50 ára
Þverfaglegar rannsóknir í HR
Hjónin Kamilla og Gerardo í Þórsmörk í júní 2020.
Fjölskyldan Stödd í Mexíkó 2015, en Gerardo, maður Kamillu, er þaðan.
54 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
70 ára Hannes er
Keflvíkingur en býr í
Hafnarfirði. Hann er
lærður húsasmiður en
rak fasteignasölu í
átta ár og Pylsubarinn
í Hafnarfirði í 20 ár en
er nýbúinn að selja
hann.
Maki: Halldóra Lúðvíksdóttir, f. 1950,
rak tískuvöruverslunina Kóda í 20 ár.
Börn: Bjarnheiður, f. 1980, Helgi Már, f.
1980, og Arnar Dór, f. 1982. Barna-
börnin eru orðin sjö.
Foreldrar: Ragnar Jónasson, f. 1927,
fv. slökkviliðsmaður á Keflavíkur-
flugvelli, búsettur í Hafnarfirði, og
Bjarnheiður Hannesdóttir, f. 1930, d.
2012, húsmóðir.
Hannes Arnar
Ragnarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Félagslífið stendur í miklum
blóma, sem þýðir að þú þarft að standa
við gefin loforð. Einnig er lag að byrja nýtt
samband og handsala viðskipti.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er komið að þeim tímamótum í
lífi þínu að þú hrindir í framkvæmd þeirri
áætlun sem þú hefur svo lengi verið með í
undirbúningi. En flýttu þér hægt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gættu þess að einblína ekki á
eitt atriði þegar þú reynir að finna málum
þínum lausn. Leggðu þitt af mörkum til að
bæta umhverfi þitt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú getur upplifað öfgafullar tilfinn-
ingar af litlu tilefni. Ef þú þarft að láta í
minni pokann skaltu gera það með reisn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færð oft góðar hugmyndir en týn-
ir þeim jafnóðum niður. Allt það jákvæða
sem þú framkvæmir í vinnunni og sam-
bandinu skilar sér í betri heilsu. Gefðu þér
tíma til að sýna þig og sjá aðra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Að vera góður hlustandi þarfnast
bæði þroska og aga, og þú hefur nóg af
bæði. Dagurinn hentar illa til verslunar og
samningagerðar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er best fyrir þig að tala skýrt og
skilmerkilega núna. Gakktu ekki svo langt
að þú unnir þér ekki hvíldar. Notaðu kvöld-
ið fyrir sjálfan þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vinirnir eru þér mikilvægari
en ella um þessar mundir, reyndu að gefa
þér tíma til þess að hitta þá. Oft þarf ekki
mikið til.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Aðrir eru ekki eins spenntir
fyrir ferðahugmyndum og námsáætlunum
og þú. Reyndu að sýna þolinmæði og jafn-
aðargeð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að gera þér grein fyrir
muninum á því að segja einhverjum eitt-
hvað og áróðri. Leiðinlegur yfirmaður flyt-
ur sig um set, eða þú skiptir um vinnu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er voða gaman að vera
fínn til fara, en þú verður að viðurkenna að
það er margt sem skiptir meira máli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Á yfirborðinu gæti virst sem þú
tengist fólki af furðulegum ástæðum.
Bjartsýni þín smitar út frá sér.
Þorvaldur Gunnlaugsson er 70 ára í dag.
Hann ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur og gekk
í Menntaskólann í Reykjavík. Hann er stærð-
fræðingur að mennt en einnig þekktur sem
náttúrufræðingur, enda einn helsti sérfræð-
ingur landsins í hvalarannsóknum. Þorvaldur
vann einnig um árabil hjá Alþingi og Reikni-
stofnun Háskóla Íslands.
Í tilefni dagsins verður haldin veisla á kaffi-
húsinu Dal í Laugardalnum í dag klukkan 17.
70 ára
60 ára Stefán er
Hafnfirðingur, vél-
fræðingur að mennt
og er vélfræðingur
hjá HS orku.
Maki: Katrín
Hrafnsdóttir, f.
1959, ritari hjá
Sýslumanninum á höfuðborgarsvæð-
inu.
Börn: Margrét Helga, f. 1988, Andri
Már, f. 1989, og Snorri Már, f. 1992.
Barnabörnin eru orðin fimm.
Foreldrar: Sigurður Bergsson, f.
1930, d. 2011, vélfræðingur og starf-
aði á Keflavíkurflugvelli, og Soffía
Stefánsdóttir, f. 1937, fyrrverandi rit-
ari hjá sýslumanninum í Hafnarfirði,
búsett í Hafnarfirði.
Stefán Þór
Sigurðsson
Til hamingju með daginn