Morgunblaðið - 16.07.2020, Side 64
Útsala
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - Sunnudaga 12-18
2. júlí - 10. ágúst
CLEVELAND SÓFI. 3ja sæta. Dökkgrátt velúr áklæði. Krómfætur.
L208 cm. 99.900 kr.NÚ 69.930 kr. SPARAÐU 29.970 kr.
RIA SÓFI. 2ja sæta. Vic copper velúr áklæði.
L152 cm. 89.900 kr.NÚ 67.900 kr. SPARAÐU 22.000 kr.
SQUARE SÓFABORÐ.
Svartur steinn. 40x40 cm. 19.900 kr.
NÚ 13.900 kr. SPARAÐU 6.000 kr.
PRATO STÓLL. Brúnt PU leðurlíki.
29.900 kr.NÚ 19.900 kr.
SPARAÐU 10.000 kr.
MALLORCA SKÁPUR.
2x2 hurðir. 107x35x190 cm. 219.900 kr.
NÚ 152.900 kr. SPARAÐU 67.000 kr.
30%
33%
24%
Hið rómaða leikrit Ionescos, Nashyrningarnir, verður
jólasýning Þjóðleikhússins í ár. Benedikt Erlingsson
mun leikstýra verkinu, í uppfærslu sem sögð er verða
fersk og fjörug, og meðal leikara eru Guðjón Davíð
Karlsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Thors,
Edda Arnljótsdóttir og Pálmi Gestsson.
Nashyrningarnir er eitt þekktasta afsprengi absúrd-
leikhússins og hefur verið með vinsælustu evrópsku
leikhúsverkum, allt síðan það var frumsýnt árið 1959
en hér á landi var það fyrst sýnt í Þjóðleikhúsinu 1961.
Nashyrningarnir í leikstjórn Bene-
dikts jólasýning Þjóðleikhússins
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 198. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfuknatt-
leik, hefur samið við þýska A-deildarfélagið Fraport
Skyliners frá Frankfurt til eins árs. Jón hefur leikið með
háskólaliði Davidson í Bandaríkjunum undanfarin fjög-
ur ár og vakið athygli víðs vegar um Evrópu fyrir glæsi-
lega frammistöðu. Jón ráðfærði sig við Martin
Hermannsson, liðsfélaga sinn hjá landsliðinu, áður en
hann skrifaði undir við Fraport, en Martin hefur verið
einn besti leikmaður þýsku deildarinnar undanfarin tvö
ár með Alba Berlín. »57
Jón Axel búinn að semja við Fraport
Skyliners í þýsku A-deildinni
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Ég hef unnið hér í fimmtán ár og
þetta hefur aldrei verið svona áður,“
segir Sigríður Rósa Sigurðardóttir,
safnstýra Smámunasafnsins í Eyja-
fjarðarsveit, og á þá við aukinn fjölda
gesta sem heimsótt hafa safnið í
sumar.
„Covid hefur haft þessi jákvæðu
áhrif að miklu fleiri gestir heimsækja
nú safnið en áður. Þetta eru allt Ís-
lendingar, sem er líka óvenjulegt, að-
eins einn útlendingur hefur komið
hingað frá því í vor og hann kom með
Íslendingum,“ segir Sigríður Rósa og
bætir við að þau haldi skrá yfir hversu
margir koma og hverrar þjóðar þeir
eru. Þjóðverjar, Hollendingar og
Bandaríkjamenn hafa verið fjölmenn-
astir meðal erlendu gestanna.
„Núna er opið aðeins í fjóra tíma á
dag, frá eitt til fimm, en í dag komu 65
manns á safnið og 26 voru í vöfflu-
kaffi, sem er mjög gott. Yfirleitt vor-
um við að fá sjö til fimmtán manns á
dag áður en covid skall á,“ segir Sig-
ríður Rósa og bætir við að þau bjóði
gestum upp á leiðsögn um safnið svo
fólk fái meira út úr heimsókninni.
„Ég held að það spili mest inn í
þessa aukningu gesta að nú eru miklu
fleiri Íslendingar að ferðast innan-
lands en áður af því þeir komast ekki
til útlanda. Eflaust hefur það líka
áhrif á að fólk geri sér ferð hingað að
við auglýsum meira en áður. Ég tek
eftir að gestir safnsins eru líka rólegri
en áður var, fólk kemur hingað og
staldrar við í klukkutíma eða meira og
er ekki að flýta sér. Fólk er meira í
því að njóta, sem er mesta breytingin
sem ég sé, en líka að flestir gestirnir
eru nýir, ekki fastakúnnar.“
Sigríður Rósa hefur verið að reyna
að sjá jákvæðu hliðarnar á covid í
stóra samhenginu.
„Ég hef verið mikið í sambandi við
fólk í útlöndum núna á þessum
óvenjulegu tímum og við erum rosa-
lega heppin hér á Íslandi miðað við
marga í öðrum löndum. Covid hefur
líka kennt okkur að við mannfólkið
þurfum að hægja aðeins á okkur, líka
við Íslendingar.“
Aldrei fleiri gestir
en nú á covid-sumri
Safnstýra Sigríður Rósa inni á Smámunasafninu í Eyjafirði.
Aðeins einn útlendingur komið á Smámunasafnið frá í vor
Smámunasafnið er í Sólgarði í Eyja-
fjarðarsveit og geymir hluti úr safni
Sverris Hermannssonar húsa-
smíðameistara. Hann safnaði öllu
milli himins og jarðar og er safnið í
senn minjasafn, landbúnaðarsafn,
verkfærasafn, búsáhaldasafn,
naglasafn, járnsmíðasafn, lyklasafn
og meira til. Sverrir fór aldrei leynt
með söfnunaráhuga sinn og í gegn-
um líf sitt og starf við að gera upp
gömul hús og kirkjur hafði hann
safnað allt að þúsund hlutum hvert
ár, í heil fimmtíu ár. Smámunasafn-
ið hefur þá sérstöðu að vera ekki
safn einhverra ákveðinna hluta
heldur allra mögulegra hluta.
Hversdagslegir hlutir eru þar mitt á
meðal afar óhefðbundinna hluta
(af: esveit.is/smamunasafnid).
„Þetta er safnið hans Sverris,
hlutir frá honum, en við höfum líka
tekið við nokkrum munum til varð-
veislu, ef það er eitthvað sérstakt
sem er ekki til hér og tengist beint í
sveitina,“ segir Sigríður Rósa og
bætir við að nú séu tveir prófess-
orar í safnafræði að skrifa bók um
safnið, Sigurjón B. Hafsteinsson við
HÍ og John Bodinger frá Bandaríkj-
unum.
Safnaði þúsund hlutum hvert ár
SVERRIR SAFNAÐI ÖLLU MILLI HIMINS OG JARÐAR
Morgunblaðið/GSH
Alls konar Það kennir ýmissa grasa
á safni Sverris Hermannssonar.