Morgunblaðið - 17.08.2020, Side 32

Morgunblaðið - 17.08.2020, Side 32
Tökur eru hafnar á kvikmyndinni Sumarljós og svo kemur nóttin, sem gerð er eftir samnefndri bók Jóns Kalmans Stefánssonar. Rithöfundurinn sjálfur mun í henni fara með „mýfluguhlutverk“, eins og hann orðar það sjálfur, þegar hann bregður sér í hlutverk leigubíl- stjóra. „Þetta er nógu lítið hlutverk til þess að það er öruggt að það skemmi ekki myndina,“ segir Jón Kal- man og hlær. Elfar Aðalsteins leikstýrir myndinni og skrifaði handritið. Jón Kalman leikur í kvikmynd MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 230. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Breiðablik er komið upp í annað sæti Pepsi Max-deildar karla í fótbolta eftir 4:2-sigur á Víkingi Reykjavík í Fossvogi í fjörlegum leik í gærkvöldi. Brynjólfur Will- umsson skoraði tvö mörk úr tveimur vítaspyrnum og þá fékk Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings og læri- sveinn hans Andri Barkarson báðir rautt spjald. Vals- menn eru með fimm stiga forskot á toppnum eftir sigur á KA á heimavelli, 1:0 og HK vann í fallslag gegn Fjölni í Kórnum, 3:1. Birnir Snær Ingason skoraði tvö mörk fyrir HK en hann er einmitt uppalinn hjá Fjölni. »28 Breiðablik í annað sæti eftir sigur á Víkingi í sex marka leik í Fossvogi ÍÞRÓTTIR MENNING ... stærsti uppskriftarvefur landsins! Markmiðið sé að mannvirkin falli vel inn í landslagið. „Það er ekki verið að gera mikið af stórum og klossalegum mann- virkjum sem stinga í augun. Það er rás opnuð fyrir stíg og síðan er stíg- urinn settur ofan í landið og gróð- urinn síðan lagður aftur,“ útskýrir Pétur, en hann segir að slíkir vegir veki mikla hrifningu ferðamanna. „Ef fólk upplifir að það sé í nátt- úrunni þá er markmiðinu náð,“ segir Pétur Halldórsson, kynningarstjóri Skógræktar- innar, í samtali við Morg- unblaðið. Vinna við stígagerð og viðhald í Þórs- mörk hefur geng- ið vel í sumar, en í ár eru 100 ár liðin frá því Skógrækt- in tók svæðið yfir. Pétur segir að Þórsmörk hafi lengi verið mjög vinsælt ferða- mannasvæði og langt sé síðan þurfti að endurnýja stíga og önnur mann- virki. „Það er náttúrulega hægt að tala um kraftaverk, að allur þessi aukni ferðamannastraumur undanfarin ár skuli ekki hafa spillt svæðinu,“ segir Pétur. „Það er kannski ákveðinn gæðastimpill á þessa stígagerð sem hefur verið þarna í gangi.“ Skógræktin til hund- rað ára í Þórsmörk  Markmið að mannvirki falli vel inn í náttúru og landslag Ljósmynd/Charles J. Goemans Ein öld Hundrað ár eru líðin síðan Skógræktin tók yfir Þórsmörk. Þá afsöluðu bændur á svæðinu sér beitarrétti. Ljósmynd/Nicolas Talou Mannvirki Viðhald vega og annarra mannvirkja hefur gengið vel í sumar. Pétur Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.