Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Blaðsíða 24
Súpufélagið, sem heitir á enskuThe Soup Company, var opn-að árið 2017. „Þá vorum við í gömlum rússneskum hergámi. Við keyrðum fyrsta sumarið á súpum í götumálum,“ segir Daníel, en hann átti hugmyndina og dró síðar móð- ur sína, Margréti Reynisdóttur, með í ævintýrið. Seinna meir bauðst þeim stórt og gott húsnæði og reiða þau fram dýrindis súpur fyrir gesti og gangandi við góðan orðstír. „Svo kom systir mín inn í þetta í fyrra, en hún hafði búið í Úganda að vinna að kynheilsu kvenna. Þannig að nú erum við þrjú hér.“ Frá Stokkhólmi til Víkur Systkinin eru alin upp í Hafnarfirði en eiga ættir að rekja til Víkur. „Mamma er héðan. Afi og amma bjuggu hér og afi er hér enn, auk stórfjölskyldunnar. Við eyddum öll- um sumrum okkar hér sem börn. Við vildum koma aftur hingað því það vantaði svona stað hér og hér er gott að búa. Ég átti ekki endi- lega von á því mér myndi líða svona vel hér. Ég hef búið í miðri stór- borg, Stokkhólmi, í átta ár. Það er ansi ólíkt Vík. Ég er fluttur hingað en kærastinn minn býr enn þá úti þannig að við erum í fjarbúð og ég fer reglulega út til hans,“ segir Daníel, sem margir þekkja úr tón- listarheiminum. Daníel er enn að semja og segist mest semja popp, J-popp (japanska popptónlist) og K-popp, (kóreska popptónlist). „Ég er ennþá í tónlist og er með stúdíó í Stokkhólmi og er að vinna með fólki þar. Ég fer oft út og vinn þar í tónlist, og kem svo hingað og geri súpur,“segir hann og brosir. „Ég lifi tvöföldu lífi,“ segir hann og hlær. Ertu búinn að fórna tónlistarferli fyrir súpugerð? „Nei, ég held ekki. Mig hefur alltaf langað til að gera tónlist en aldrei lang- að til að vera í fullri vinnu við að syngja hér og þar. Mér finnst skemmtilegra að vera í stúdíói og semja en að koma fram og flytja. Þetta er fínt eins og þetta er núna, þó að tónlistin mætti leika stærra hlutverk í lífinu.“ Eldheit súpa í brauðskál Daníel segist lengi hafa haft áhuga á matreiðslu, og ekki síst að búa til góðar súpur. Hann fór í kokkanám fyrir allmörgum árum. „Ég fór í grunnnám og á samning en hætti svo og fór meira út í tónlist. En mér hefur alltaf þótt gaman að elda og keypti ég mér mína fyrstu matreiðsluvél tólf ára. Mamma er líka mjög góður kokkur og þegar við stóðum bæði á tímamótum, og þurft- um tilbreytingu, slógum við til. Það hefur gengið svakalega vel frá byrj- un,“ segir hann. „Í byrjun elduðum við tvo, þrjá stóra potta af súpu og lokuðum svo bara þegar allt kláraðist. Svo bauðst okkur gott húsnæði þar sem við er- um núna ásamt hraunsýningunni The Icelandic Lava Show. Við erum með súpur, salöt og samlokur og svo fullt af kökum sem við bökum sjálf,“ segir Daníel. „Vinsælust er „Red hot lava“- súpan, en hún kemur í svartri brauð- skál. Þetta er hægelduð og sterk nautagúllassúpa.“ Fræðsla um blæðingar Friðsemd hefur haft í nógu að snú- ast en gefur sér tíma til að setjast niður með blaðamanni. „Líf hennar er mun áhugaverðara en mitt!“ segir Daníel brosandi, áður en hann stekkur inn í eldhús. „Ég var í Úganda þegar mamma og Daníel stofnuðu Súpufélagið og kom því inn í þetta seinna,“ segir Friðsemd en hún sér um reksturinn og lætur móður sína og bróður um eldamennskuna. Hvað varstu að gera í Úganda? „Ég var fyrst í Hollandi í meist- aranámi í hnattrænni heilsu og gerði mastersverkefnið mitt í Úganda í litlum bæ við landamæri Rúanda og Kongó. Svo eftir að ég kláraði námið mitt fór ég aftur út og vann þá hjá hjálparsamtökunum WoMena, en þau vinna að kyn- og frjósemisheilsu með áherslu á að hjálpa konum að takast á við blæðingar. Við þetta vann ég í eitt og hálft ár og var verk- efnastjóri á fræðslusviði. Við fórum mikið inn í flóttamannabúðir og skóla og fleiri staði og töluðum við konur, karla og krakka um blæðingar. Þetta er svolítið tabú þarna og nánast eng- in fræðsla um blæðingar,“ segir hún. „Við kynntum konum álfabikarinn þarna, sem var þeim mjög framandi. Það er svo erfitt aðgengi að dömu- bindum þarna og því frábært fyrir þessar konur að nota álfabikar. Þetta var svo mikið ævintýri og svo gaman að kynnast þessum konum í flóttamannabúðum og geta að minnsta kosti létt á þessum vanda- málum hjá þeim.“ Auk þess að vera hjá WoMena vann Friðsemd í sjálfboðavinnu fyrir CLF, íslensk samtök sem reka skóla í Úganda fyrir stúlkur sem koma úr erfiðum aðstæðum. Í dag er hún for- maður CLF á Íslandi. „Það gefur mér mikið að geta enn lagt mitt af mörkum þó ég búi ekki úti eins og er.“ Úr hjálparstarfi í súpurnar Hvernig er að búa í Úganda? „Mér finnst það æðislegt. Það hefur auðvitað sína kosti og galla en það er eitthvað við þetta land sem dregur mig alltaf aftur þangað. Fólkið er svo opið og gestrisið,“ segir Friðsemd og segist hafa búið bæði í höfuðborginni Kampala sem og í litla bænum Kisoro. Friðsemd kynntist kærasta sínum og barnsföður í Kisoro, en hann er frá Úganda. Von er á honum innan tíðar til Víkur. „Strákurinn okkar er eins og hálfs árs og það hefur tekið sinn tíma að fá öll gögn til þess að hann mætti koma hingað. Svo hefur Covid hægt á öllu,“ segir Friðsemd og útskýrir að hann sé leiðsögumaður en sé einnig með sín eigin hjálparsamtök í Kisoro. „Við ætlum að búa hér í Vík; þetta er vissulega stórt skref. Ég hef sagt honum að þetta sé svolítið svipað og í bænum Kisoro, lítið samfélag með fjöll í kring,“ segir hún og hlær. „Hann ætlar að vinna hér hjá okk- ur. Við förum því bæði úr hjálpar- starfi í súpurnar.“ Tvöfalt líf systkina Systkinin Daníel Oliver og Kristrún Friðsemd Sveinsbörn búa og starfa í Vík í Mýrdal þar sem þau reka Súpufélagið. Daníel flutti þangað frá Stokkhólmi og Friðsemd alla leið frá Kampala í Úganda. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2020 LÍFSSTÍLL Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is • Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun • Tilbúið til matreiðslu á 3-5 mínútum • Afkastamikið og öflugt • Mjög góð hitastýring á kolum • Ytra byrði hitnar ekki • Færanlegt á meðan það er í notkun • Innra byrði má fara í uppþvottavél • Taska fylgir • Mikið úrval aukahluta STÓRSNIÐUGT GRILL Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á FASTUS.IS/LOTUSGRILL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.