Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Blaðsíða 19
Ilmurinn er þróaður svo konur geti veriðseiðandi á nóttunni. Að þróa ilm sem ein-ungis ætti að notast uppi í rúmi hljómar ekki svo fjarstæðukennt ef tekið er mið af því að nú eiga konur að elska sig sjálfar skilyrð- islaust öllum stundum. Konur sem þrá gæði og góða drauma velja sér fallega liti á veggina inni í herbergjunum sínum. Þær sofa í þægilegum silkináttkjólum og vilja einungis það besta þegar kemur að rúmfatnaði. Að sjálfsögðu vilja þær ilma á ein- stakan hátt uppi í rúmi líka. Fyrst fyrir sig sjálfar og síðan fyrir aðra. Grunntónn ilmvatnsins er mjög mildur sem er snjöll leið til að hafa ekki áhrif á djúpa svefninn. Rétt áður en djúpa svefninum er náð tekur rósailmurinn og jasmín við sem gerir möguleikana á áhugaverðum draumum betri. Ferski tónninn sem finnst um leið og ilmurinn er settur á líkamann minnir á að hver nótt get- ur verið einstök. Chanel Leau Privée Unsplash/Andreea Maria Seiðandi á nóttunni með Coco Chanel Það ættu allar konur að hugleiða hugmyndina á bak við nýja ilminn Coco Mademoiselle L’eau Privée. Ilmurinn er þróaður af Olilvier Polge og er léttur blómailmur með musk-tón og jasmín. Elínrós Líndal elinros@mbl.is Hefur þú próf- að að sofa með ilmvatn? 30.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Óhætt er að segja að haustlína Dior sé brakandi fersk og fær íhaldssam-asta fólk til að langa til að mála augnlokin og svæðið í kringum augun íbjörtum litum. Flaggskipið í haustlínu Dior er án efa nýju litapallett- urnar, 5 Couleurs Couture, sem státa af fimm litum hver. Einkenni litanna er að þeir passa vel saman og eru sérlega fallegir þegar þeir eru komn- ir á augnlokið. Ef fólk er lipurt með pensilinn má blanda þessum fimm tónum á augnlokið, en svo má líka bara bera á sig einn lit í einu. Litapallettan 279 Denim í 5 Couleurs Couture línunni minnir óneitanlega á tískuna í kringum 1979 þegar konur báru indjána- mold á kinnarnar og máluðu augun með sanseruðum bláum tón- um. Kosturinn við þessa litapallettu er að hún hentar fyrir flesta augnliti. Fallegt er að bera efri litinn í vinstra horni yfir augnlok- ið, setja litinn við hliðina á í augnkrókinn og blanda þessu vel saman. Til að skerpa á lagi augnanna má nota dekkri litina við ytri augnkrókinn. Til að við verðum ekki eins og pandabirnir er gott að nota tígulinn í miðjunni til að blanda litina saman í átt að augabrúnunum. En hvað gerir fólk þegar það er komið með fallega máluð blá augu? Það setur vatnsheldan blýant inn í vatnslínu augnanna en það voru einmitt að koma fantaflottir litir í línunni Diorshow 24H Stylo. Fólk sem vill láta litinn endast allan daginn og jafnvel nóttina ætti að prófa þessa liti en það er ekkert sem segir að augnblýanturinn þurfi að vera svartur. Hann má vera í litnum 466 Pearly Bronze til að búa til meira ævintýri eða 061 Matte Grey til að fá seiðandi augnaráð. Ef þú vilt taka 1979 alla leið þá er liturinn 296 Matte Blue mjög viðeigandi. Það að setja vatns- heldan augnblýant inn í vatnslínuna er eitt af bestu bjútíráðum allra tíma. Sér í lagi ef fólk hefur ekki tíma til að farða sig mjög mikið, þá má nota vatnshelda augnblýantinn með maskara. Talandi um maskara … Það verður engin augnförðun upp á tíu nema vera með góðan maskara. Í haustlínu Dior eru tveir framúrskarandi maskarar. Annarsvegar Diorshow Iconic Overcurl í svörtum lit (090) eða lit- urinn (074) með silfurglimmeri. Þessir maskarar þykkja augn- hárin og gefa þeim ríkulega fyllingu og sveigja augnhárin um leið. Þegar þetta er allt saman klárt þá þarftu bara að setja í þig spólupermanent og þá værir þú klár í ljósagólfið í Hollywood sem var einn vinsælasti skemmtistaðurinn í Reykjavík fyrir um 40 árum. Eini bömmerinn er að það er búið að loka Hollywood annars hefði þessi förðun smellpassað þar! Árið 2020 setur þú á þig hatt og grímu til að vera flottust! Hér má sjá litapalletturnar fjórar. Hér er vatnsheldi blýanturinn settur í kringum augum til að búa til stemningu fyrri ára. Hér sést hvernig má leika sér með litina 279 Denim pallettunni á fallegan hátt. Hér má sjá litapallettuna 279 Denim í augnskuggalínunni 5 Cou- leurs Couture frá Dior. Með á myndinni er maskarinn Diorshow Iconic Overcurl. Diorshow Iconic Overcurl maskarinn gerir gæfumuninn. Haustlína Dior kallar fram ævintýri fyrri tíma Tískuheimurinn iðar alltaf af lífi og fjöri á haustin. Þá koma nýjar litasamsetningar í fatnaði og förðun. Fólk sem þráir ferskan andvara inn í líf sitt spennist allt upp. Marta María mm@mbl.is Hér er verið að vinna með litapallettuna 079 Black Bow frá Dior.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.