Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Síða 19
Ilmurinn er þróaður svo konur geti veriðseiðandi á nóttunni. Að þróa ilm sem ein-ungis ætti að notast uppi í rúmi hljómar
ekki svo fjarstæðukennt ef tekið er mið af því
að nú eiga konur að elska sig sjálfar skilyrð-
islaust öllum stundum.
Konur sem þrá gæði og góða drauma velja
sér fallega liti á veggina inni í herbergjunum
sínum. Þær sofa í þægilegum silkináttkjólum
og vilja einungis það besta þegar kemur að
rúmfatnaði. Að sjálfsögðu vilja þær ilma á ein-
stakan hátt uppi í rúmi líka. Fyrst fyrir sig
sjálfar og síðan fyrir aðra.
Grunntónn ilmvatnsins er mjög mildur sem
er snjöll leið til að hafa ekki áhrif á djúpa
svefninn. Rétt áður en djúpa svefninum er náð
tekur rósailmurinn og jasmín við sem gerir
möguleikana á áhugaverðum draumum betri.
Ferski tónninn sem finnst um leið og ilmurinn
er settur á líkamann minnir á að hver nótt get-
ur verið einstök.
Chanel Leau
Privée
Unsplash/Andreea Maria
Seiðandi á nóttunni með Coco Chanel
Það ættu allar konur að hugleiða hugmyndina á bak við nýja
ilminn Coco Mademoiselle L’eau Privée. Ilmurinn er þróaður af
Olilvier Polge og er léttur blómailmur með musk-tón og jasmín.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Hefur þú próf-
að að sofa
með ilmvatn?
30.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Óhætt er að segja að haustlína Dior sé brakandi fersk og fær íhaldssam-asta fólk til að langa til að mála augnlokin og svæðið í kringum augun íbjörtum litum. Flaggskipið í haustlínu Dior er án efa nýju litapallett-
urnar, 5 Couleurs Couture, sem státa af fimm litum hver. Einkenni litanna er að
þeir passa vel saman og eru sérlega fallegir þegar þeir eru komn-
ir á augnlokið. Ef fólk er lipurt með pensilinn má blanda þessum
fimm tónum á augnlokið, en svo má líka bara bera á sig einn lit í
einu.
Litapallettan 279 Denim í 5 Couleurs Couture línunni minnir
óneitanlega á tískuna í kringum 1979 þegar konur báru indjána-
mold á kinnarnar og máluðu augun með sanseruðum bláum tón-
um. Kosturinn við þessa litapallettu er að hún hentar fyrir flesta
augnliti. Fallegt er að bera efri litinn í vinstra horni yfir augnlok-
ið, setja litinn við hliðina á í augnkrókinn og blanda þessu vel
saman. Til að skerpa á lagi augnanna má nota dekkri litina við
ytri augnkrókinn. Til að við verðum ekki eins og pandabirnir er
gott að nota tígulinn í miðjunni til að blanda litina saman í átt að
augabrúnunum.
En hvað gerir fólk þegar það er komið með fallega máluð blá
augu? Það setur vatnsheldan blýant inn í vatnslínu augnanna en
það voru einmitt að koma fantaflottir litir í línunni Diorshow 24H
Stylo. Fólk sem vill láta litinn endast allan daginn og jafnvel
nóttina ætti að prófa þessa liti en það er ekkert sem segir að
augnblýanturinn þurfi að vera svartur. Hann má vera í litnum
466 Pearly Bronze til að búa til meira ævintýri eða 061 Matte
Grey til að fá seiðandi augnaráð. Ef þú vilt taka 1979 alla leið þá
er liturinn 296 Matte Blue mjög viðeigandi. Það að setja vatns-
heldan augnblýant inn í vatnslínuna er eitt af bestu bjútíráðum
allra tíma. Sér í lagi ef fólk hefur ekki tíma til að farða sig mjög
mikið, þá má nota vatnshelda augnblýantinn með maskara.
Talandi um maskara …
Það verður engin augnförðun upp á tíu nema vera með góðan
maskara. Í haustlínu Dior eru tveir framúrskarandi maskarar.
Annarsvegar Diorshow Iconic Overcurl í svörtum lit (090) eða lit-
urinn (074) með silfurglimmeri. Þessir maskarar þykkja augn-
hárin og gefa þeim ríkulega fyllingu og sveigja augnhárin um
leið.
Þegar þetta er allt saman klárt þá þarftu bara að setja í þig
spólupermanent og þá værir þú klár í ljósagólfið í Hollywood
sem var einn vinsælasti skemmtistaðurinn í Reykjavík fyrir um
40 árum.
Eini bömmerinn er að það er búið að loka Hollywood annars
hefði þessi förðun smellpassað þar! Árið 2020 setur þú á þig hatt
og grímu til að vera flottust! Hér má sjá litapalletturnar fjórar.
Hér er vatnsheldi blýanturinn
settur í kringum augum til að
búa til stemningu fyrri ára.
Hér sést hvernig má leika sér með litina
279 Denim pallettunni á fallegan hátt.
Hér má sjá litapallettuna 279 Denim í augnskuggalínunni 5 Cou-
leurs Couture frá Dior. Með á myndinni er maskarinn Diorshow
Iconic Overcurl.
Diorshow Iconic Overcurl
maskarinn gerir gæfumuninn.
Haustlína Dior kallar
fram ævintýri fyrri tíma
Tískuheimurinn iðar alltaf af lífi og fjöri á haustin. Þá koma
nýjar litasamsetningar í fatnaði og förðun. Fólk sem þráir
ferskan andvara inn í líf sitt spennist allt upp.
Marta María mm@mbl.is
Hér er verið að vinna
með litapallettuna 079
Black Bow frá Dior.