Morgunblaðið - 02.09.2020, Side 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2020
50 ára Óðinn ólst upp í
Reykjavík til 12 ára ald-
urs en býr í Stykk-
ishólmi. Hann er
sjúkraflutningamaður
hjá Heilbrigðisstofnun
Vesturlands í Stykk-
ishólmi og sjálfstætt
starfandi kerfisfræðingur.
Maki: Rhiannon Mary Helgason, f. 1990,
viðskiptamarkþjálfi.
Börn: Brimrún Eir, f. 2001, Jósúa Helgi,
f. 2016, og Eva Rós, f. 2019.
Foreldrar: Helgi Eiríkur Kristjánsson, f.
1946, d. 2016, tónlistarmaður, og Brim-
rún Vilbergsdóttir, f. 1947, sjúkraliði, bú-
sett á Akranesi.
Óðinn Burkni
Helgason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Eitthvert mál, sem þú hélst að þú
værir búinn að leysa, vaknar upp aftur og
heimtar afskipti þín. Gættu þess að missa
ekki sjónar á því.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er enginn eldri en honum finnst
hann vera. Taki menn höndum saman má
ná ótrúlegum árangri. Nákominn ættingi
þarf á stuðningi þínum að halda.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gefðu þér tíma til að stofna til
nýrra kynna sem og að rækta samböndin
við gömlu félagana. Innra með þér er
fögnuður, sem best er að miðla líkamlega
og deila opinberlega.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þrá þín til þess að leggjast í ferða-
lög fer vaxandi um þessar mundir. Heim-
boðunum mun hreinlega rigna yfir þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gagnrýni á að vera mild. En þegar
upp er staðið ert það þú sem þarft að
vega og meta hvað þér er fyrir bestu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það eru ýmsar nýjungar að banka
upp á hjá þér og þér finnst erfitt að sinna
þeim öllum í einu. Hver er sinnar gæfu
smiður.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það verður sífellt erfiðara að fela til-
finningar þínar. Mundu bara að gera allt
hreint fyrir þínum dyrum áður en þú held-
ur áfram.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gefur góðgerðar-
samtökum eigur þínar eða fjármuni í dag.
Gerðu það sem í þínu valdi stendur til að
þetta verði þér til framdráttar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Forðastu deilur og frestaðu
því að ræða erfið málefni. Reynslan segir
þér eitt en Pollýannan innra með þér segir
annað.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur unnið vel undanfarið
þótt þú eigir erfitt með einbeitinguna.
Næmi og þægilegheit eru kostir sem allir
virða í fari þínu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Innibyrgð spenna í fjölskyld-
unni gæti fengið útrás í dag. Vertu opin/n
fyrir því fólki og þeim tækifærum sem
koma inn í líf þitt á næstunni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú mátt ekki halda svo aftur af þér
að þér verði ekkert úr verki. Skoðaðu sam-
band þitt við eigur þínar.
besta samrýmist svo mörgu í störfum
hjúkrunarfræðinga sem sýna þjónandi
forystu í heilbrigðiskerfinu.“
Yngsti sonur minn, Kjartan, er
fæddur með Down’s-heilkenni. Það
hefur auðvitað mótað mín fullorðinsár
að eignast fatlað barn því það eru
margar áskoranir því tengdar. Því
fylgdi að ég gat ekki í nokkur ár verið
eins virk í atvinnulífinu og ég hefði ella
verið. Umönnun Kjartans hefur alltaf
verið forgangsmál hjá mér. Eftir að
Kjartan stálpaðist fór ég að vinna hjá
hjúkrunarheimilinu Eir. Samtals urðu
árin hjá Eir 15, þar af þrjú ár sem
deildarstjóri dagdeildar heilabilaðra
og sjö ár sem staðarhaldari öryggis-
íbúða Eirar í Spönginni eins og vinur
minn heitinn sr. Sigurður Helgi Guð-
mundsson forstjóri Eirar kallaði starf-
ið með réttu. Á Eir unnu á þeim tíma
báðir eldri synir mínir mörg sumur,
annar sem starfsmaður í umönnun,
hinn í þjónustu og viðhaldi, og ég held
að sú starfsreynsla með öldruðum hafi
gert þá báða að betri mönnum.“
Árið 2014 fór Ragnheiður í MPM-
nám í HR og lauk því 2016. „Ég var
elst í hópnum og naut hvers dags og
frá 2017 hef ég starfað í hlutastarfi á
endurhæfingar- og útskriftardeildinni
á Landakoti. Samhliða stofnaði ég ráð-
gjafarfyrirtækið Efri ár, sem veitir
Ragnheiður á Snæfellsnesi, fyrst í
Grundarfirði og svo í Stykkishólmi,
ásamt fjölskyldu sinni. „Á þeim árum
tengdist ég Morgunblaðinu órjúfan-
legum böndum sem fréttaritari í
Grundarfirði og svo lausapenni til
margra ára.“ Hluta þess tíma sem
Ragnheiður bjó á Snæfellsnesi gegndi
hún stöðu hjúkrunarforstjóra á heilsu-
gæslunni í Stykkishólmi. Þá var
sjúkrahúsið enn rekið af nunnum St.
Fransiskusreglunnar. „Kynnin af
systrunum voru mér mjög dýrmæt, sú
lífssýn þeirra að þjóna og gera sitt
R
agnheiður Gunnarsdóttir
fæddist 2. september
1960 í Reykjavík. Hún
ólst upp í Vestur-
bænum, á Seltjarnar-
nesi og síðar í Laugarneshverfi. „Fað-
ir minn varð bráðkvaddur í september
1970, ég var þá nýorðin 10 ára. Við það
urðu afdrifaríkar breytingar á högum
mömmu og okkar systranna. Sumarið
eftir var ég send í sveit norður í
Skagafjörð, en ég var mjög heppin,
fjölskyldan á Starrastöðum var ein-
stakt fólk og næsta sumar gat ég ekki
beðið eftir að komast aftur til þeirra.
Þegar ég kom aftur í bæinn eftir fyrra
sumarið vorum við mæðgur fluttar í
Laugarnesið, fljótlega eignaðist
mamma nýja mann og í honum eign-
aðist ég mjög góðan stjúpa.
Rúmu ári eftir að pabbi dó andaðist
föðuramma mín Kristjana Blöndahl
kaupmaður. Við höfðum verið nánar,
en hún bjó á Sóleyjargötu 29 ásamt
Göggu sem var vinnustúlka hjá henni í
40 ár og ég heiti í höfuðið á. Gagga,
sem hét Ragnheiður, flutti á heimili
mömmu minnar og stjúpa eftir að
amma dó. Andlát ömmu var annað
þungt högg á stuttum tíma, missir hef-
ur sjálfsagt mótað mig mikið. En sorg
barna var ekki mikill gaumur gefinn á
þeim árum. Það er sem betur fer að
breytast.“
Ragnheiður gekk í Laugarnesskóla,
lauk stúdentsprófi frá MR 1980 og
sumarvinnan á menntaskólaárunum
var í kirkjugarðinum í Fossvogi þar
sem hún var flokksstjóri. Sumarið fyr-
ir stúdentspróf var hún í París sem au
pair hjá franskri fjölskyldu og sótti
frönskunámskeið hjá Alliance fran-
caise. Leiðin lá svo í hjúkrunar-
fræðideild HÍ eftir stutt stopp í
sjúkraþjálfun sem henni líkaði ekki
við.
„Að námi loknu fór ég ekki að
stunda hjúkrun heldur fékk ég starf
hjá Einari Birni lyfjaheildsala. Það var
góður skóli og gaman að kynnast Ein-
ari. Hann spurði mig hvað ég vildi fá í
laun. Ég sagðist vilja hærri laun en
byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga, sem
voru þá rétt liðlega 20 þús. kr. Hann
spurði hvernig mér litist á tvöföld þau
laun. Ég að sjálfsögðu var mjög
ánægð með það.“ Í rúman áratug bjó
eldri borgurum og/eða aðstandendum
þeirra ráðgjöf og upplýsingar. Ráðgjöf
um hvernig megi undirbúa efri árin
sem best, hvernig styðja megi aldraða
fjölskyldumeðlimi til að halda sínu
sjálfstæði. Síðast en ekki síst upplýs-
ingar um hvaða úrræði og lausnir eru í
boði ríkis og sveitarfélaga og hvað
hægt er að kaupa til viðbótar af einka-
fyrirtækjum á heilbrigðissviði. Þörfin
fyrir slíka ráðgjöf er mikil og á eftir að
fara vaxandi.“
Ragnheiður hefur gegnt fjölmörg-
um trúnaðarstörfum. Hún var um
skeið í stjórn Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga, þ.á m. varaformaður,
einnig setið í nefndum fyrir hjúkr-
unarfræðinga. Hún var í sex ár í stjórn
Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga og
formaður stjórnarinnar um tíma. Þá
var Ragnheiður formaður Félags
áhugafólks um Down’s-heilkenni, sat í
ferlinefnd Reykjavíkurborgar, í
stjórnum heilsugæslustöðvarinnar í
Grundarfirði og í stjórn ST Frans-
iskusspítalans í Stykkishólmi og í
stjórn Ljósmyndasafns Jóhanns
Rafnssonar í Stykkishólmi.
„Efst á listanum yfir áhugamál mín
er að fá að fylgjast með lífi sona minna
á hliðarlínunni, fá að hvetja þá og
styðja í leik og starfi og vera þátttak-
andi þegar þeir vilja. Mig langar líka
að sjá meira af heiminum, þar er saf-
aríferð til Tansaníu eða Namibíu efst á
listanum sem og Ástralíuferð með
Kjartani, sem elskar ferðalög.“
Fjölskylda
Synir Ragnheiðar og fyrrverandi
eiginmanns hennar, Ólafs H. Sverr-
issonar viðskiptafræðings, eru: 1)
Gunnar Dofri, f. 13.4. 1988, lögfræð-
ingur, sérfræðingur í samskiptum og
samfélagsvirkni hjá Sorpu, býr í
Reykjavík. Sambýliskona hans er
Stella Rún Guðmundsdóttir lækna-
kandidat; 2) Sverrir Ingi, f. 21.2. 1993,
viðskiptastjóri hjá Öryggismiðstöð-
inni, býr í Garðabæ. Unnusta hans er
Bryndís Ósk Birgisdóttir, sjúkraliði og
BS í sálfræði. Dóttir þeirra er Heiðdís
María, f. 3.11. 2019; 3) Kjartan, f. 12.1.
1997, starfsmaður á vinnustofu
Styrktarfélagsins Áss, býr í Reykja-
vík.
Systir Ragnheiðar er Jóhanna
Ragnheiður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur – 60 ára
Mæðginin Ragnheiður og synirnir Kjartan, Sverrir Ingi og Gunnar Dofri.
Veitir ráðgjöf um efri árin
Vinnufélagarnir Ragnheiður og
séra Bjarni Karlsson.
Garðabær. Heiðdís María
Sverrisdóttir fæddist 3.
nóvember 2019 á Land-
spítala. Hún vó 3.045 g
og var 50 cm á lengd.
Foreldrar hennar eru
Bryndís Ósk Birgisdóttir
og Sverrir Ingi Ólafsson.
Nýr borgari
40 ára Heimir er
Akureyringur og býr
þar. Hann er söng-
kennari í Tónlistar-
skólanum á Akureyri
og er í hljómsveitinni
Volta.
Maki: Anna Rósa
Friðriksdóttir, f. 1981, grunnskólakennari
í Þelamerkurskóla.
Börn: Breki Ingimar Chang, f. 2013, og
fósturbörnin eru tvíburarnir Alda Karen
og Unnur Arna, f. 2017.
Foreldrar: Kristín Svavarsdóttir, f.
1947, fyrrverandi matráður, búsett á
Akureyri, og Ingimar Harðarson, f.
1946, d. 2012, kjötiðnaðarmaður.
Heimir Bjarni
Ingimarsson
Til hamingju með daginn
SÉRSMÍÐI
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins.
Þú kemur með hugmyndina og við
látum hana verða að veruleika með
vandaðri sérsmíði og flottri hönnun.