Morgunblaðið - 02.09.2020, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2020
12. UMFERÐ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Við erum mjög ánægðar. Við höfum
lagt mikið á okkur í sumar og það var
gott að geta loksins fagnað. Þetta var
risastór sigur fyrir okkur og eitthvað
sem við þurftum á að halda,“ sagði
kát Stephanie Ribeiro í samtali við
Morgunblaðið. Ribeiro skoraði sigur-
mark Þróttar í óvæntum 2:1-sigri á
Fylki á heimavelli í 12. umferð Pepsi
Max-deildarinnar og fékk 2 M fyrir
frammistöðu sína í leiknum. Var að-
eins um annan sigur Þróttar í sumar
að ræða, þrátt fyrir heilt yfir fína
spilamennsku í sumar. Með sigrinum
fóru nýliðarnir upp fyrir KR og upp
úr fallsæti.
„Við héldum áfram allan tímann og
gáfumst ekki upp. Við reyndum eins
og við gátum að pressa á þær og við
leyfðum þeim ekki að hafa boltann og
stjórna leiknum. Við náðum svo að
sækja mikið og vorum stórhættu-
legar fram á við. Við fengum á okkur
mark, en við héldum áfram, skor-
uðum tvö mörk og héldum út. Við
vörðumst virkilega vel og allir lögðu
sitt af mörkum til að sigla þessu
heim,“ sagði Ribeiro, en sigurmark
hennar kom á 42. mínútu. Guðrún
Karítas Sigurðardóttir kom Fylki yfir
á 14. mínútu og Ólöf Sigríður Krist-
insdóttir jafnaði á 38. mínútu.
Eiga meira skilið
Sóknarmaðurinn er ánægð með
frammistöðu Þróttar til þessa í sum-
ar, þótt sigrarnir til þessa hafi staðið á
sér. „Við höfum verið inni í öllum
leikjunum, sama hver andstæðing-
urinn er, en við höfum ekki alltaf náð í
úrslitin sem við eigum skilið. Það var
virkilega gott að ná öllum pakkanum
á laugardag; spila vel og ná í sigurinn.
Ég er klárlega ánægð með okkar
spilamennsku heilt yfir, en við viljum
meira. Við viljum halda þessu áfram
og ná í fleiri góð úrslit, sem við eigum
skilið. Við höfum nokkrum sinnum
hugsað til baka og verið ánægðar með
frammistöðuna þrátt fyrir að ná ekki
að vinna. Þegar upp er staðið skiptir
það hins vegar ekki máli ef þú vinnur
ekki.“
Ribeiro er 26 ára og lék hún með
Avaldsnes og Grand Bodø í Noregi
áður en leiðin lá til Íslands. Þar á und-
an var hún á mála hjá Seattle Reign í
bandarísku atvinnumannadeildinni
og þótti mjög efnileg eftir góð ár í
bandarísku háskóladeildinni með
University of Connecticut. Erfið
meiðsli hafa hins vegar sett strik í
reikninginn hjá þeirri bandarísku,
sem varð til þess að ferilinn fór ekki á
það flug sem hún vonaðist til.
Fékk ranga greiningu
„Ég spilaði með Avaldsnes á síð-
ustu leiktíð og undirbúningstímabilið
í Noregi er mjög langt og líkaminn á
mér réð ekki við álagið. Ég meiddist
illa í mjóbaki, fékk vitlausa greiningu
frá lækni og fékk svo ranga meðferð í
kjölfarið. Ég náði því ekki að jafna
mig á meiðslunum svo ég fór aftur til
Bandaríkjanna að lokum. Þegar ég
var hjá Seattle var ég svo að glíma við
erfið meiðsli í hné. Ég jafnaði mig á
meiðslunum og hér er ég nú og hér
líður mér vel. Þetta er í fyrsta skipti
síðan ég var í háskólanum sem ég er
alveg heil heilsu, en meira að segja
þar var ég stundum að glíma við
meiðsli. Núna líður mér mjög vel og
er alveg heil í fyrsta skipti síðan at-
vinnumannaferillinn byrjaði.“
Ribeiro, sem er uppalin í Banda-
ríkjunum en á brasilíska foreldra, hef-
ur verið einn besti leikmaður Þróttar
á tímabilinu og skorað sex mörk í tíu
deildarleikjum. Hún er ánægð með líf-
ið og tilveruna hjá Þrótti. Er hún ein
fjögurra erlendra leikmanna félagsins
en Morgan Goff og Mary Vignola frá
Bandaríkjunum og Laura Hughes
Ástralíu leika einnig með liðinu. Auk
þeirra er lið Þróttar að mestu skipað
ungum íslenskum leikmönnum og var
meðalaldurinn í byrjunarliðnu gegn
Fylki aðeins 19,7 ár.
Fullkomið veður í sumar
„Þetta er virkilega góð blanda og
ég elska þessar stelpur. Það er
virkilega gott að vera með aðrar
stelpur frá Bandaríkjunum hérna
og svo Lauru frá Ástralíu. Við
náum mjög vel saman og mér líður
eins og ég sé heima hjá mér. Ís-
lensku stelpurnar eru svo mjög við-
kunnanlegar og almennilegar. Þær
buðu mig velkomna um leið og ég
kom og mér líður vel. Við náum all-
ar virkilega vel saman bæði á vell-
inum og utan hans. Það var örlítið
erfitt að koma beint inn í tímabilið
og fá ekki undirbúningstímabil, en
við erum að gera vel,“ sagði Ribeiro
og viðurkenndi síðan að hún vissi
lítið um Ísland áður en hún kom til
landsins.
„Eina sem ég vissi um Ísland áður
en ég kom var að hér væri mjög kalt.
Ég kom seint til Íslands vegna Covid
og ég var ekki hérna í vetur. Sumarið
hefur verið fullkomið og veðrið full-
komið til að spila fótbolta. Það er
mjög fallegt hérna og ég get í hrein-
skilni sagt að ég elska að vera á Ís-
landi. Ég nýt þess virkilega. Fólkið
er æðislegt og ég hef ekki yfir neinu
að kvarta,“ sagði Ribeiro.
Eins og staðan er núna leikur
Þróttur síðasta leik sinn á tímabilinu
á útivelli gegn Þór/KA 17. október.
Gæti bandaríski framherjinn því
fundið fyrir íslensku vetrarveðri áður
en hún snýr aftur heim. „Vonandi
verður ekki oft kalt áður en ég fer
heim en ef svo verður þá sjáum við til
hvernig ég ræð við íslenskt vetrar-
veður,“ sagði Ribeiro ennfremur og
hló.
Gott að geta loksins fagnað
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Sigurmarkið Stephanie Ribeiro er í liði umferðarinnar eftir að hafa tryggt Þrótti sigurinn á Fylki.
Stephanie Ribeiro afar ánægð eftir óvæntan sigur Þróttar á Fylki Lék
áður í Noregi Finnur sig vel í leikmannahópi Þróttar Lið 12. umferðar birt
12. umferð
í Pepsi Max-deild kvenna 2020
3-5-2 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
Erin McLeod
Stjörnunni
Stephanie Ribeiro
Þrótti
Arna Sif Ásgrímsdóttir
Þór/KA
Anna Björk
Kristjánsdóttir
Selfossi
Hallbera Guðný Gísladóttir
Val
Elín Metta Jensen
Val
Dagný
Brynjarsdóttir
Selfossi
Shameeka
Fishley
Stjörnunni
Jasmín Erla
Ingadóttir
Stjörnunni
Andrea Rut
Bjarnadóttir
Þrótti
Maddy Gonzalez
FH
3
2
2
2
4
4
Íslandsmeistarar KR í knattspyrnu mæta eistnesku meist-
urunum í Flora frá Tallinn í 2. umferð undankeppni Evr-
ópudeildarinnar en leikurinn fer fram 17. september en dreg-
ið var í aðra umferðina í höfuðstöðvum UEFA í Nyon á
mánudag eins og fram kom í blaðinu í gær.
Í hádeginu í gær var svo dregið í 3. umferð undankeppn-
innar en takist KR að leggja Flora að velli í Eistlandi fer KR
annaðhvort til Norður-Írlands eða Möltu.
Sigurliðið úr leik KR og Flora mætir annaðhvort Linfield
frá Norður-Írlandi eða Floriana frá Möltu en sá leikur fer
fram 24. september.
Það yrði því þriðji útileikur KR í Evrópukeppninni á tíma-
bilinu en vegna kórónuveirufaraldursins er ekki leikið heima og heiman eins og
tíðkast hefur heldur er einungis spilaður einn leikur.
Sigurliðið úr 3. umferð undankeppninnar fer svo í umspil um laust sæti í riðla-
keppni Evrópudeildarinnar. bjarnih@mbl.is
Ljóst hvað gæti beðið KR
Rúnar
Kristinsson
Íslenska félagaskiptaglugganum í knattspyrnunni
var lokað á miðnætti í gærkvöldi og eru því öll fé-
lagaskipti nú óheimil, bæði innanlands og til landsins
Þó nokkrir leikmenn skiptu um lið á síðasta deginum.
Reynsluboltinn Málfríður Erna Sigurðardóttir
skipti úr Íslandsmeistaraliði Valsara yfir í Stjörnuna.
Varnarmaðurinn er 36 ára og á 207 leiki með Völs-
urum í efstu deild en þann fyrsta spilaði hún fyrir 20
árum. Hún hefur hins vegar ekki átt fast sæti í liðinu í
sumar.
Þá endurtóku Breiðablik og Víkingur úr Reykjavík
leikinn þegar Kwame Quee, landsliðsmaður Síerra
Leóne, fór til þess síðarnefnda að láni, rétt eins og um mitt tímabil í
fyrra. Hann hefur spilað tíu leiki fyrir Breiðablik í sumar en ekki skor-
að. Quee spilaði 12 leiki og skoraði fjögur mörk fyrir Víkinga í fyrra og
er nú aftur mættur í Fossvoginn.
Búið að loka glugganum
Málfríður Erna
Sigurðardóttir
2. deild karla
Þróttur V. – Njarðvík............................... 2:3
Kórdrengir – Kári .................................... 1:1
Staðan:
Kórdrengir 13 8 4 1 26:9 28
Selfoss 12 8 1 3 19:12 25
Haukar 12 8 0 4 25:16 24
Njarðvík 13 7 3 3 23:16 24
Þróttur V. 13 6 4 3 20:15 22
Fjarðabyggð 12 6 3 3 22:16 21
KF 12 6 1 5 22:22 19
Kári 13 4 4 5 20:17 16
Víðir 13 4 0 9 15:33 12
ÍR 12 3 1 8 20:24 10
Dalvík/Reynir 12 2 2 8 14:26 8
Völsungur 13 1 1 11 16:36 4
3. deild karla
Einherji – Höttur/Huginn ....................... 1:1
Reynir S. – Elliði ...................................... 1:4
Ægir – Sindri ............................................ 2:2
Tindastóll – Álftanes ................................ 3:2
Augnablik – Vængir Júpíters.................. 3:2
Staðan:
Reynir S. 13 9 2 2 41:23 29
KV 12 9 0 3 33:17 27
Augnablik 13 6 4 3 30:25 22
Tindastóll 13 5 5 3 25:27 20
KFG 12 5 3 4 25:22 18
Ægir 13 4 4 5 22:26 16
Sindri 13 4 4 5 25:32 16
Vængir Júpiters 13 4 3 6 17:21 15
Elliði 13 4 2 7 24:28 14
Einherji 13 4 2 7 21:32 14
Höttur/Huginn 13 3 3 7 20:24 12
Álftanes 13 2 4 7 22:28 10
2. deild kvenna
ÍR – HK..................................................... 1:4
Staðan:
HK 11 9 0 2 39:5 27
Grindavík 10 6 2 2 23:10 20
Fjarð/Hött/Leikn. 9 5 1 3 19:18 16
Hamrarnir 10 4 2 4 15:15 14
Álftanes 8 4 1 3 14:22 13
ÍR 11 2 4 5 22:27 10
Hamar 8 3 1 4 13:21 10
Sindri 9 2 0 7 12:22 6
Fram 10 1 3 6 18:35 6
Danmörk
Bikarkeppni, 1. umferð:
Glamsberg – Esbjerg .............................. 0:8
Andri Rúnar Bjarnason lék fyrstu 61
mínútuna fyrir Esbjerg og skoraði þrennu.
Ólafur H. Kristjánsson þjálfar liðið.
Sydvest – Fredericia ............................... 2:0
Elías Rafn Ólafsson var ekki í leik-
mannahópi Fredericia.
Slóvakía
Bikarkeppni, 2. umferð:
Kalinkovo – Senica.................................. 0:7
Nói Snæhólm Ólafsson lék fyrstu 71
mínútuna fyrir Senica.
KNATTSPYRNA
Danmörk
Meistarabikarinn:
Aalborg – GOG..................................... 37:31
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Viktor Gísli Hallgrímsson var í marki
GOG.
Aalborg er meistari meistaranna.
Ribe-Esbjerg – Tvis Holsterbro......... 32:37
Rúnar Kárason skoraði 4 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson 3 og
Daníel Þór Ingason ekkert.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 4 mörk
fyrir Tvis Holstebro.
Herning-Ikast –Aarhus United ..........30:18
Thea Imani Sturludóttir skoraði ekkert
fyrir Aarhus.
HANDBOLTI
NBA-deildin
Úrslitakeppnin, 2. umferð:
Milwaukee – Miami .......................... 104:115
Staðan er 1:0 fyrir Miami.
Úrslitakeppnin, 1. umferð:
Oklahoma –Houston .........................104:100
Staðan er 3:3.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Lengjudeild karla:
Grenivík: Magni – Afturelding.............17:30
Olísvöllurinn: Vestri – Þór....................17:30
Hásteinsvöllur: ÍBV – Leiknir R .........17:30
Nettóvöllurinn: Keflavík – Grindavík .17:30
Framvöllur: Fram – Víkingur Ó. .........19:15
Eimskipsv.: Þróttur R. – Leiknir F.....20:30
Lengjudeild kvenna:
Vivaldivöllurinn: Grótta – Víkingur R.19:15
2. deild karla:
Hertz-völlurinn: ÍR – Víðir...................17:30
Jáverks-völlurinn: Selfoss – Haukar...17:30
Eskjuvöllur: Fjarðab. – Völsungur .....17:30
Ólafsfjörður: KF – Dalvík/Reynir .......17:30
Í KVÖLD!