Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 207. tölublað 108. árgangur
EITTHVAÐ FYRIR ALLA Í NETTÓ!
Kalkúnabringur
1.559KR/KG
ÁÐUR: 2.599 KR/KG
Kalkúnasneiðar
1.793KR/KG
ÁÐUR: 3.039 KR/KG
Úrbeinaður
grísabógur
Í kryddsmjöri
1.150KR/KG
ÁÐUR: 2.299 KR/KG
-41%
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 3.—6. september
-50% -40%
NÝTT STARFSÁR
SINFÓNÍUNNAR
AÐ HEFJAST
EKKI Á
HEIMLEIÐ FRÁ
TENERIFE
ALLTAF MEÐ
HUGANN VIÐ
LÆKNANÁMIÐ
LÍF Í PARADÍS 18-20 FEHIMA LÍF 12FJÖLBREYTNI 58
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég neitaði að fara á gjörgæslu eða eitthvað
lengra,“ segir Steinar Friðgeirsson, 73 ára
verkfræðingur sem veiktist af kórónuveirunni
og þurfti að leggjast inn á sjúkrahús af hennar
völdum á dögunum. Við innlögn var hann með
víruslungnabólgu báðum megin sem og fullt af
smáum blóðtöppum í lungunum. Hann var
settur á blóðþynningarlyf, á víruslyfið Remde-
sivir og á sterka stera til að hjálpa ónæm-
iskerfi líkamans. Steinar
var sá síðasti sem legið hef-
ur á spítala í seinni bylgju
kórónuveirufaraldursins.
Fyrirsögnin að ofan vísar til
frétta af sjúkrahúsvist
Steinars, þegar daglega
kom fram að einn maður á
áttræðisaldri lægi inni á
spítala af völdum veir-
unnar.
Steinar ber sig vel í dag.
Hann losnaði úr einangrun í byrjun vikunnar
og bíður þess að Anna kona hans, sú eina sem
smitaðist af hans völdum, ljúki sinni ein-
angrun. Sem betur fer veiktist hún ekki eins
illa og Steinar sem lést hefur um tíu kíló síðan
hann kenndi sér fyrst meins fyrir fjórum vik-
um. „Þetta er þó ekki megrun sem ég mæli
með,“ segir Steinar m.a. í viðtali í Morgun-
blaðinu í dag.
„Ég er þessi karl á áttræðisaldri“
Steinar Friðgeirsson sá síðasti sem lagðist inn á spítala vegna kórónuveiru
MMér finnst ég hafa sloppið vel »10
Steinar
Friðgeirsson
Kátir hundar léku sér á Bala í Hafnarfirði er
ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um.
Eigendur hundanna pössuðu vel upp á tveggja
metra regluna en skiljanlega er ekki hægt að
segja það sama um hundana. Á meðan þeim er
gefinn laus taumurinn á hundasvæðunum er
brugðið á leik og félagsskapur við aðra hunda
skemmir ekki fyrir. Skipti engu þótt fjórar teg-
undir hunda ættu leið saman.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjörugt hundalíf án tveggja metra reglunnar
Starfsmenn Hafrannsóknastofn-
unar unnu við óvenjulegar aðstæður
við merkingar á humri á Jökuldýpi
nýverið. Til að vernda augu hum-
arsins og sjón, sem er vanur lítilli
birtu á 100-300 metra dýpi, voru
ljós slökkt um borð í rannsókna-
skipinu og unnið við dauf rauð
vinnuljós. Jónas Páll Jónasson,
fiskifræðingur á Hafrannsókna-
stofnun, segir þessa vinnu um miðja
nótt hafa minnt á það sem gerist í
vísindakvikmyndum.
Lítil hljóðmerki voru límd á bak-
skjöld 32 humra og senda þau upp-
lýsingar í hljóðdufl. Merkin eiga að
gefa upplýsingar um staðsetningu,
ferðir og háttalag humarsins.
aij@mbl.is »30
Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir
Rannsóknir Hljóðmerki límt á
humar í skímunni í Jökuldýpi.
Minnti á
vísinda-
kvikmynd
Hljóðmerki sett á
32 humra í Jökuldýpi
Jón Ívar Einarsson, pró-
fessor við læknadeild Har-
vard, segir í aðsendri grein
í Morgunblaðinu í dag að
mikilvægt sé að halda
áfram aðgerðum innan-
lands og jafnvel herða, t.d.
með því að skylda starfs-
fólk hjúkrunarheimila til
að bera grímur. Á sama
tíma þykir honum sem þær
aðgerðir sem ráðist hafi verið í á landamær-
unum séu ekki í samræmi við þá stöðu sem
við erum í nú. Jón Ívar segist ekki vilja opna
landamærin upp á gátt, en að heimkomusmit-
gát verði tekin upp í stað sóttkvíar. »37
Vill að stjórnvöld
endurskoði sóttkví
Jón Ívar
Einarsson