Morgunblaðið - 03.09.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Páll Vilhjálmssonsér þetta svona:
Ef RÚV væri lýð-veldi yrði það
kennt við banana.
RÚV býr til frétt-ir án heimilda,
falsar gögn, skipu-
leggur herferðir
gegn einstaklingum
og fyrirtækjum og
er með á sínum
snærum bloggsveitir til að valda
skotmörkum sem mestum miska.
Siðareglur RÚV eru nafnið tómt,áferðarfallegur texti án merk-
ingar enda engin siðanefnd til að
framfylgja hátíðarloforðum um
óhlutdrægni, vönduð vinnubrögð
og að heimildir skuli vera fyrir
fréttum.
RÚV stundar samsæri með öðr-um opinberum stofnunum um
að knésetja fyrirtæki með húsrann-
sóknum þar sem einu málsgögnin
eru slúður og fölsuð gögn.
Ef fyrirtæki ber hönd fyrir höf-uð sér er fengin fyllibytta frá
útlöndum til að bera fram nýjar
ásakanir.
RÚV hamrar á tilhæfulausumsöguburði í sjónvarpi, útvarpi
og á netinu.
Gildandi verklagslegur: sé lyginendurtekin nógu oft verður
hún að sannleika.
Bananalýðveldið á Efstaleiti erskammarlegt fyrirbæri.
Drýldinn og ófyrirleitinn ómagi á
framfærslu hins opinbera.“
Stefán Eiríksson,
Svo fátt sé nefnt
STAKSTEINAR
Páll Vilhjálmsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sveinn Þ. Guðbjarts-
son, fyrrverandi for-
stjóri Sólvangs, er lát-
inn, 82 ára að aldri.
Sveinn fæddist í
„Kassahúsinu“ við
Lækjargötu í Hafnar-
firði 28 janúar 1938.
Hann lauk prófum í
rafeindavirkjun frá
Iðnskólanum í Reykja-
vík, stundaði nám við
Handíða- og mynd-
listaskólann í málun og
teikningu og sótti nám-
skeið hjá ýmsum inn-
lendum og erlendum
útskurðarmeisturum. Hann stund-
aði síðan nám í stjórnun heilbrigðis-
stofnana við Nordiska Helsevard-
háskólann í Gautaborg og sótti ýmis
sérnámskeið við sama skóla.
Hann var rafeindavirki með eigið
fyrirtæki, Vélar og viðtæki, og hafði
þá umboð fyrir ýmsar vörur fjöl-
margra fyrirtækja í Evrópu og
Bandaríkjunum. Í 35 ár var hann
stjórnandi á heilbrigðissviði, heil-
brigðisfulltrúi Hafnarfjarðar, fram-
kvæmdastjóri Heilsugæslu Hafnar-
fjarðar og forstjóri Sólvangs.
Sveinn var varaformaður SUS
um skeið, sat í stjórn fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélagana í Hafnarfirði,
var stofnfélagi Golfklúbbsins Keilis
í Hafnarfirði, formaður Íþrótta-
bandalags Hafnarfjarðar, lands-
forseti JC á Íslandi og
stofnandi JC-félaga.
Hann var einn af
stofnendum Kiwanis á
Íslandi og tók þátt í
stofnum fleiri Kiw-
anisklúbba, var for-
maður safnaðar-
stjórnar Hafnar-
fjarðarkirkju.
Sat í stjórn Sálar-
rannsóknarfélags
Hafnarfjarðar, Heilsu-
gæslu Hafnarfjarðar
og Heilbrigðisfulltrúa-
félags Íslands, Raf-
veitu Hafnarfjarðar og
fleiri stjórnum á vegum Hafn-
arfjarðarbæjar.
Hann var varaformaður Lands-
sambands sjúkrahúsa, sat í stjórn
Félags forstöðumanna sjúkrahúsa, í
stjórn Hafnarborgar, menningar-
og listastofnunar Hafnarfjarðar, og
gegndi öðrum trúnaðarstörfum,
hérlendis og erlendis, á vegum fé-
lagasamtaka. Þá sat hann í stjórn
Félags eldri borgara í Hafnarfirði.
Sveinn var félagi í Frímúrara-
reglunni á Íslandi.
Sveinn kvæntist 12. febrúar 1959
Svanhildi Ingvarsdóttur, f. 11. októ-
ber 1937, d. 4. mars á þessu ári,
dóttir þeirra er Katrín, gift Krist-
jáni Rúnari Kristjánssyni, dætur
þeirra eru Hildur Dís og Svana
Lovísa, langafabörnin eru þrjú.
Andlát
Sveinn Þ. Guðbjartsson
„Hækkun á skólamat kom foreldrum
algjörlega í opna skjöldu í upphafi
skólaárs og þykir okkur með ólík-
indum að foreldrum hafi ekki verið
tilkynnt fyrir fram um hækkun á
gjaldskrá,“ segir í bréfi Foreldra-
félags Grunnskóla Seltjarnarness til
bæjarstjórnar Seltjarnarness. Í
bréfinu er skorað á bæjarstjórn að
endurskoða þá ákvörðun að hætta að
greiða niður skólamat.
Morgunblaðið greindi frá óánægju
foreldra með ákvörðun bæjarstjórn-
ar á dögunum en ráðist var í útboð á
framleiðslu og framreiðslu skóla-
matar. Starfsfólki var sagt upp og
samfara þessu var hætt að niður-
greiða mat skólabarna. Reiknað hef-
ur verið út að foreldrar barna í
grunnskóla greiði 23% meira fyrir
mat í ár en í fyrra og hækkunin nemi
45% hjá börnum á leikskólanum.
„Miklar óánægjuraddir [eru] inn-
an foreldrasamfélagsins bæði vegna
samskiptaleysis sem og hversu gríð-
arlegar breytingar þetta eru fyrir
fjárhag fjölskyldna. Þess vegna ósk-
um við þess að bæjarstjórn taki mál-
ið fyrir sem allra fyrst og taka af-
stöðu til beiðna okkar um að halda
áfram niðurgreiðslu skólamáltíða,“
segir í bréfinu.
Verðhækkun kom í opna skjöldu
Skorað á bæjarstjórn Seltjarnarness
að niðurgreiða áfram mat í skólum
Morgunblaðið/Golli
Seltjarnarnes Óánægja með verð á
skólamáltíðum eftir mikla hækkun.