Morgunblaðið - 03.09.2020, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Tómlegt um að litast á Tenerife
Guðrún Vala Elísdóttir, fréttaritari Morgunblaðsins í Borgarnesi, átti bókaða ferð til Tenerife á
árinu, sem nokkrum sinnum hafði verið færð til út af Covid. Loks var farið 8. ágúst en Guðrún
Vala segir stemninguna hafa verið sérstaka; ferðamenn fáir og margir staðir lokaðir. Hinn 14.
ágúst var innleidd almenn grímuskylda á eyjunni og fregnir bárust frá Íslandi um hertar reglur.
Síðasta heimflug í bili var boðað 19. ágúst og nýtti Guðrún Vala sér það, auk fjölda Íslendinga. Í
ferðinni tók hún nokkra Íslendinga tali sem búa á Tenerife, til að forvitnast um lífið á eyjunni.
Ég kem ekki til Íslands fyrren tryggt er að kórónu-veirufaraldrinum sé lok-ið. Þangað til vil ég njóta
þess að búa í Paradís,“ segir Anna
Kristjánsdóttir, sem fullyrðir að
ferðaþjónustan á Tenerife sé hrunin,
greinin hafi í raun hrunið strax í
mars og nái sér ekki á strik fyrr en
ástandinu lýkur. Hins vegar sé gott
að vera á Tenerife og smitin fá.
Vandamálin byrji þegar komið er til
Evrópu og til Íslands.
Anna flutti til Tenerife fyrir rúmu
ári og segir ástæðu flutninganna ein-
falda; hún elski gott veður sem ekki
sé verra að njóta í 30 gráðu hita.
Anna, sem er vélfræðingur að
mennt, fór á eftirlaun á síðasta ári og
sá fram á að geta lifað sæmilegu lífi á
Íslandi en lúxuslífi á Tene. „Ég elska
þetta líf og ætti erfitt með að flytja
heim aftur. Hér er næstum alltaf
gott veður og fjöllin gefa Torfajök-
ulssvæðinu ekkert eftir hvað litafeg-
urð snertir auk þess að íbúarnir hér
á suðurhluta Tenerife eru yndis-
legir.“
Anna segir að verðlag á Tenerife
sé allt annað en heima og kemst auð-
veldlega af á sínum „lélegu eftir-
launum frá Íslandi“ en viðurkennir
að hún sé ekki búin að setja sig
nægilega vel inn í heilbrigðiskerfið
þar, það sé í vinnslu.
Anna segir ávallt mikinn fjölda Ís-
lendinga á Tenerife, kannski einhver
hundruð, en eftir Covid hafi þeim
fækkað verulega og hún telur að nú
séu þeir kannski í kringum 50. Sem
dæmi nefnir hún að einungis 26
manns hafi greitt atkvæði í forseta-
kosningunum í vor.
Aftur smit þegar opnað var
Í upphafi kórónuveirufaraldursins
flúðu flestir Íslendingarnir heim og
þeir sem eftir urðu einangruðust,
enda var sett á útgöngubann í 10 vik-
ur. Anna segir að fyrsta smitið sem
uppgötvaðist á Spáni hafi verið á
litlu og dásamlegu eyjunni La Gom-
era sem er örstutt frá Tenerife.
„Daginn eftir að smitið uppgötv-
aðist héldum við fjögur saman til La
Gomera og nutum ferðarinnar þótt
engan fyndum við vírusinn. Nokkru
síðar fannst smit á hóteli hér í La
Caleta. Yfirvöld tóku mjög hart á
þessu og útgöngubann var sett á að
kvöldi 14. mars. Þegar banninu var
aflétt var ekkert smit á suðurhluta
Tenerife og ekkert nýtt smit kom
fyrr en í ágúst þegar opnað var fyrir
ferðamenn frá meginlandi Spánar og
víðar að. Þá var sett á grímuskylda
sem er mjög óþægileg fyrir fjölda
fólks. Sjálf hef ég reynt að skemmta
mér og öðrum með skemmtilegum
margnota grímum þar sem ég spila
trúð og fæ bros eða hlátur á móti.“
Sá fólk róta í ruslatunnum
Hún tók þá ákvörðun í upphafi
kórónuveirufaraldursins að líta á út-
göngubannið frekar eins og túr á
frystitogara og reyna að sjá hið já-
kvæða í hræðilegum aðstæðum. Það
reyndist henni vel en áhrifin voru
ekki eins góð hjá öðrum. Hún segir
að fólk hafi jafnvel gengið í sjóinn og
hræðilegt hafi verið að fylgjast með
fréttum.
„Margir þeirra sem höfðu atvinnu
hérna unnu á svörtu og fengu þá
engar atvinnuleysisbætur. Ég horfði
á fólk róta í ruslatunnum að leita sér
að mat svo ekki sé talað um ungt fólk
betlandi til að komast heim til sín á
meginland Evrópu.“
Vil njóta þess að búa í Paradís
Anna Kristjánsdóttir segist elska
lífið á Tenerife og er ekki á heimleið
Flugvöllur Hópur Íslendinga rétt slapp heim til Íslands 19. ágúst þegar
ferðatakmarkanir voru settar á að nýju en myndin er tekin á flugvellinum.
Tómlegt Fáir ferðamenn eru á
Tenerife og veitingastaðir tómir.
Tenerife Anna
Kristjánsdóttir
nýtur lífsins á eyj-
unni og er ekki á
heimleið í bráð.
Íslendingar á Tenerife
Slökun eftir langan dag!
Hefur þú settmagnesíum
flögur í heita pottinn?
Það er einstaklega slakandi og róandi fyrir sál og líkama.
Magnesíum slær á þreytuverki og getur linað harðsperrur.
Magnesíum er líka tilvalið í baðkarið eða fótabaðið og
getur bæði slegið á fótapirring og bætt svefn.
Settu magnesíumflögurnar frá Better You
út í vatnið og njóttu kærkominnar slökunar.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.